Page 1 of 2
Oktoberfest Fágunar
Posted: 18. Aug 2009 13:55
by Hjalti
Mig langar rosalega til að Fágun haldi Oktoberfest og að allir reyni að búa eithvað til fyrir svoleiðis hitting og að við legjum sal og fjölmennum með Mökum og vinum og smökkum hjá hvoröðrum eithvað sem við byrjum að gerja núna
Hvernig hljómar þetta?
Spurning hvort einhverjum langi til að hjálpa mér að skipuleggja þetta?
Endilega sendið á mig ef þið hafið áhuga á að hafa samband í tengslum við þetta.
hjalti (hjá) hjalti (.) se
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 18. Aug 2009 15:05
by Oli
Góð hugmynd! Evran er of dýr til að fara á alvöru hátíðina í ár.
Ein Prosit, ein Prosit
Der Gemütlichkeit

Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 18. Aug 2009 15:11
by ulfar
Já þetta er góð hugmynd
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 18. Aug 2009 19:28
by halldor
Já fín hugmynd... en ég veit ekki með mökin
Hjalti wrote:Mig langar rosalega til að Fágun haldi Oktoberfest og að allir reyni að búa eithvað til fyrir svoleiðis hitting og að við legjum sal og fjölmennum með
Mökum og vinum og smökkum hjá hvoröðrum eithvað sem við byrjum að gerja núna
Hehehe... að öllu gríni slepptu þá er ég geggjað til í þetta

og ætla að brugga geggjaðan bjór fyrir þetta
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 18. Aug 2009 21:15
by Eyvindur
Já, ég held að þetta gæti verið stórgaman. Eigum við að setja einhver mörk varðandi það hvað fólk bruggar? Þá á ég við einhverjar hugmyndir, þannig að við getum gert fjölmörg tilbrigði við svipaða stíla, eða eitthvað í þeim dúr, og svo borið saman? Bara hugmynd, sko...
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 19. Aug 2009 00:03
by halldor
Mér finnst að allir ættu að brugga sína útgáfu af Märzen
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 19. Aug 2009 07:00
by Eyvindur
En er Märzen ekki lagerbjór? Fæstir hafa aðstöðu í slíkt.
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 19. Aug 2009 09:32
by Oli
Eyvindur wrote:Já, ég held að þetta gæti verið stórgaman. Eigum við að setja einhver mörk varðandi það hvað fólk bruggar?
Er ekki betra að ákveða hvaða tegundir á að koma með í staðinn fyrir að setja kvóta á hvað menn brugga heima hjá sér
öllu gríni slepptu þá er ég að fara leggja í marzen á næstunni, það tekur amk 6 vikur (hef ég lesið)að fá lagerinn góðann þannig að þeir sem hafa aðstöðu til þess ættu að leggja í sem fyrst.
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 19. Aug 2009 09:40
by Hjalti
Held að takmarkanirnar ættu að vera sem minnstar fyrir svona hitting. Betra að fá bara góða mætingu og kanski loksins starta félaginnu fyrir alvöru sem almennilegt félag.
Ég er með tvo sali sem ég er að kanna verð með og svoleiðis en þeir taka ca. 30 manns og eru með litlum eldhúsum og svoleiðis.
Ef einhver hefur upplýsingar eða tengsl í svona mál þá má alveg láta mig vita þar sem að kostnaðurinn á að sjálfsögðu að vera eins lár og hægt er!
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 19. Aug 2009 09:54
by sigurdur
Það má vera að ég geti fengið salinn hjá fyrirtækinu sem ég vinn hjá til þess að hýsa þetta ef við erum að hugsa um lágan start kostnað. Það myndi kosta lítið býst ég við.
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 19. Aug 2009 10:32
by Eyvindur
Ég var nú ekki að tala um að hafa einhverjar ægilegar takmarkanir. Það sem ég var að reyna að koma frá mér var að við myndum setja fram einhverjar tillögur að stíl(um) fyrir fólk til að brugga og koma með, en að sjálfsögðu yrði aldrei bannað að koma með eitthvað annað. Fannst bara svolítið skemmtileg hugmynd að nokkrir (sem flestir, auðvitað, allt eftir áhuga, getu og vilja) gerðu eitthvað svipað og bæru svo saman. Skemmtileg leið til að undirstrika það hversu gríðarleg fjölbreytnin getur verið, jafnvel þótt viðmiðin séu þröng.
En eins og ég segi, bara hugmynd.
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 19. Aug 2009 10:39
by Oli
Mér líst vel á það hafa einn stíl sem aðalnúmer, menn geta þá mætt með sína útgáfu af þeim stíl og borið saman, ekki vitlaus hugmynd. Þyrftum þá að velja stíl sem flestir hafa bruggað eða þann stíl sem hægt er að brugga með góðu móti þar til þetta smellur á.
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 19. Aug 2009 10:42
by Hjalti
Mjög skemtileg hugmynd

Getur m.a.s. verið að maður reyni þetta sem fyrsta AG bjórinn sinn svona til að smella sér í djúpu laugina til að byrja með

Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 19. Aug 2009 10:57
by Eyvindur
Já, við getum bara haft þetta einfaldan og fjölhæfan stíl, eins og ljósöl (Pale Ale) eða jafnvel stout, þar sem það verður farið að hausta duglega. Þetta eru tveir stílar sem er mjög einfalt að brugga, erfitt að klúðra og bjóða upp á geysilega fjölbreytni. Þannig geta allir (sem vilja) mætt með bjór úr sama stíl, en allir verða þó gjörólíkir.
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 19. Aug 2009 20:27
by Korinna
Það væri frábært ef við gætum fengið sal svo að allir gætu komið með sinn bjór og við gætum kannski einnig komið með mat. Og ekki má gleyma tónlistinni
http://www.youtube.com/watch?v=3xa91QUR ... re=related
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 2. Sep 2009 10:49
by Oli
Er skipulagning farin í gang? Þarf ekki að setja 3ja manna nefnd í skipulagningu bara?:)
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 2. Sep 2009 10:52
by Eyvindur
Hljómar vel. Pant ekki ég (hef minna en engan tíma þessa dagana).
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 2. Sep 2009 12:32
by halldor
Ég tilnefni Hjalta... þar sem hann startaði þessum þræði

Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 2. Sep 2009 12:51
by Hjalti
Ég tilnefni Halldór, hann tilnefndi mig
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 2. Sep 2009 13:04
by Oli
Þá eru komnir tveir tilnefndir

Er ekki einhver einn í viðbót sem hefur tíma í þetta?
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 2. Sep 2009 14:09
by Oli
Ég tilnefni Idle/sigurð í þetta, hann er búinn að vera svo virkur á spjallinu síðan hann byrjaði

Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 2. Sep 2009 14:16
by Idle
Oli wrote:Ég tilnefni Idle/sigurð í þetta, hann er búinn að vera svo virkur á spjallinu síðan hann byrjaði

Gerði ég eitthvað á þinn hlut?

Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 2. Sep 2009 14:29
by Oli
Idle wrote:Oli wrote:Ég tilnefni Idle/sigurð í þetta, hann er búinn að vera svo virkur á spjallinu síðan hann byrjaði

Gerði ég eitthvað á þinn hlut?

Ég myndi bjóða fram krafta mína ef ég væri aðeins nær höfuðborgarsvæðinu

Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 2. Sep 2009 14:43
by Hjalti
Ég, Halldór og Idle eru þá settir í ráðið.
Hittingur á Vínbarnum yfir einum skjálfta annað kvöld?
Re: Oktoberfest Fágunar
Posted: 2. Sep 2009 14:53
by Idle
Hjalti wrote:Ég, Halldór og Idle eru þá settir í ráðið.
Hittingur á Vínbarnum yfir einum skjálfta annað kvöld?
Maður fær augljóslega engu um eigin stöðu ráðið, svo ég er "in". En það er ekki vegna skipulagsins, heldur Skjálftans!
