Page 1 of 1
Vogir
Posted: 30. Aug 2009 18:00
by Idle
Ég hef aðeins verið að svipast um eftir hentugri eldhúsvog fyrir korn, humla og ger. Flestar sem ég hef rekist á taka hámark 3 eða 5 kg. með 1 gr. skekkjumörkum, og eru á verðbilinu 3.490 til 7.990. Rakst svo á
eina í Elko sem mér líst bara nokkuð vel á.
Hámark 5 kg, nákvæmni 0,1 gr. 4.995 kr.
Re: Vogir
Posted: 30. Aug 2009 18:43
by Andri
keypti hitamæli í elkó, fór með hann út í bíl og ákvað að prófa hann og sjá hvernig hann myndi virka... hann virkaði ekki. Fór inn skipti, prófaði hann og hann virkaði ekki... skipti aftur... fannst þetta skrítið þannig að í þriðja skiptið prufaði ég annað batterý en það sem fylgdi með og þá virkaði ruslið.
Hefur örugglega setið inni á lager í 4 ár þannig að þú skalt checka á batterýinu í þessu hvort það virki

Re: Vogir
Posted: 30. Aug 2009 19:00
by Idle
Ég er svo óvanur því að rafhlöður fylgi nokkrum sköpuðum hlut að ég kaupi þær alltaf sérstaklega af gömlum vana.
Hvernig hitamæli keyptirðu? Eitthvað hentugt í bruggið?

Re: Vogir
Posted: 30. Aug 2009 19:16
by Andri
yup, kjöthitamæli sem er algjört sorp... þurfti að rífa hann í sundur og lóða vírana aftur saman
lætur mig þó vita ef hitastigið fer upp fyrir X gráður & X-ið er stillanlegt
Re: Vogir
Posted: 30. Aug 2009 20:36
by ulfar
Ég keypti hitamæli á Ámunni sem var algjör snilld...þangað til ég lánaði Eyjólfi hann. Hef ekki séð hann síðan. Annars nota ég tvær vogir. Eina analog úr góða hirðinum sem mælir 0-10 Kg með 50 gr námkvæmni og svo venjulega eldhúsvog sem mælir 0 - 2 Kg með 1 gr nákvæmni. Sérstaklega ánægður með þessa úr góða.
Re: Vogir
Posted: 30. Aug 2009 22:26
by Eyvindur
Ég heiti Eyvindur. Fyrir þetta mun ég halda hitamælinum þínum í gíslingu næstu þrjá mánuðina.
Re: Vogir
Posted: 30. Aug 2009 23:08
by arnilong
lol. Nú er Eyjólfur brjálaður!
Re: Vogir
Posted: 30. Aug 2009 23:08
by Hjalti
Snillingar..

Re: Vogir
Posted: 30. Aug 2009 23:27
by Idle
Eyjólfur eða Eyþjófur?
