Page 1 of 1
Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 13. Mar 2014 10:53
by sigurdur
Ég hef svo gaman af tilraunum, að ég ákvað að gera enn eina tilraun.
Ef þessi tilraun virkar, þá verður þrif mun minna vesen en það hefur verið hingað til.
Pokarnir eru framleiddir af Plastprent og fást í Tandur. Þeir eru matvælaöruggir (líka fyrir áfenga drykki).
Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 13. Mar 2014 23:19
by bergrisi
Þetta var skemmtilegt.
Geturu sett inn hvaða pokar þetta eru nákvæmlega svo maður kaupi örugglega rétta stærð og týpu.
Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 13. Mar 2014 23:28
by sigurdur
http://tandur.is/is/product/plastpokar-65x85-cm" onclick="window.open(this.href);return false;
There you go

Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 14. Mar 2014 01:22
by bergrisi
Takk fyrir þetta.
Var að skoða þetta á erlendum síðum og þá töluðu menn um að þeir væru að nota Turkey poka og þeir væru að rifna. Sumir að nota þá tvo poka.
Vonandi virka þessir vel því tryggara hreinlæti og minni vinna er eitthvað sem er mjög spennandi.
Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 14. Mar 2014 09:45
by Eyvindur
Pokinn ætti nú varla að rifna nema menn séu að hamast mikið í þeim. Ef hann er þétt utan við fötuna ætti ekki að vera mikill þrýstingur á pokanum sjálfur (að því gefnu að hann passi mjög vel).
Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 14. Mar 2014 18:57
by gm-
Engin hætta á plastbragði?
Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 14. Mar 2014 19:25
by sigurdur
Ekki meira plastbragði en úr gerjunarfötunni ..
Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 15. Mar 2014 00:18
by bergrisi
Hvað kostaði rúllan?
Sé engin verð á síðunni.
Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 15. Mar 2014 09:05
by sigurdur
Um 2000 fyrir 50 poka
Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 15. Mar 2014 10:18
by hrafnkell
Það eru klárlega til pokar fyrir þetta í plastprent líka, á móti ölgerðinni (aðalinnganginum). Veit ekkert um verð, en vert að athuga, sérstaklega ef einhverjum vantar aðrar stærðir.
Ég hugsa að ég myndi sótthreinsa allt hvort sem er, þannig að ég er ekki sannfærður um hagræðinguna af þessu

Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 15. Mar 2014 10:33
by sigurdur
hrafnkell wrote:Ég hugsa að ég myndi sótthreinsa allt hvort sem er, þannig að ég er ekki sannfærður um hagræðinguna af þessu

Ég áætla að pokarnir séu hreinir þegar maður opnar þá .. en jafnvel þótt þú myndir sótthreinsa, þá ertu SAMT að spara vinnu í þrif þegar þú ert búinn að gerja bjórinn.
Það er líka einfaldara að taka gerkökuna og hreinsa gerið .. (sleppur við krausen ruslið ef þú klippir pokann)

Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 15. Mar 2014 17:28
by helgibelgi
Ég er sannfærður!
Mun prófa þetta á næstunni. Ef þetta virkar vel ætti ég bara að þurfa að þrífa lokið á milli lagna. Ég hugsa að ég myndi einmitt sótthreinsa pokann hvort sem er, en það er lítil sem engin vinna: opna pokann, dýfa honum ofan í sótthreinsilausn og láta liggja í örfáar mínútur, taka hann síðan upp úr og láta leka af og svo koma honum fyrir ofan í fötuna.
Svo er hægt að skipta á pokum við félaga eftir gerjun, skiptast á gerpokum!
Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 15. Mar 2014 17:45
by hrafnkell
Já nokkuð öruggt að þeir séu sótthreinsaðir þegar þeir eru opnaðir. Sennilega voru þeir nálægt bræðslumarki þegar þeim var rúllað upp, sem er um 150°C fyrir mörg plastefni. Það steindrepur allar pöddur.
Ég hugsa að ég nenni þessu ekki, því fyrir mína brugg- og átöppunardaga er þetta ekki að leysa nein vandamál. Tekur svo lítinn tíma að þrífa gerjunarfötur eftir gerjun og svona

Re: Að gerja bjór í plastpoka? Minnkaðu þrifin.
Posted: 15. Mar 2014 22:45
by Funkalizer
hrafnkell wrote:Ég hugsa að ég nenni þessu ekki, því fyrir mína brugg- og átöppunardaga er þetta ekki að leysa nein vandamál. Tekur svo lítinn tíma að þrífa gerjunarfötur eftir gerjun og svona

Er það bara ég eða er læk takkinn farinn?
Þetta komment fær alla veganna læk frá mér...
Hvernig er svo að ná bjórnum af þessu? Sogast plastið ekki bara inn í syphon'inn ?
