Page 1 of 1
[Óska eftir] Curacao orange peel
Posted: 24. Aug 2009 19:28
by halldor
Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver hér ætti bitter og/eða sweet orange peel og jafnvel juniper ber og irish moss
Vitið þið hvort hægt sé að fá eitthvað af þessum hráefnum á Íslandi og hafið þið prófað eitthvað af þessu?
Re: [Óska eftir] Curacao orange peel
Posted: 24. Aug 2009 19:40
by Idle
Irish Moss fæst a. m. k. hér:
http://www.natturan.is/verslun/217/
Appelsínur sem fást hér (a. m. k. þessar "venjulegu") flokkast sem sætar.
Ég er ekki viss um júníper berin, en það er ekki ósennilegt að þau fáist þurrkuð hér á landi (veit að þau eru notuð svolítið í matargerð á Norðurlöndunum).
Re: [Óska eftir] Curacao orange peel
Posted: 24. Aug 2009 19:49
by sigurdur
'irish moss' => fjörugrös, hægt að kaupa á nattura.is eða tína úr fjörum á suður / vesturlandi.
Einiber getur þú trúlega fundið í bónus.
Ég veit ekki hvort að ísland kaupir appelsínur eða appelsínubörk frá Curacao .. en það er kanski hægt að þurrka börkinn af lélegum appelsínum til að fá sama effect ..
Re: [Óska eftir] Curacao orange peel
Posted: 24. Aug 2009 19:52
by Idle
sigurdur wrote:'irish moss' => fjörugrös, hægt að kaupa á nattura.is eða tína úr fjörum á suður / vesturlandi.
Einiber getur þú trúlega fundið í bónus.
Ég veit ekki hvort að ísland kaupir appelsínur eða appelsínubörk frá Curacao .. en það er kanski hægt að þurrka börkinn af lélegum appelsínum til að fá sama effect ..
Juniper == einir. Þetta hafði ég ekki hugmynd um!

Re: [Óska eftir] Curacao orange peel
Posted: 24. Aug 2009 19:58
by halldor
Takk fyrir svörin strákar
Ég hafði heldur ekki hugmynd um að juniper væri einiber
Flott að heyra með írska mosann.
Ég veit vel að appelsínur fást á Íslandi, ég var bara að spá hvort menn væru að kaupa þetta úr heimabruggverslunum eða bara mixi þetta heima hjá sér. Hefur einhver hér prófað að nota ferskan/heimaþurrkaðan appelsínubörk í bjór?
Re: [Óska eftir] Curacao orange peel
Posted: 24. Aug 2009 19:58
by Hjalti
Þetta vissi ég ekki.... Irish Moss = Chondrus Crispus = Fjörugrös
Re: [Óska eftir] Curacao orange peel
Posted: 24. Aug 2009 20:04
by sigurdur
smá tip handa ykkur ... það fást ýmsar upplýsingar með því að skrifa það sem að þið eruð að leita að og bæta við 'site:.is' í google leitina.

Re: [Óska eftir] Curacao orange peel
Posted: 24. Aug 2009 22:04
by Oli
ég keypti poka af fjörugrösum í júní að mig minnir frá náttúra.is, á pakkanum stóð svo að varan rynni út mánuði síðar

.....passið að fá ekki e-h gamalt útrunnið dót. Ég nennti ekki að kvarta yfir þessu enda býst maður við að svona þurrkað dót sé í lagi í nokkur ár í viðbót

Re: [Óska eftir] Curacao orange peel
Posted: 25. Aug 2009 09:18
by Öli
sigurdur wrote:'.. en það er kanski hægt að þurrka börkinn af lélegum appelsínum til að fá sama effect ..
Gallinn við það er að appelsínur eru gjarnan vax húðaðar. Senninlega til að láta þær líta betur út (og e.t.v. til að þær geymist betur ?).
Senninlega þarftu að fara í dýrar lífrænt ræktaðar til að sleppa við vaxið.
Re: [Óska eftir] Curacao orange peel
Posted: 25. Aug 2009 09:20
by Öli
Idle wrote:Ég er ekki viss um júníper berin, en það er ekki ósennilegt að þau fáist þurrkuð hér á landi (veit að þau eru notuð svolítið í matargerð á Norðurlöndunum).
Þau fást, síðast þegar ég vissi í Tiger í kringlunni (hjá kryddinu). Sennilega þá í öllum Tiger búðum

Eins gæti mig grunað að Europris ætti þau til.
Re: [Óska eftir] Curacao orange peel
Posted: 25. Aug 2009 11:34
by Korinna
Oli wrote:ég keypti poka af fjörugrösum í júní að mig minnir frá náttúra.is, á pakkanum stóð svo að varan rynni út mánuði síðar

.....passið að fá ekki e-h gamalt útrunnið dót. Ég nennti ekki að kvarta yfir þessu enda býst maður við að svona þurrkað dót sé í lagi í nokkur ár í viðbót

Ég efast nú um að fjörugrasið varð ónýtt eftir það. Og ef maður panta það og nota það strax þá gerir það ekkert til hvort sem er. Ábyggilega þarf að vera meiri eftirspurn eftir þessu, þá fær maður ferskari vara.