Page 1 of 1
Rafmagnslokar
Posted: 8. Sep 2013 17:36
by helgibelgi
Getur einhver sagt mér hvar ég get fengið rafmagnsloka fyrir vatn? Þ.e. hver er líklegastur til að vera með það á besta verðinu? (Er með crazy hugmynd í kollinum sem ég þarf að vita hvort sé raunsæ)
Kveðja,
Helgi
Re: Rafmagnslokar
Posted: 8. Sep 2013 18:02
by sigurdur
ebay fyrir besta verðið held ég .. annars allar pípulagningardeildir/verslanir.
Re: Rafmagnslokar
Posted: 8. Sep 2013 20:43
by hrafnkell
gesala.is var ódýrast seinast þegar ég vissi. Kostar 10-15k, danfoss solenoid með 230v spólu (spóluloki).
Hægt að fá á ebay líka, en ég sit uppi með 3stk ónothæfa solenoid eftir seinustu tilraun mína til þess. Það er líka spurningin um hvort maður vilji ekki hafa dótið sem stjórnar neysluvatnsþrýstingi alveg upp á 100
Nema þú sért kannski að tala um motorized ball valve eða eitthvað svoleiðis?
Re: Rafmagnslokar
Posted: 8. Sep 2013 21:39
by helgibelgi
Mig grunar einmitt að ég muni enda á að nota ebay/amazon.
Langar sem sagt að gera stýrt vatnsflæði með hitastýringu eins og t.d. STC-1000.
Ætti það ekki alveg að ganga upp?
Re: Rafmagnslokar
Posted: 8. Sep 2013 22:15
by hrafnkell
Jú, ekkert að því að nota stc-1000 til að stýra segulloka. Ertu að gera þér gerjunarskáp kældan með neysluvatni?

Re: Rafmagnslokar
Posted: 8. Sep 2013 22:33
by helgibelgi
hrafnkell wrote:Jú, ekkert að því að nota stc-1000 til að stýra segulloka. Ertu að gera þér gerjunarskáp kældan með neysluvatni?

Ekki gerjunarskáp heldur eitthvað sem ég veit ekki hvað ég á að kalla
Langar að prófa að nota kælispíral til að hitastýra meskingu og gerjun.
Btw, átt þú ryðfrían kælispíral?
Re: Rafmagnslokar
Posted: 8. Sep 2013 22:39
by hrafnkell
helgibelgi wrote:Btw, átt þú ryðfrían kælispíral?
Neibb. Prófaði einusinni að beygja 316 ryðfrítt í höndunum og það er fjandans vonlaus andskoti. Þarft græjur í það.
Re: Rafmagnslokar
Posted: 8. Sep 2013 22:44
by helgibelgi
hrafnkell wrote:helgibelgi wrote:Btw, átt þú ryðfrían kælispíral?
Neibb. Prófaði einusinni að beygja 316 ryðfrítt í höndunum og það er fjandans vonlaus andskoti. Þarft græjur í það.
Grunar að ég panti frekar bara á netinu.
Re: Rafmagnslokar
Posted: 9. Sep 2013 10:02
by jniels
Ég hef fundið ýmislegt bruggtengt á
http://www.aliexpress.com" onclick="window.open(this.href);return false;
Bjóða oft upp á fría sendingu líka.
Re: Rafmagnslokar
Posted: 9. Sep 2013 11:36
by helgibelgi
jniels wrote:Ég hef fundið ýmislegt bruggtengt á
http://www.aliexpress.com" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;
Bjóða oft upp á fría sendingu líka.
Takk, var búinn að heyra af þessari síðu frá öðrum. Er búinn að finna allt sem ég þarf á þessari síðu. Hún er ótrúleg! (Reyndar vilja þeir ekki senda ryðfría kælispíralinn til Íslands, svo líklega þarf ég að panta svoleiðis annars staðar)