Page 1 of 1

[Óska eftir] WY3068 geri - krukku eða nýju

Posted: 14. May 2013 11:27
by sigurdur
Vegna mistaka þá er ég ekki með WY3068 ger .. sem mig nauðsynlega vantar í hveitibjórinn minn..!

Er einhver góðhjartaður með krukku eða nýtt WY3068 ger handa mér á næstkomandi dögum?

Re: [Óska eftir] WY3068 geri - krukku eða nýju

Posted: 17. May 2013 11:08
by sigurdur
*Vææææl*

Er einhver sem getur reddað mér? :)

Re: [Óska eftir] WY3068 geri - krukku eða nýju

Posted: 17. May 2013 12:29
by helgibelgi
Búinn að tékka á Hrafnkeli? Er sjálfur að leita að 3068

Annars á ég "mystery" krukku inni í ísskáp sem gæti verið 3068. Skal láta þig vita ef það reynist svo. (Þori bara ekki að opna hana, nema til að búa til starter úr því strax)

Re: [Óska eftir] WY3068 geri - krukku eða nýju

Posted: 17. May 2013 13:25
by sigurdur
Ég á 3068 krukku sem er ~2 ára gömul held ég ... get búið til einhvern starter úr henni .. eeeeen vil helst ferskt ger ef hægt er ;)
Fékk 1 PM með hreinu geri .. nýti mér þann tengilið ef hægt er ..

Hrafnkell á ekki .. ég átti inni hjá honum en það misfórst eitthvað þannig að ég verð að redda mér svona ;)

Helgi, þegar ég geri starter, þá get ég gefið þér af honum líka svo að þú fáir ger :)

Re: [Óska eftir] WY3068 geri - krukku eða nýju

Posted: 17. May 2013 14:04
by hrafnkell
sigurdur wrote:Hrafnkell á ekki .. ég átti inni hjá honum en það misfórst eitthvað þannig að ég verð að redda mér svona ;)
Moral of the story: Sækja gerið sitt fljótlega eftir að það kemur - ekki mánuði seinna :)

Re: [Óska eftir] WY3068 geri - krukku eða nýju

Posted: 17. May 2013 14:13
by sigurdur
Það er rétt .. og viðhalda réttu inventory

Re: [Óska eftir] WY3068 geri - krukku eða nýju

Posted: 21. May 2013 12:01
by gugguson
Varðandi "ferskt ger".

Ef ger er lifandi en gamallt og maður setur það í gegnum stir-starter og nær upp eins miklu geri og nýr pakki - getur maður þá verið með verra ger, eða er það bara lifandi eða dautt og jafn gott sem slíkt?

Þ.e. er ferskt ger eitthvað issue?

Re: [Óska eftir] WY3068 geri - krukku eða nýju

Posted: 21. May 2013 12:59
by hrafnkell
gugguson wrote:Varðandi "ferskt ger".

Ef ger er lifandi en gamallt og maður setur það í gegnum stir-starter og nær upp eins miklu geri og nýr pakki - getur maður þá verið með verra ger, eða er það bara lifandi eða dautt og jafn gott sem slíkt?

Þ.e. er ferskt ger eitthvað issue?
Ef maður gerir starter og gerið sem maður gerir starter úr hefur ekki lent í slæmum skilyrðum þá er starter nóg til að fjölga frumunum.

Slæm skilyrði geta verið:
Löng geymsla / Aldur
Hitastig í geymslunni
Mikið af humlum (ef endurnýtt/þvegið)
Hátt gravity (ef endurnýtt/þvegið)
Hitastig í gerjun (ef endurnýtt/þvegið)
Fjöldi lagna (ef endurnýtt/þvegið) - Venjulega er ekki talað um að það sé æskilegt að endurnýta ger í meira en 4-5 kynslóðir, gefið að hreinlæti og allar aðstæður séu 100% auðvitað.

Slæm skilyrði geta þýtt stökkbreytingar og þá dugar starter ekki til að koma gerinu "í lag".

Ferskt segir í raun mest til um frumufjöldann, ef gerið hefur verið geymt á réttan hátt.

Re: [Óska eftir] WY3068 geri - krukku eða nýju

Posted: 21. May 2013 13:30
by gugguson
Takk fyrir svarið.

Ef maður er með óopnaðann poka sem hefur lent í hita (slæm skilyrði), en maður nær samt að koma gerjun af stað með pokanum (og koma frumufjölda upp í það sem maður þarf) - er þá gerið verra en í nýjum poka?

J
hrafnkell wrote:

Posted: 21. May 2013 13:41
by hrafnkell
gugguson wrote:Takk fyrir svarið.

Ef maður er með óopnaðann poka sem hefur lent í hita (slæm skilyrði), en maður nær samt að koma gerjun af stað með pokanum (og koma frumufjölda upp í það sem maður þarf) - er þá gerið verra en í nýjum poka?

J
Líklega ef til vill. Kemur í ljós ef þú lætur reyna á hann :) Ef hann var í lengri tíma í hita og einhverju veseni þá myndi ég persónulega ekki leggja eitt batch undir að hann væri í lagi.

Re: [Óska eftir] WY3068 geri - krukku eða nýju

Posted: 22. May 2013 14:05
by sigurdur
Þú getur prófað mini batch (5L) sem hluti af step-up. Svo prófaru bara að smakka bjórinn sem verður til úr þessu.
Þetta er samt komið út fyrir topic ;)

Re: [Óska eftir] WY3068 geri - krukku eða nýju

Posted: 22. May 2013 14:35
by hrafnkell
sigurdur wrote:Þetta er samt komið út fyrir topic ;)
Bara smá... :)