Page 1 of 1
Ferð í Eimverk
Posted: 3. Jun 2014 14:43
by astaosk
Þá er komið að fyrstu ferð starfsársins! Hún Eva hjá Eimverk býður okkur í heimsókn laugardaginn 14. júní, kl. 16.00. Ferðin er einungis fyrir félagsmenn. Það eru einungis 15 sæti í boði og því um að gera að drífa í því að borga félagsgjaldið og skrá sig.
Skráið ykkur hér
Nánari upplýsingar um Eimverk og Flóka hér:
http://www.flokiwhisky.is/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Ferð í Eimverk
Posted: 3. Jun 2014 18:02
by æpíei
Það er við þetta að bæta að það eru vinsamleg tilmæli til þátttakenda að þeir komi með smá prufu af eigin bjór til að gefa bruggurunum hjá Eimverki ef þeir hafa tök á því. Þeir eru allir mikil áhugamenn um heimabrugg og þætti gaman að fá að smakka gott heimabrugg.

Re: Ferð í Eimverk
Posted: 3. Jun 2014 19:06
by hrafnkell
Búinn að skrá mig, reyni að hafa eitthvað með mér ef ég get.
Re: Ferð í Eimverk
Posted: 12. Jun 2014 14:23
by æpíei
Minni á ferðina í Eimverk á laugardag. Það eru enn nokkur laus pláss. Við fáum að sjá hvernig framleiðslan fer fram og svo smakka á Flóka viskí og Vor gini, allt framleitt 100% úr íslensku hráefni. Vel þess virði að mæta í þetta. Sjá póst efst í þessum þræði með skráningu.
http://www.flokiwhisky.is" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.vorgin.is" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Ferð í Eimverk
Posted: 12. Jun 2014 14:28
by bergrisi
Er því miður næturvaktarhelgi hjá mér. Hefði haft mikið gaman af þessu. Verð að bíða eftir næstu ferð.
Re: Ferð í Eimverk
Posted: 12. Jun 2014 15:36
by einarornth
Skráði mig. Ætti að geta komið með eitthvað smakk. Hvar er þetta í bænum?
Re: Ferð í Eimverk
Posted: 12. Jun 2014 15:48
by æpíei
Það er góð spurning
Ég finn þá ekki í símaskrá en þeir eru skráðir í þjóðskrá að Lyngási 13 í Garðabæ. Ég held að verksmiðjan sé þar en þarf að fá það staðfest.
http://ja.is/?q2=&q=Lyng" onclick="window.open(this.href);return false;ási+13
Re: Ferð í Eimverk
Posted: 12. Jun 2014 16:39
by Dabby
Já þetta er í Lyngási 13, bakhúsi. Alveg ómerkt en sama hús og Samey sem er kyrfilega merkt. Inngangurinn er staðsettur þar sem örin er á meðfylgjandi mynd.

- eimverk.png (119.71 KiB) Viewed 12892 times
Re: Ferð í Eimverk
Posted: 25. Jun 2014 21:33
by karlp
This was a really fun trip, a lot more interesting than I expected! The gin was particularly interesting, and the tour was also more interesting than I thought, having already visited other distilleries before. Nice to talk to the operators so frankly. Also, we all got some nice experimental oaking spirals to try out "barrel aging" beers. A most excellent trip