Page 1 of 1
					
				Tvískiptur bruggdagur.
				Posted: 26. Mar 2014 20:57
				by bergrisi
				Góðan daginn.  Fyrst það er svona rólegt hérna þá vil ég henda inn smá vangaveltum hjá mér.
Ég ætlaði að gera bjór á morgun en þarf óvænt að fara að vinna um hádegi svo ég næ ekki fullum bjórgerðardegi. Svo ég ætla að prufa að meskja í kvöld en sjóða á morgun.  Er eitthvað sem mælir gegn því?  Var að spá í hvort að einhver efni losni úr virtinum þegar hann bíður í hálfan sólarhring áður en suða hefst.  Er að gera reyktan porter úr BCS og hafði hugsað mér að geyma virtinn suðupottinum í nótt og kveikja svo undir snemma á morgun.
			 
			
					
				Re: Tvískiptur bruggdagur.
				Posted: 26. Mar 2014 21:44
				by hrafnkell
				Hann gæti súrnað eitthvað... Spurning um að ná upp suðunni til að drepa allt, slökkva svo undir og klára suðuna daginn eftir? Ég veit ekki, bara pæling 

 
			
					
				Re: Tvískiptur bruggdagur.
				Posted: 26. Mar 2014 22:20
				by æpíei
				Ég hef gert þetta. Ég tók hluta af virti til hliðar og geymdi í ca 3 daga áður en ég sauð það í litla prufulögun (var með allt aðra humla en stóra lögunin). Ég varð ekki var við að það hefði nein áhrif. Þegar þú sýður virtinn þá ættiru að drepa allt hvort sem er. Ég myndi bara kýla á það!
			 
			
					
				Re: Tvískiptur bruggdagur.
				Posted: 26. Mar 2014 22:23
				by bergrisi
				Takk.
Það verður ekki snúið við.  Mesking búin og er að gera starter.  Gæti verið sniðugt að ná upp smá suðu.  En eins og Æpíei segir þá þá klikkaði ekkert hjá honum.  Þetta er líka kolsvartur porter sem ég held að þoli allt.  Ætla að kíla á þetta.
			 
			
					
				Re: Tvískiptur bruggdagur.
				Posted: 26. Mar 2014 22:35
				by æpíei
				Mundu bara að þú verður talsvert lengur að ná upp suðunni á morgun. Gangi þér vel  

 
			
					
				Re: Tvískiptur bruggdagur.
				Posted: 26. Mar 2014 22:41
				by bergrisi
				Ég nota kælispýralinn til að ná hita uppí 75 gráður. Svo er það góður tími eftir það að ná suðu.
			 
			
					
				Re: Tvískiptur bruggdagur.
				Posted: 27. Mar 2014 09:18
				by Eyvindur
				Sigurður meskir yfirleitt að kvöldi og sýður að morgni. Virkar fínt. Hann er auðvitað með mjög vel einangraðan pott, þannig að ég geri ráð fyrir að hann dvelji ekki lengi á súrnunarhita (40-45°C).
			 
			
					
				Re: Tvískiptur bruggdagur.
				Posted: 27. Mar 2014 09:45
				by Classic
				Ég hef einu sinni lent í því að ná honum ekki upp. Pottinum þ.e.a.s. Elimentin voru orðin lasin og skitu á sig í rétt rúmum 80°C. Nú voru góð ráð dýr en ég mellti bara virtinni í fötu, fór daginn eftir og keypti tvo katla í RFL og skipti og sauð bjórinn sólarhring eftir meskingu. Sennilega besti bjór sem ég hef gert. Hann var humlaður strax eftir meskingu (first wort hops), spurning hvernir þeir humlar hafa hegðað sér öðruvísi en þeir áttu að gera, en það kom ekki að sök nema síður sé.
SÁEÖFÞH  

 
			
					
				Re: Tvískiptur bruggdagur.
				Posted: 27. Mar 2014 11:42
				by bergrisi
				Takk fyrir innleggin ykkar.  Var búinn að sjóða í morgun fyrir 10 og allt komið í gerjunarfötu.  Hef tröllatrú á þessum bjór og viss um að þetta hafi ekkert skaðað bjórinn.  
Hendi inn uppskriftinni inná bruggdagbókina mína.