New York Home Brew Tour og John Palmer

Hér geta notendur spjallað á léttu nótunum um eitt og annað sem tengist ekki beint gerjun eða öðru efni á þessu spjallvef
Post Reply
User avatar
æpíei
Undragerill
Posts: 825
Joined: 14. Dec 2012 21:46

New York Home Brew Tour og John Palmer

Post by æpíei »

Ég átti þess kost að fara í Home Brew Tour í New York með Joshua Bernstein nú á laugardaginn. Þessir túrar eru mjög skemmtilegir. Einhverjir gætu hafa séð frá svona túr á Chop and Brew nýlega. Ef ekki þá ættuð þið að skoða það myndband hér http://chopandbrew.com/2014/01/17/chop- ... ebrew-tour" onclick="window.open(this.href);return false;

Við byrjuðum á Manhattan í Stuyvesant Town. Fyrstu gestirnir voru ung hjón Stephen og Haley sem vinna og brugga saman. Hún er sérfræðingur um bjóra á veitingastaðnum sem þau vinna á, Taproom No. 307, og hann er kokkur sem leikur sér með bjóra í eldsmennsku sinni. Yfirleitt er hún hugmyndafræðingurinn bak við bjórana sem þau brugga en hann sér um tæknilegu útfærsluna. Það var mjög gaman að sjá hvernig þau koma þessu öllu fyrir í lítilli íbúð. Gestaherbergið er nýtt út í æsar sem geymsla fyrir bjórgræjur, og það er kegerator við hliðina á gestarúminu (húsfreyjan gantaðist með það að það væri auðveldlega hægt að liggja í rúminu og hella beint upp í sig).

Við fengum að smakka wit bjór sem notaði sítrónu og rosemary í stað hefðbundinnar appelsínu og kóreander, og karamellu epla cider, geymdur á eyk og spækaður með búrbon. Báðir voru mjög fínir og skemmtileg tilbreyting. Þá dró húsbóndinn fram nokkrar flöskur af lambik bjórum, báðir mjög fínir. Joshua laumaði svo í safnið einni flösku af Sam Adams Utopias, algjör killer bjór og meira bara eins og brandí http://www.beeradvocate.com/beer/profile/35/25759" onclick="window.open(this.href);return false;

Þá röltum við af stað niður í East Village. Bruggarinn þar tók vel á móti okkur með espresso stout úr kegeratornum. Auk þess var hann með nokkrar tegundir á flöskum, s.s. rauchbier, piparbjór, súran hvítbjór og eitt og annað. Hann var með fína aðstöðu úti á svölum á 8. hæð. Flestir hérna brugga á gasi, meskja sérstaklega og hafa svo fötu með sparge vatni sem er látið renna yfir kornið í lokin. Þessu var komið haganlega fyrir á svölunum. Hann var meira að segja að gera tilraunir með að rækta sína eigin humla þar uppi. Það var gaman að sjá hvað báðir fyrstu bruggararnir lögðu mikið upp úr útliti á bjórunum sínum, gerðu flotta miða og fundu góð nöfn á þá. Þá voru flestir bruggararnir sem ég hitti með eigin heimasíður og nafnspjöld til að auglýsa þær.

Næst gengum við yfir Williamsburg brúnnna út í Brooklyn. Þar undir brúnni búa Mary og Chris. Chris er bruggari á 508 Gastrobrewery á Manhattan. Mary er að vinna að bók um gerjun. Hún sérhæfir sig í að gerja alls konar safa og síróp. Hún dró fram flösku eftir flösku af fínastu drykkjum, ciderum með sporðdrekapipar, mjöðum, guava- og kirsuberjadrykkjum, svo ég nefni eitthvað. Hún leitar að drykkjum sem eru óblandaðir og með engum bætiefnum, t.d. Kirkland eplasafann, setur ger út í og etv smá krydd. Engan sykur. Hún gerjar sem með S-04 eða kampavískryddi eftir því hversu þurran hún vill hafa hann í ca 2 vikur, setur þá á flöskur, aftur án sykurs, og lætur drykkinn kolsýrast náttúrlega. Hún segir að best sé að nota plastflöskur í þetta því þá má kreista þær og finna þegar kolsýran er tilbúin. Þetta voru mjög skemmtilega pælingar hjá henni og það verður gaman að sjá bókina hennar.

Chris kom með 2 bjóra af 508. Sá fyrri var Berliner Weisse með blackberries, sá síðari var bjór/cyder hybrid, þurrhumlaður með kanil. Hann byrjaði sem venjulegur pale ale en svo var bætt í hreinum eplasafa eftir viku sem samsvaraði 20% af rúmmáli. Báðir voru mjög góðir. Ég hafði reyndar hitt Chris á 508 áður og smakkað alla bjórana hans þar. Sagan af því bíður betri tíma í næsta pósti.

Loks fór ég á 508 á sunnudagskvöldi á kynningu hjá John Palmer. Hann hafði verið í borginni alla helgina og farið á milli margra staða að hitta brugghópa og aðra bjóráhugamenn. Það var því frekar hægt yfir þessum fundi. Ég átti nokkuð gott spjall við hann og nýju bókina hans, Water. Einnig reifaði aðeins bruggsenuna á Íslandi og hann var alveg til í að skoða að koma til landsins einhvern tíma.

Þetta var sem sagt góð brugghelgi í NY. Ég mæli hiklaust með þessum ferðum Joshua ef þið eigð leið um borgina og eruð svo heppin að fá miða. Ferðirnar eru auglýstar á þessari síðu en seljast yfirleitt upp um leið og þær fara í sölu. Góða skemmtun :skal:

http://joshuambernstein.com/events/" onclick="window.open(this.href);return false;
Kegerator í svefnherberginu
Kegerator í svefnherberginu
Verðlaunagripir bruggarans
Verðlaunagripir bruggarans
Flottar flöskur
Flottar flöskur
Gengið á næsta stað
Gengið á næsta stað
Týpísk uppsetning á gasgræjum
Týpísk uppsetning á gasgræjum
Humlaræktun úti á svölum
Humlaræktun úti á svölum
Drykkir í Brooklyn
Drykkir í Brooklyn
Mary að kynna drykkina sína
Mary að kynna drykkina sína
Árituð bók Water eftir John Palmer
Árituð bók Water eftir John Palmer
Bjoggi
Kraftagerill
Posts: 87
Joined: 17. Mar 2014 19:37

Re: New York Home Brew Tour og John Palmer

Post by Bjoggi »

Þessi tour hljómar ansi vel!¨

Takk fyrir góðar upplýsingar ætla klárlega að kíkja á þetta í næstu ferð til NY.

kv,
B
Í gerjun: Sílalækur - CaraAmber Ale, Oktober-Marzen
Á krana: Sam Adams Clone, Citra BIPA,
Á flöskum: Ekkert
User avatar
helgibelgi
Undragerill
Posts: 773
Joined: 6. Nov 2010 22:29
Location: Reykjavík, Iceland
Contact:

Re: New York Home Brew Tour og John Palmer

Post by helgibelgi »

Þetta var skemmtileg lesning! Takk fyrir deila þessu með okkur :)

Þessir miðar hjá Stephen og Haley eru fáránlega flottir, mjög professional. Eftir meira en 3 1/2 ár þarf maður kannski að fara að byrja á þessu :P
User avatar
æpíei
Undragerill
Posts: 825
Joined: 14. Dec 2012 21:46

Re: New York Home Brew Tour og John Palmer

Post by æpíei »

Þetta voru ekki einu sinni flottustu flöskurnar. Gestgjafi nr 2 gerði bjóra fyrir brúðkaupið sitt. Hver gestur fékk einn. Karlarnir fengu eikarleginn stout, konurnar sætan tripel. Báðir voru um 10%. Hann sagði að þetta hefði verið fín leið til að koma partýinu af stað. Takið eftir skreytingunni og handteiknuðum myndum á tappanum. Þessi gaur vinnur í auglýsingabransanum, kannski augljóst. :)
Attachments
IMG_2863.jpg
User avatar
bergrisi
Undragerill
Posts: 948
Joined: 27. Apr 2011 23:24
Location: Keflavík

Re: New York Home Brew Tour og John Palmer

Post by bergrisi »

Skemmtileg lesning. Takk fyrir að deila þessu með okkur.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
User avatar
æpíei
Undragerill
Posts: 825
Joined: 14. Dec 2012 21:46

Re: New York Home Brew Tour og John Palmer

Post by æpíei »

Hér er skemmtilegt og fróðlegt viðtal sem einn heimabruggarinn í New York tók við John Palmer á 508 sl sunnudagskvöld.

http://thebrewedpalate.com/2014/05/07/j ... robrewery/" onclick="window.open(this.href);return false;
User avatar
æpíei
Undragerill
Posts: 825
Joined: 14. Dec 2012 21:46

Re: New York Home Brew Tour og John Palmer

Post by æpíei »

Þessi bjór/cider blanda kallast "graf". Skv þessu er hún mjög sveigjanleg varðandi hlutföllin og blöndun:

http://darktower.wikia.com/wiki/Graf" onclick="window.open(this.href);return false;
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: New York Home Brew Tour og John Palmer

Post by Eyvindur »

Graf kom einmitt við sögu í pub quizinu á keppniskvöldinu.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
æpíei
Undragerill
Posts: 825
Joined: 14. Dec 2012 21:46

Re: New York Home Brew Tour og John Palmer

Post by æpíei »

Hér er skemmtileg grein um þau Chris og Mary sem voru gestgjafar í síðustu heimsókninni í þessum heimabruggtúr. 508 Gastropub barinn sem Chris bruggaði á hefur því miður lokað. En það opnaði önnur tækifæri og nú hafa þau stofnað nýtt gypsy brugghús og bókin hennar Mary er loksins á leiðinni.
Post Reply