Page 1 of 1
Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 18. Nov 2013 20:28
by Eyvindur
Jæja, nú stendur til að láta karl föður minn koma með myllu fyrir mig úr næstu ferð til BNA. Ég er að velta fyrir mér hvað ég eigi að velja. Eru einhverjir fróðir menn með ráðleggingar fyrir mig? Ég er voða lítið inni í því hvað góð mylla þarf að hafa til brunns að bera. Ég vil halda kostnaðinum í lágmarki, en fá góða myllu sem er stillanleg og endingargóð. Vantar semsagt góðan milliveg í verði og gæðum. Ég er helst búinn að vera að skoða Monster Mill og Crank and Stein, en ekki búinn að ákveða neitt.
Einhver?
Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 19. Nov 2013 16:41
by bergrisi
Ég keypti Barley Crushern
http://www.barleycrusher.com/" onclick="window.open(this.href);return false;.
Sé að margir eru með þessa gerð.
Ég sendi þeim póst tímanlega og gekk frá greiðslu. Svo bað ég viðkomandi að senda ákveðna dagsetningu svo myllan væri komin meðan ég var á staðnum.
Gott verð og hægt að nota borvél. Er mjög ánægður með hana.
Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 19. Nov 2013 21:04
by hrafnkell
Ég átti barley crusher fyrst, hann var fínn þangað til að ég þurfti eitthvað stórtækara.
Ég hugsa að þú verðir sáttur við hvað sem þú velur, ekki mikill munur á milli þarna hugsa ég.
Ég er með crankandstein 328d núna. Hún er ágæt, en er stundum aðeins að stríða mér, 3ja keflið grípur ekki alveg í kornið. Ég þarf hugsanlega að smyrja hana betur.

Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 19. Nov 2013 23:53
by Eyvindur
Já, eflaust verð ég kátur með hvað sem er. Þar sem pabbi gamli ætlar að taka þetta með sér í flug var ég að pæla í að kaupa myllu sem ekki fylgir hopper með og smíða slíkt. Þess vegna var ég aðallega að skoða Crank and Stein og Monster Mill.
Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 20. Nov 2013 12:49
by Haukurtor
Ég er í sömu hugleiðingum. Spurning hverju maður geti troðið í töskuna!
Er hopperinn á barley crusher alveg fastur á? Eða er hægt að fella hann niður?
Bergrisi var ekker mál að ferðast með hann?
Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 20. Nov 2013 12:53
by bergrisi
Þetta kom í góðum kassa og með frauði í kring. Ég tók allt frauðið burt og setti boli, sokka og nærur (hrein föt) í staðinn í kassann. Þá var þetta ekki mikið mál.
Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 20. Nov 2013 12:57
by hrafnkell
Hopperinn er ekkert svo huge, og hægt að losa frá "grunninum". Þarf samt frekar stóra ferðatösku fyrir hann. Tekur samt voða lítið rúmmál í rauninni því það er hægt að fylla hopperinn af drasli.
Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 20. Nov 2013 14:00
by bergrisi
Ég setti hann í stóra íþróttatösku. Var með foreldrum og öllum börnum svo það var nóg af töskuplássi. Það sem er aðlaðandi við þennan er verðið og hann virkar vel fyrir heimabruggara. Ég er alltaf með þetta 4 -9 kg af kornum í lögun.
Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 20. Nov 2013 17:49
by Haukurtor
Frábært! Takk fyrir upplýsingarnar. Held ég skelli mér á barley crusher, verð með nóg töskupláss

en afsakið eyvindur fyrir af high jack-a þræðinum.
Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 20. Nov 2013 18:36
by flokason
Þeir sem ég þekki sem eiga Barley Crusher eru mjög sáttir með hann. Ég á einnig Barley Crusher og mér finnst hann geggjaður, en ég hef þannig séð ekki prófað neinn annan crusher, svo ég get ekki beint borið hann saman við neinn annan
Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 20. Nov 2013 18:53
by Eyvindur
Ekkert hijack, þú varst að spyrja að því sama og ég!
Ég setti þetta nú ekki síst hérna inn þannig að fleiri gætu haft gagn af því.
Ég er ennþá á Crank and Stein. Hún er ódýrari en Barley Crusherinn, og bruggfélagi minn er óður í að smíða hopper. Líka um að gera að minnka umstangið fyrir gamla manninn.
Takk allir, fyrir upplýsingarnar!
Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 20. Nov 2013 19:08
by flokason
Barley crusher er annars $10 ódýari hérna:
http://beersmith.com/barley-crusher/heldur" onclick="window.open(this.href);return false; en á
http://www.barleycrusher.com/ordering.php" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false; og flest öllum stöðum, ég keypti minn þarna
Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 20. Nov 2013 20:41
by hrafnkell
Tók mína crank and stein í sundur í dag eftir nokkurra ára þjónustu án mikils viðhalds.
Hvern hefði grunað að bygg bíti á áli?

Re: Vantar ráðgjöf um myllur
Posted: 20. Nov 2013 21:03
by bergrisi
Það væri gaman að sjá myndir.