Page 1 of 1
Einangrun á potta
Posted: 21. Nov 2013 21:18
by rdavidsson
Sælir,
Þar sem ég brugga alltaf utandyra og í um 100 m yfir sjávarmáli þá hefur það tekið langan tíma að hita upp meskivatnið, mesking að rokka mikið o.s.frv. Ég ákvað því að reyna að finna lausn á þessu. Þeir hjá Þ. Þorgríms eru með snilldar lausn á þessu, svokallað reflectix efni sem hefur hátt einangrunargildi og kostar sama og ekki neitt. Eini ókosturinn við efnið er að það þolir aðeins 80°C þannig að ég tek það af eftir mash out, sem er mjög auðvelt þar sem það er fest utan um pottinn með frönskun rennilás sem er límdur á efnið.
Hérna er potturinn minn klæddur í "gallann":
Efniskostnaður:
Reflectix: 750kr total
Franskur: 600kr total
Hræódýr lausn sem svínvirkar!!
Re: Einangrun á potta
Posted: 21. Nov 2013 23:28
by gosi
Djöfulsins snilld.
Hvar fær maður franskan?
Re: Einangrun á potta
Posted: 21. Nov 2013 23:46
by rdavidsson
Ég keypti hann í A4:
http://a4.is/product/franskur-rennilas-hvitur-60cm" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Einangrun á potta
Posted: 22. Nov 2013 00:20
by æpíei
Þumall upp! Brillíant
Re: Einangrun á potta
Posted: 22. Nov 2013 13:08
by Plammi
Töff
Væri samt til í að fá svona sem þolir suðuna líka, einhver með hugmynd sem eru jafn ódýr?
Re: Einangrun á potta
Posted: 22. Nov 2013 13:18
by bergrisi
Ég einangraði minn með einhverri íþróttadínu. Veit ekkert hvað hún þolir en nota hana á suðupottinn minn.
http://fagun.is/viewtopic.php?f=8&t=2487&start=25" onclick="window.open(this.href);return false;
Gæti verið sniðugt að setja hana og svo þessa hlíf utan um.
Re: Einangrun á potta
Posted: 22. Nov 2013 13:47
by Eyvindur
Ég veit ekki með það, samt. Jú, suðan kannski fljótari að koma upp, en svo muntu hvort sem er vilja taka einangrunina af, því hún tefur svakalega fyrir kælingu.
Annars er steinull með einhvers konar klæðningu utan um eflaust besta einangrunin, ef þú ætlar ekki að taka hana af.
Re: Einangrun á potta
Posted: 23. Nov 2013 12:00
by helgibelgi
Þetta er sniðugt!
Ég gæti hugsað mér að útbúa svona sem passar á gerjunarfötu. Ég meski stundum í þeim og er byrjaður á því að dunk sparge'a í þeim líka.
Spurning hvort það sé hægt að nota þetta sem einangrun í gerjunarskápum? Þ.e.
skápum líkt og æpíei er með.
Re: Einangrun á potta
Posted: 23. Nov 2013 16:48
by æpíei
Góð spurning. Ég finn greinalega fyrir að erfiðara er að halda hita í kuldanum upp á síðkastið. Ég ætla að líta betur á þetta.
Re: Einangrun á potta
Posted: 24. Nov 2013 00:41
by rdavidsson
Eyvindur wrote:Ég veit ekki með það, samt. Jú, suðan kannski fljótari að koma upp, en svo muntu hvort sem er vilja taka einangrunina af, því hún tefur svakalega fyrir kælingu.
Annars er steinull með einhvers konar klæðningu utan um eflaust besta einangrunin, ef þú ætlar ekki að taka hana af.
Ef ég man rétt thá er sama einangrunargildi i thessu efni(8mm) eins og í 3 tommu steinull....

Re: Einangrun á potta
Posted: 24. Nov 2013 11:09
by Plammi
Eftir smá rannsókn á HBT þá er manni alveg óhætt að nota þetta í suðu líka.
Pælingin hjá mér er að hafa þetta á pottinum í meskingu og suðu og taka svo af fyrir kælingu. Þegar ég er að sjóða í miklum kulda þá finnst mér það taka heila eilíf að ná upp suðu og suðan verður soldið ójöfn (nær ekki í hliðarnar á 50L potti með 3,3kw elementi).
Einn sagði að hann væri þriðjung fljótari að ná upp suðu með þetta á.
Þráðurinn er hér:
http://www.homebrewtalk.com/f11/will-re ... le-202987/
Re: Einangrun á potta
Posted: 24. Nov 2013 12:18
by Eyvindur
rdavidsson wrote:
Ef ég man rétt thá er sama einangrunargildi i thessu efni(8mm) eins og í 3 tommu steinull....

Það hlýtur nú að fara eftir þéttleikanum. Steinull er til í ótal mismunandi þykktum og þéttleikum. Þriggja tommu steinull er ekki það sama og þriggja tommu steinull.

En þegar ég hugsa mig betur um er steinull sennilega ekki besta einangrunin. Svona fyrir utan það hvað hún er andstyggileg í meðförum.