Page 1 of 1

2 pakkar af geri í porter í stað starters

Posted: 11. Jan 2014 17:13
by busla
Ég er ekki með DME/LME fyrir starter svo að ég er velta fyrir mér hvort ég setji ekki bara tvo pakka af Nottingham ale geri? Þetta er hafra porter frá Brew.is. Samkvæmt Beersmith þá þyrfti ég fleiri en einn pakka.

Myndu þið ráðleggja mér að setja seinni pakkann um leið eða eftir að t.d. vika er liðinn?

Re: 2 pakkar af geri í porter í stað starters

Posted: 11. Jan 2014 20:03
by hrafnkell
Þarft ekki 2 pakka í porterinn. Nema þú sért að gera meira en 20 lítra.


Þegar maður á að pitcha meira geri þá gerir maður það *alltaf* í byrjun. Aldrei þegar x dagar eru liðnir. Einnig er ekki mælt með því að gera starter úr þurrgeri.

Re: 2 pakkar af geri í porter í stað starters

Posted: 12. Jan 2014 00:08
by busla
Ég var að klára lögunina og hélt að Nottingam væri blautger :-) Ég fór að hafa áhyggjur af þessu því Beersmith kvartaði yfir því að það væri ekki nóg ger.