Page 1 of 1
Porter úr hráefnum frá Ölvisholti?
Posted: 28. Aug 2009 11:52
by kristfin
ég sá uppskrifna að hafra porternum frá eyvindi þar eru hráefni sem ég sé ekki hjá ölvisholti.
er hægt að búa til porter úr hráefnum hér heima? lumar einvher á uppskrift.
ég ætlaði að fara gera pöntun til þeirra, langaði að eiga í nokkrar ale og jafnvel porter ílagnir.
[edit: hafraporterinn var rangfeðraður hjalta]
Re: Porter úr hráefnum frá Ölvisholti?
Posted: 28. Aug 2009 12:03
by Idle
Ég held - án þess að fullyrða nokkuð - að í porter sé jafnan notað Black Patent eða Chocolate malt til viðbótar við önnur hráefni. Þessar tegundir eru a. m. k. ekki í verðlistanum. Hugsanlega mætti nota CaraAroma og Roasted Barley í staðinn?
Hugmynd: Hnoðaði þessu saman í BeerSmith rétt í þessu.
18,93 lítrar.
3,50 kg Pale Malt
0,50 kg Caraaroma
0,25 kg Roasted Barley
40 gr. Fuggles (60 mín.)
30 gr. Fuggles (5 mín.)
OG est: 1.049
FG est: 1.013
SRM est: 26,5
IBU: 22,2
ABV: 4,75%
Re: Porter úr hráefnum frá Ölvisholti?
Posted: 28. Aug 2009 12:25
by Idle
Virðist þessi hugmynd mín vera í ágætu samræmi við
BJCP skilgreininguna.
Re: Porter úr hráefnum frá Ölvisholti?
Posted: 28. Aug 2009 12:25
by kristfin
ég talaði við jón stjórnarformann hjá ölvisholti og spurði hann út í malt fyrir porter bjóra. hann sagði að þeir ættu meira úrval en væri á listanum sem við erum með. jafnvel súkkulaði og dökkt malt. hann ætlar að senda mér eða setja hér á vefinn uppfærðan lista yfir hráefni.
þá reikna ég með að pannta meŕ eftir helgi hráefni í ale og portera og fara all-greina á fullu

Re: Porter úr hráefnum frá Ölvisholti?
Posted: 28. Aug 2009 12:27
by Idle
Frábært! Einu áhyggjurnar sem ég hef eru vegna þess hve innkaupalistinn minn gæti lengst mikið við uppfærðan vörulista.

Re: Porter úr hráefnum frá Ölvisholti?
Posted: 28. Aug 2009 13:31
by arnilong
CarafaSpecial III er súkkulaðimalt.
Hér er einn sem ég hef gert áður og hráefnin frá Ölvisholti passa vel í það. Ég notaði reyndar ekki Carafa Special III þá en það má vel setja smá ristað bygg með þessari uppskrift:
OG: 1.054
Þýskt pale malt: 85%
CaraMunich II: 10%
Carafa Special III: 5%
100 gr. Hellertauer Hersbrucker(3.5%)
30 gr. Cascade (4.5%)
Gerjað með US-05
Kent Goldings gætu líka verið góðir seint í suðuna uppá ilm og bragð.
Re: Porter úr hráefnum frá Ölvisholti?
Posted: 28. Aug 2009 13:38
by Idle
arnilong wrote:CarafaSpecial III er súkkulaðimalt.
Ég var meira að hugsa um bragðið heldur en ilm og lit; skv.
þessari töflu fæst það aðeins úr "Chocolate" malti. Má vera að ég misskilji þetta eitthvað. :s
Re: Porter úr hráefnum frá Ölvisholti?
Posted: 28. Aug 2009 14:02
by Eyvindur
Formsins vegna langar mig að árétta að Hafra-Porter uppskriftin er úr minni smiðju, ekki Hjalta. En allt um það.
Ég myndi halda að Carafa gæti virkað vel í Porter. Porter er mjög víður bjórstíll, og er í raun erfitt að skilja hann frá t.d. sætum stout. Ég myndi þó fara varlega með að nota ristað bygg, svo þú fáir ekki of mikið af súru og beisku ristuðu bragði, sem mér finnast frekar eiga heima í stout. Annars líst mér býsna vel á uppskriftina hans Árna.
Re: Porter úr hráefnum frá Ölvisholti?
Posted: 28. Aug 2009 14:17
by Hjalti
Ohh... ég sem hélt að ég væri geðveikt klár og væri farinn að uppskriftast eins og vindurinn án þess að vita af því

Re: Porter úr hráefnum frá Ölvisholti?
Posted: 28. Aug 2009 14:39
by arnilong
Eyvindur wrote:Ég myndi þó fara varlega með að nota ristað bygg, svo þú fáir ekki of mikið af súru og beisku ristuðu bragði, sem mér finnast frekar eiga heima í stout.
Já, ég er sammála Eyvindi hér. En svona til að hafa einhverjar tölur hér, þá var ég bara að hugsa um 50-70 gr. af Ristuðu byggi.
Pælingin mín með ristaða byggið var í raun bara komin til vegna þess að ég hef áður notað soldið af Carafa en ekki CarafaSpecial, en CarafaSpecial(sem Ölvisholt eru með) gefur mildara súkkúlaðibragð heldur en Carafa, sem mér finnst gefa smá ristað bragð.
Munurinn á þessu tvennu er að CarafaSpecial er afhýtt(dehusked) að miklu leyti og gefur því minni beiskju en Carafa.
Re: Porter úr hráefnum frá Ölvisholti?
Posted: 28. Aug 2009 20:32
by arnilong
Reyndar hefði ég líklega frekar notað S-04 ger ef að um þurrger væri að ræða.