Page 1 of 1
Er hægt að bragðbæta við átöppun?
Posted: 28. Oct 2013 20:14
by Grænikarlinn
Sælir félagar, er að velta fyrir mér svona síðasti séns dæmi. Er með jólabjór í gerjun, belgískur tripel, samt brúnn

Er með smá appelsínudæmi og stjörnuanis en er að velta fyrir mér hvort ég geti sett eitthvað meira góðgæti við átöppun? Ég smakkaði hann um daginn þegar ég skellti honum í secondary og fannst ekki nógu jólalegur
Þannig að mér datt í hug hvort yfir höfuð sé hægt að hafa áhrif á bjór við átöppunina??
Re: Er hægt að bragðbæta við átöppun?
Posted: 28. Oct 2013 23:23
by Eyvindur
Já, það er vel hægt, en þá þarftu að pæla svolítið í því hvernig þú ætlar að gera það. Þú getur ekki sett krydd í heilu lagi við átöppun, því það myndi líklega ekki blandast nógu vel, og gæti líka valdið því að bjórinn gjósi úr flöskunum.
Líklega væri hentugast að búa til vodka-essens úr kryddinu. Leggja það í vodka í nokkra daga og láta bragðið leka út í vodkað og setja svo smátt og smátt út í og smakka til. Þá geturðu stjórnað þessu vel og vandlega.
Re: Er hægt að bragðbæta við átöppun?
Posted: 29. Oct 2013 10:47
by Grænikarlinn
Jamms, hljómar vel. Ef ég vil gera hann ögn sætari, hvernig get ég aukið sætuna án þess að fá sprengingar
Það er víst eitthvað sem gerið ekki vill gerja ekki satt?
Re: Er hægt að bragðbæta við átöppun?
Posted: 29. Oct 2013 11:03
by hrafnkell
Grænikarlinn wrote:Jamms, hljómar vel. Ef ég vil gera hann ögn sætari, hvernig get ég aukið sætuna án þess að fá sprengingar
Það er víst eitthvað sem gerið ekki vill gerja ekki satt?
Meskja heitar næst þegar þú bruggar hann, eða nota annað ger sem er með lægri attenuation (gerjunarnýtni? gernýtni?). Mjólkursykur gæti gengið, en ég mæli ekki með svona pælingum eftir gerjun. Frekar bara logga vel allt sem maður gerir í brugguninni svo maður geti lagað þetta til í næsta skipti.
Re: Er hægt að bragðbæta við átöppun?
Posted: 29. Oct 2013 16:25
by Eyvindur
Já, það er voðalegt vesen að sæta bjór við átöppun. Reyndar geta bæði kanill og vanilla aukið sætuupplifun, án þess að bæta beinlínis við sætu. En það fer samt svolítið eftir því hvernig grunnbjórinn er.
Re: Er hægt að bragðbæta við átöppun?
Posted: 15. Nov 2013 10:38
by geirigusa
Sælir
Ég er í sömu hugleiðingum. Er með jólabjór sem er tilbúinn en á eftir að fara á flöskur en hann er ekki alveg nógu jólalegur. Ég setti kanil, múskat og appelsínubörk í þegar 5 min voru eftir af suðu. Hef væntanlega sett of lítið.
Er með þrjár hugmyndir að viðbótum sem ég gæti hugsað mér að setja í við átöppun:
Búa til vodka essens og nota þá kanil og múskat í það.
Sjóða vatn með slatta af hreinu kakó út í.
Kreista klementínur og bæta safanum við. Var að spá í að sjóða safan niður, en hef lesið að það geti skemmt bragðið.
Er eitthvað af þessu slæm hugmynd ?
Re: Er hægt að bragðbæta við átöppun?
Posted: 15. Nov 2013 18:00
by Eyvindur
Ég held að klementínusafi verði vondur þegar hann gerjast. Kakóhugmyndin hljómar áhugaverð, en af hverju ekki að ganga alla leið og præma bara með swiss miss?
Vodka essens er það sem gefur þér mesta stjórn. Þá geturðu tekið 100ml sýni, prófað þig áfram með dropateljara og umreiknað svo yfir í allan skammtinn.