Page 1 of 1
Glútenlaus bjór
Posted: 26. Nov 2013 10:39
by Funkalizer
Sælar
Hefur einhver ykkar einhverja reynslu í sambandi við að búa til glútenlausan bjór ?
Það eina sem ég veit að Weyermann framleiðir og er glutenlaust er eitthvað sem heitir Sinamar en það virðist vera litarefni miklu frekar en malt afleiða.
Er þetta of mikið vesen ?
Fann
þessa síðu með fullt af stöffi en ég veit ekki einu sinni hvar ætti að byrja að leita að hráefni.
Anyone?
Re: Glútenlaus bjór
Posted: 26. Nov 2013 11:15
by hrafnkell
Ég hugsa að mikið af þessu gætirðu fundið í kosti, heilsuhúsinu og svoleiðis stöðum. Annars hef ég lítið vit á glútenlausum bjór og hef bara rétt litið yfir nokkrar greinar um það..
Re: Glútenlaus bjór
Posted: 26. Nov 2013 20:20
by gm-
Er víst dáldið snúið, og sá glúteinlausi bjór sem ég hef smakkað var ekki þess virði að drekka, held að ég myndi skipta yfir í vín/cider frekar
Hægt að nota sorghum extract ef þú getur fengið slíkt á klakanum, eða þú getur maltað eigið kínóa eða millet með tilheyrandi veseni.
Hérna er uppskrift frá félaga mínum sem segir að hún sé þokkaleg, þú ættir að geta fengið bókhveitiflögur einhversstaðar í hippadeildum stórmarkaða, erfiðara með sorghum extractið:
60 minute boil
6 gallons pre-boil volume
5.25 gallons post boil
OG 1.048
FG 1.008
5.2% ABV
46 IBU
Colour: 11.5 SRM
Fermentables
13.3% Toasted Buckwheat (steeped, 30min 155ºF)
73.3% Sorghum Extract Syrup (added to boil—60 minutes to try and get some caramelization for more colour)
13.3% Belgian Candi Syrup D45 (last 10 minutes of boil)
Hops
US Magnum (13.0 % AA, Pellet) 0.75 oz - 60 Min
US Vanguard (5.0 % AA, Pellet) 0.50 oz - 10 Min
US Vanguard (5.0 % AA, Pellet) 1.50 oz - 5 Min
US Cascade (5.3 % AA, Pellet) 2.00 oz - Flame out
US Cascade (5.3 % AA, Pellet) 2.00 oz - Dry-Hopped (10 days)
Fermented with US-05 at 62ºF.
Re: Glútenlaus bjór
Posted: 7. Apr 2014 17:01
by æpíei
Ég hef aðeins verið að líta á þetta til að brugga fyrir vinkonu mína sem er bjóráhugakona en þurfti nýlega að fara á glutenfrítt fæði. Það er ekki hlaupið að þessu eins og þessi grein hér segir:
http://byo.com/stout/item/698-gluten-free-brewing" onclick="window.open(this.href);return false;
Eina sorghum sem ég hef séð hér er sorghum hveiti í kosti. Það er ekki hægt að nota það. Hafið þið hugmynd um hvort sorghum ómalað fáist einhvers staðar? Ég þyrfti þá líklega að malta það sjálfur eins og lýst er í greininni.
Það er ekki nema hægt væri að safna í pöntun á sorghum sýrópi ef fleiri hafa áhuga á að prófa þetta. Sjá hér:
http://www.brewingwithbriess.com/Maltin ... rewing.htm" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Glútenlaus bjór
Posted: 7. Apr 2014 18:17
by astaosk
Ég einmitt á líka góða "glútenfría" vini svo ég væri til í að vera með ef það væri farið út í pöntun.
Re: Glútenlaus bjór
Posted: 7. Apr 2014 19:55
by hrafnkell
Ég get tekið þetta í næstu ld carlson pöntun ef áhugi er fyrir hendi. Ég fæ einstaka sinnum fyrirspurnir um glúteinfría bruggun. Ég hef líka verið að benda mönnum á að clarity ferm frá white labs veldur því að bjór verður undir FDA mörkum og getur kallast glúteinlaus. Það er vert að skoða og jafnvel prófa ef menn eru ekki með alvarlegt óþol.
In addition to eliminating chill haze, Clarity Ferm significantly reduces the gluten content in beers made with barley and wheat. A Clarity-Ferm treated beer made from barley or wheat usually tests below 20 ppm of gluten, the current international standard for gluten free. White Labs offers gluten testing for beers, this test will allow brewers to know the gluten level of the beers it produces, but brewers are not allowed to use this value on their labels until the FDA completes its validation.
http://www.whitelabs.com/other-products ... arity-ferm" onclick="window.open(this.href);return false;
Lítið mál að taka þetta með í næstu white labs pöntun. Ég tók smotterí af þessu seinast, en það er uppselt núna.
Re: Glútenlaus bjór
Posted: 7. Apr 2014 21:39
by Funkalizer
Í mínu dæmi væri það algjörlega glútenlaust eða ekkert.
Sorghum syrup og brown rice syrup skilst mér að sé "skíturinn" í þessu.
Sorghum upp á að bera uppi bruggunina (sykrurnar) og brown rice til að mýkja bragðið af sorghum'inu.
Endilega láttu okkur vita, Hrafnkell, hvað þetta kemur til með að kosta ef þú pantar þetta næst.
Re: Glútenlaus bjór
Posted: 4. Jun 2014 15:30
by hrafnkell
Fyrir áhugasama þá tók ég clarity ferm með í sendingunni frá white labs. Kostar 400kr.
Re: Glútenlaus bjór
Posted: 5. Jun 2014 01:07
by Funkalizer
http://www.whitelabs.com/ wrote:APPLICATIONS:
1) To increase the collodial stability of beer by reducing chill haze.
2) Producing gluten
reduced beers in beers made from barley and wheat.
"Kúnninn" minn myndi aldrei tala við mig aftur ef ég reyndi að gefa honum eitthvað sem væri bara gluten reduced.
Þetta og brown rice extract verður bara að vera á innkaupalistanum mínum í næstu Ameríkuferð, hvenær sem hún verður
Dúndra síðan í einhvern vel humlaðan til að fela bragðið af Sorghuminu sem lekur í gegn.
Skilst að það sé ekkert brjálað gott.
Re: Glútenlaus bjór
Posted: 5. Jun 2014 09:55
by hrafnkell
Funkalizer wrote:http://www.whitelabs.com/ wrote:APPLICATIONS:
1) To increase the collodial stability of beer by reducing chill haze.
2) Producing gluten
reduced beers in beers made from barley and wheat.
"Kúnninn" minn myndi aldrei tala við mig aftur ef ég reyndi að gefa honum eitthvað sem væri bara gluten reduced.
Þetta og brown rice extract verður bara að vera á innkaupalistanum mínum í næstu Ameríkuferð, hvenær sem hún verður
Dúndra síðan í einhvern vel humlaðan til að fela bragðið af Sorghuminu sem lekur í gegn.
Skilst að það sé ekkert brjálað gott.
Þetta kemur líka fram á whitelabs.com:
A Clarity-Ferm treated beer made from barley or wheat usually tests below 20 ppm of gluten, the current international standard for gluten free.
Ég ætla samt ekkert að þræta fyrir þetta - bara koma upplýsingunum áfram
Ég tek prufusendingu af sorghum sýrópi einhvertíman í lok sumars, vonandi kaupir það einhver og gefur mér hoppy sorghum bjór til að smakka

Re: Glútenlaus bjór
Posted: 17. Feb 2015 20:21
by Sindri
Hefur einhver af ykkur náð að brugga glútenlausan bjór sem bragðast ágætlega ?
Re: Glútenlaus bjór
Posted: 17. Feb 2015 21:05
by æpíei
Ég ætlaði mér alltaf að fylgja þessu eftir.
Þessi glútenlausi bjór stórbatnaði við smá geymslu. Hann varð allur meira í jafnvægi og alveg ágætur til drykkju. Þó er dálítið mikið botnfall í honum. Þannig að ég myndi segja að þetta væri success. Ég hef verið í smá bruggpásu en nú er annar Pale Ale glútenlaus á dagskrá hjá mér. Set kannski inn meira um hann þegar ég ræðst í hann.
p.s. sá að Skúli var með glútenlausan bjór á krana um daginn frá To-Öl að mig minnir. Vonandi verður það fastur bjór hjá þeim svo hægt sé að fara út og fá sér einn með glútenóþolnum vinum

Re: Glútenlaus bjór
Posted: 17. Feb 2015 22:32
by Funkalizer
Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um minn.
Hann er alveg ágætur á bragðið en ég get ekkert endilega sagt að þetta sé góður bjór.
Meira svona eins og fínn, humlaður cider...
Re: Glútenlaus bjór
Posted: 18. Feb 2015 02:03
by astaosk
Minn var ágætur á tímabili... meðan að þurrhumlunin var enn mjög fersk - núna eru humlarnir farnir að dofna og einmitt sorghum óbragðið komið aftur í gegn...
Re: Glútenlaus bjór
Posted: 19. Feb 2015 11:29
by Sindri
Er nokkuð einhver af ykkur sem á 1 flösku af glútenlausum sem ég mætti láta glútenóþolsvininn smakka ?