Page 1 of 1
Hitastýring við Gerjun.
Posted: 5. May 2013 14:43
by Antonfr
Sælir, Hvernig stýrið þið hitastigi við gerjun? Ég var að spá í að útbúa mér frystikistu en hvaða aðferðum hafa menn verið að beita? og hvaða búnað hafa menn verið að nota til að stýra hita inn í frystikistunum?
ég er nú búinn að græjja mig upp að einhverju leiti, komin með BIAB kerfi, plasttunna frá Brew.is, kælispíral, og svo gerja ég í einangraðri 60L glerflösku.
PS; ætli hægt sé að nota STC hitastýringu frá BREW.is til að stýra rafmagnsofni og kælipressu?...
Anton.F
Re: Hitastýring við Gerjun.
Posted: 5. May 2013 15:03
by flokason
Ég er með frystikistu og STC stýringu frá brew.is
Það er hægt að nota ljósaperu til að hita hana, hafa þá peruna í málm málingardollu eða potti, til að lýsa ekki á bjórinn.
Frystikistur eru svo vel einangraðar að 100w ljósapera í potti er meira en nóg til að hita kistuna upp (jafnvel minni pera, ég prufaði 100w peru og hún virkaði fínt)
Frystikistan er þá bara tengd í Cold og peran í Hot svo límir maður hitaneman á gerjunartunnuna (með einangrun við hitaneman svo maður mæli ekki hitan í kistunni sjálfri, heldur bara gerjunartunnunni.
Svo stillir maður bara hitann og hitafrávikið sem þú leyfir og ert good to go.
Re: Hitastýring við Gerjun.
Posted: 5. May 2013 22:42
by Antonfr
Já þetta er sennilegast málið, með litlum tilkostnaði getur maður þá komið gerjunninni fyrir og haft engar áhyggjur af henni á meðan.
Ljósapera er náttúrulega Brilliant!
Takk. ég er að útbúa mitt fyrsta kerfi og ákvað að ganni að henda í eina Bee-Cave uppskrif á meðan ég væri að klára að smíða restina af kerfinu, vinnan sem hefur farið í að halda réttu hitastigi er allt of mikil og hittinn virðist rokka um 5°dag og nótt.. ( ég stór efa að þetta verði mönnum bjóðandi)

en það á nú eftir að koma í ljós..
kv.Anton F