Hafið þið sett minni sykur við átöppun þegar um er að ræða bjór sem á að geyma lengi.
Ég er að stefna á að búa til Russian Imperial Stout og hef smá áhyggjur af yfir kolsýringu þegar bjórinn lagerast lengi.
Ég bjó nefnilega til porter í nóvember sem var frekar létt kolsýrður um jólinn, svo snerti ég hann ekki aftur fyrr en um páskana og þá gaus hann framan í mig......
Ef sykurinn blandast almennilega og allt er vel sótthreinsað á kolsýran að haldast eins og þú vilt hafa hana. Flöskur gjósa þegar sýking kemur upp, eða ef allt of mikill sykur er í henni.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Hekk wrote:Hafið þið sett minni sykur við átöppun þegar um er að ræða bjór sem á að geyma lengi.
Ég er að stefna á að búa til Russian Imperial Stout og hef smá áhyggjur af yfir kolsýringu þegar bjórinn lagerast lengi.
Ég bjó nefnilega til porter í nóvember sem var frekar létt kolsýrður um jólinn, svo snerti ég hann ekki aftur fyrr en um páskana og þá gaus hann framan í mig......
Vill helst losna við svoleiðis vesen með RIS..
Einhverjar góðar ábendingar?
Ég lenti einmitt í svipuðu og þú með porter sem átti að fara í keppnina. Orsökin í mínu tilfelli var án efa sú að sykurinn við átöppun blandaðist ekki jafnt í allan bjórinn.
Ef þú hefur leyft gerinu að klára alveg gerjun, gerja allan gerjanlegan sykur, þá ættir þú að fá aðeins það kolsýrumagn sem þú miðaðir á (eins og Eyvindur segir) svo lengi sem sykurinn dreyfist jafnt í bjórinn! Nema hann sýkist