Page 1 of 1
Suðutími í Beersmith
Posted: 16. May 2013 11:30
by busla
Veit einhver hvar ég finn suðutíma í Beersmith? Eða er hann yfirleitt 60 mín?
Nonni
Re: Suðutími í Beersmith
Posted: 16. May 2013 11:36
by busla
Fann það í Timer.
Re: Suðutími í Beersmith
Posted: 16. May 2013 13:13
by hrafnkell
Suðutíminn er efst í uppskriftinni...

Re: Suðutími í Beersmith
Posted: 16. May 2013 13:19
by busla
Klassi.
Skrítið að suðutími sé ekki látinn fylgja með í Style Comparison Guide fyrir neðan.
Re: Suðutími í Beersmith
Posted: 16. May 2013 13:25
by busla
hvað eruði annars að sjóða hveitibjór lengi? Er að lesa um að 90 mínútur séu ráðlagður tími?
Re: Suðutími í Beersmith
Posted: 16. May 2013 14:06
by hjaltibvalþórs
Það er oft talað um að Pilsner malt þurfi að sjóða í 90 mínútur.
Re: Suðutími í Beersmith
Posted: 16. May 2013 14:08
by hrafnkell
Suðutími og stíll tengjast í raun ekki saman. Ef maður er að gera stóran bjór, þá er algengt að sjóða í lengri tíma til að fá þykkari virt, og einnig ef maður er með mikið af pilsner malti þá vill maður sjóða í 90mín.
Re: Suðutími í Beersmith
Posted: 16. May 2013 14:13
by busla
Hvítur Sloppur ætti hugsanlega að fá 90 mín í suðu? Ég meskjaði hann í 90 mín.
Re: Suðutími í Beersmith
Posted: 16. May 2013 14:30
by busla
.. annað sem ég finn ekki er vatnsmagnið sem ég setti í byrjun fyrir meskingu (meskjun?). Ef ég get ekki sett það inn þá hlýtur nýtni-mælingin að vera röng.
Re: Suðutími í Beersmith
Posted: 16. May 2013 20:34
by gm-
Hvað meinaru fyrir meskingu?
Þetta ætti allt að vera undir Mash hnappnum.
Re: Suðutími í Beersmith
Posted: 16. May 2013 21:41
by rdavidsson
busla wrote:.. annað sem ég finn ekki er vatnsmagnið sem ég setti í byrjun fyrir meskingu (meskjun?). Ef ég get ekki sett það inn þá hlýtur nýtni-mælingin að vera röng.
Tjékkaður á þessu:

Re: Suðutími í Beersmith
Posted: 16. May 2013 22:00
by busla
Snillingar, hafði ekki skoðað þetta.
Ég fann þetta svo í Vols flipanum.
Re: Suðutími í Beersmith
Posted: 17. May 2013 09:23
by hrafnkell
Vatnsmagnið sem kemur upp í brewsheet er reiknað út frá kornmagni, suðutíma og equipment profile.