Page 1 of 1
Úlfur úlfur klónn, tillögur?
Posted: 23. Jul 2013 22:37
by Mummi
Lumar nokkur á uppskrift sem gæti líkst tvöfalda Úlfinum? Það eina sem ég veit er að í hann fara fernskonar humlar: Chinook, columbus, centennial og amarillo. Mikið af þeim. Ef einhver hefur hugmynd um hvaða ger er notað hjá þeim nú eða korn þá væri það vel þegið.
Bestu kveðjur,
Mummi
Re: Úlfur úlfur klónn, tillögur?
Posted: 23. Jul 2013 23:42
by hjaltibvalþórs
Ég smakkaði nú ekki marga en ég myndi giska á að maltgrunnurinn sé svipaður og í einfalda Úlfi, Pilsner, Munich og Caramel (CaraMunich II?). Borg menn nota þurrger í ölið sitt og ég hugsa að US-05 sé nærri lagi í Úlfunum. Þú gætir prófað að senda þeim skilaboð á Facebook, þeir eru talsvert virkri þar. Gangi þér vel og láttu okkur vita hvernig þetta fer hjá þér.

Re: Úlfur úlfur klónn, tillögur?
Posted: 24. Jul 2013 09:51
by Mummi
Takk fyrir þetta. Eftir að hafa skoðað nokkrar IIPA uppskriftir þá var ég kominn á þessar slóðir en frábært að fá staðfestingu á því að reyndari menn komist að sömu niðurstöðu. Hafði meira að segja hugsað mér US-05 í hann, en það var meira vegna hugmyndaskorts frekar en af upplýstri þekkingu.
Læt vita hvernig til tekst. Skulda líka myndir af porter og sumaröli... sjáum til..
Re: Úlfur úlfur klónn, tillögur?
Posted: 25. Jul 2013 18:22
by Mummi
Ég keypti í uppskriftina í gær (birti það seinna) en Borgarmenn svöruðu í dag held ég eða seint í gær og sögðu: 100% pilsner malt og US-05! Þá vitum við það.