Page 1 of 1
Ölvar Brugghús
Posted: 23. Jul 2013 22:33
by arnier
Sæl öll,
Árni heiti ég og er nýliði í þessu, lagði í mína fyrstu lögn í maí á þessu ári og er núna með þá fimmtu í gerjun. Þetta er dásamleg skemmtun (nema að þvo flöskur) og allt svo æðislega gott sem að maður gerir
Ég er í smálögnum, er með 10 lítra pott sem ég sýð í á eldavélinni heima. Til að ná sem bestri nýtni á pottinum þá meskja ég í c.a. 8,5 lítrum í pottinum og geri svo "dunk sparge" með 3,5-4,0 lítrum í fötu. Þetta gengur allavegana hjá mér en þetta er allt drekkanlegt

Nýtnin hjá mér hefur verið í kringum 65% sem er kannski ekkert gott en ég næ því ekki mikið ofar.
Brugghúsið fékk nafnið Ölvar, sem þýðir "sá sem fer vel með áfengi", og hefur framleitt eftirfarandi bjóra:
Nr.1 – Bastarður.........American IPA
Nr.2 – Glópagull..........American Pale Ale
Nr.3 – Djöfulgangur.....Kolsch
Nr.4 – ÞRENN-A..........American Amber Ale
Nr.5 – Öðlingur...........English IPA
Og svo eru margið aðrir i pípunum

- Framleiðslulínan
- 2013-07-23 20.47.27.jpg (669.81 KiB) Viewed 28020 times
Re: Ölvar Brugghús
Posted: 23. Jul 2013 23:29
by æpíei
Þetta er stórfenglegt allt saman: metnaðurinn, drifkrafturinn, stílarnir sem þú velur og miðarnir maður!

Re: Ölvar Brugghús
Posted: 24. Jul 2013 10:43
by bergrisi
Virkilega flott hjá þér. Velkominn í Sportið.
Re: Ölvar Brugghús
Posted: 24. Jul 2013 11:02
by helgibelgi
Þetta eru geðveikt flottir miðar hjá þér!
Velkominn í hópinn!
Re: Ölvar Brugghús
Posted: 24. Jul 2013 13:31
by arnier
Það er stór partur af skemmtuninni að finna bjórunum nafn og gera miða

Það var hinsvegar ekki ætlunin að leggja svona mikið í þetta, en þegar maður gefur frá sér þá er gaman að hafa þetta sæmilega útlítandi.
Hérna er uppkastið að nr.5

- Nr.5 - Öðlingur.jpg (1001.52 KiB) Viewed 27957 times
Re: Ölvar Brugghús
Posted: 24. Jul 2013 13:55
by æpíei
arnier wrote:Það er stór partur af skemmtuninni að finna bjórunum nafn og gera miða
Gæti ekki verið meira sammála!
Re: Ölvar Brugghús
Posted: 6. Aug 2013 19:59
by Maggi
Gaman að þessu. Flottir miðar og skemmtileg nöfn.
Re: Ölvar Brugghús
Posted: 15. Aug 2013 01:25
by arnier
Búinn að smakka Öðling og er mjög ánægður með hann
Ákvað líka að taka þetta skrefinu lengra og stofnaði facebook síðu fyrir brugghúsið, ætla að vera duglegur að setja inn þar hvað ég er að fást við
https://www.facebook.com/olvar.brugghus
Re: Ölvar Brugghús
Posted: 15. Aug 2013 12:44
by Plammi
arnier wrote:Búinn að smakka Öðling og er mjög ánægður með hann
Ákvað líka að taka þetta skrefinu lengra og stofnaði facebook síðu fyrir brugghúsið, ætla að vera duglegur að setja inn þar hvað ég er að fást við
https://www.facebook.com/olvar.brugghus
Haha, gerði það sama fyrir nokkru síðan, hef samt ekki þorað að segja fólki frá því :p
https://www.facebook.com/HansKlaufiBrugghus
Re: Ölvar Brugghús
Posted: 15. Aug 2013 12:50
by Funkalizer
Talandi um miða og ef ég má forvitnast:
Hvernig vinnur þú miðana (forrit, template, stærðir o.þ.h.)?
Fylltist nefnilega sjálfur gríðarlegum metnaði þegar ég byrjaði (og áður en ég var kominn með fyrsta bjór í gerjun) en datt eiginlega á andlitið með hann og hef ekkert gert síðan.
Re: Ölvar Brugghús
Posted: 15. Aug 2013 13:33
by arnier
@Plammi, það er bara svo gaman að vera bjórnörd að maður verður að deila því með öðrum
@Funkalizer, ég vinn miðana í Photoshop (sem ég kann ekkert á) Miðarnir eru 8x12 cm og prentaðir á venjulegan pappír með laser prentara, klipptir út og límdir á með mjólk.
Re: Ölvar Brugghús
Posted: 11. Sep 2013 20:55
by JoiEiriks
Gríðarlegur stæll á þessu hjá þér og gerir það að verkum að manni finnst að þetta verð maður að gera. Ég komst í flöskumiða á netinu en þeir eru ekki svona frumlegir eins og maður sér hjá þér. Til lukku með þetta allt !!