Page 1 of 1

Münchner Helles

Posted: 11. Aug 2009 22:25
by Oli
Ég setti saman uppskrift að lager, á að vera í helles stíl. Er að notast við það efni sem ég á, það hefði líklega verið betra að nota ljósara pilsner malt sem grunn, en það verður að bíða næstu ferðar í Ölvisholt.

Ætla að henda gerinu í frekar heitan virt miðað við lager, svona um 18 gráður og henda svo í bjórkælinn og láta gerjast við um 9-11 gráður í 2-3 vikur, lagering fer svo fram við ca. 3 gráður í amk 4 vikur.
23 lítra skammtur
4,00 kg Pale Malt (Weyermann) (3,3 SRM) Grain 82,47 %
0,45 kg Munich I (Weyermann) (7,1 SRM) Grain 9,28 %
0,20 kg Caramel Malt - 10L (Briess) (10,0 SRM) Grain 4,12 %
0,20 kg Carapils (Briess) (1,5 SRM) Grain 4,12 %
1,00 oz Hallertauer Mittelfrueh [4,00 %] (60 min) Hops 12,1 IBU
1,00 oz Hallertauer Hersbrucker [3,80 %] (15 min) Hops 5,7 IBU
0,25 tsp Irish Moss (Boil 10,0 min) Misc
2 Pkgs SafLager German Lager (DCL Yeast #S-189) Yeast-Lager
OG áætlað um 1.050
FG áætlað um 1.012
IBU um 19
litur 5,5 SRM
Ætla að nota tvöfalda skammtaskolun sem skilaði ágætis nýtni síðast eða um 77%.

Alla ábendingar vel þegnar

Re: Münchner Helles

Posted: 23. Mar 2010 10:18
by Oli
Gerði aðra uppskrift að Helles nú um helgina, að grunninum til er hún hér http://beerdujour.com/Recipes/Jamil/The ... elles.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Í þessari uppskrift er ekkert karamellu malt, enda á það víst ekki heima í þessum stíl skv. Jamil.
Ég átti að vísu ekki Melanoidin malt sem eykur víst bragðfyllingu, ég sleppti því bara og prófaði í staðinn að gera decoction (hlutsuða á) meskingu í fyrsta skipti, sem á að gefa meiri fyllingu/bragð en venjuleg single infusion mesking. Meskingin gekk ekki vandræðalaus fyrir sig en það var gaman að prófa og verður gaman að athuga hvort maður finni mun á bragði.
Mæli með því að lesa þetta til að kynna sér decoction meskingu ef einhver hefur áhuga:
http://braukaiser.com/wiki/index.php?ti ... on_Mashing" onclick="window.open(this.href);return false;
Svo átti ég smávegis af þvegnu s-23 geri, gerði starter daginn áður, hefði þurft lengri tíma til að byggja hann upp.
Gerjun við 8-10°c í 2 vikur, virtirinn var við 10 gráður sem og starter þegar gerinu var hellt í.

Re: Münchner Helles

Posted: 28. Mar 2010 14:19
by BeerMeph
Oli wrote:Gerði aðra uppskrift að Helles nú um helgina, að grunninum til er hún hér http://beerdujour.com/Recipes/Jamil/The ... elles.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Í þessari uppskrift er ekkert karamellu malt, enda á það víst ekki heima í þessum stíl skv. Jamil.
Ég átti að vísu ekki Melanoidin malt sem eykur víst bragðfyllingu, ég sleppti því bara og prófaði í staðinn að gera decoction (hlutsuða á) meskingu í fyrsta skipti, sem á að gefa meiri fyllingu/bragð en venjuleg single infusion mesking. Meskingin gekk ekki vandræðalaus fyrir sig en það var gaman að prófa og verður gaman að athuga hvort maður finni mun á bragði.
Mæli með því að lesa þetta til að kynna sér decoction meskingu ef einhver hefur áhuga:
http://braukaiser.com/wiki/index.php?ti ... on_Mashing" onclick="window.open(this.href);return false;
Svo átti ég smávegis af þvegnu s-23 geri, gerði starter daginn áður, hefði þurft lengri tíma til að byggja hann upp.
Gerjun við 8-10°c í 2 vikur, virtirinn var við 10 gráður sem og starter þegar gerinu var hellt í.
Gerðirðu single Decotion?

Re: Münchner Helles

Posted: 28. Mar 2010 19:42
by Oli
já, single decoction.

Re: Münchner Helles

Posted: 28. Mar 2010 20:14
by BeerMeph
Geriru þá svipað og single decoction eins og grafð í linknum þínum sýnir, prótein og sykur rest?

Re: Münchner Helles

Posted: 28. Mar 2010 20:31
by Oli
já fyrsta hvíld við 50° og svo við 66°c að mig minnir.

Re: Münchner Helles

Posted: 28. Mar 2010 21:45
by BeerMeph
Er þá bara bætt út í útreiknuðu magni af vatni með útreiknuðu hitastigi?

Re: Münchner Helles

Posted: 29. Mar 2010 11:14
by Oli
Það er hægt að nota beersmith til að reikna út vatnið.
Ef þú ætlar í single decoction geturðu farið tvær leiðir, þú getur byrjað í rúmlega 50°c fyrir prótein hvíld en það er kannski ekki nauðsynleg, og tekið svo decoction til að hækka hitann upp í 66-68°c í 45-60 mín.

Getur líka byrjað meskingu eins og venjulega infusion meskingu við 66-68 °c í 60 mín og tekið svo single decoction til að ná í mashout í 75°c ca.
Málið er að lesa sér til og velja svo þá leið sem þú telur henta í hverju tilviki.

Re: Münchner Helles

Posted: 29. Mar 2010 11:35
by Eyvindur
Beermeph, ertu nokkuð að rugla saman decoction og step mashing? Decoction er flóknara ferli en bara að bæta vatni við.

Re: Münchner Helles

Posted: 30. Mar 2010 10:49
by BeerMeph
Nei ég held ekki, ég var bara ekki viss um hvernig hækkað var hitastigið á milli resta. Er ekki tekið hluta af korninu og það látið sjóða og svo er því blandað aftur saman?

Re: Münchner Helles

Posted: 30. Mar 2010 11:57
by Eyvindur
Jújú... Mig grunaði að þetta væri á hreinu, en ég var ekki viss... Vildi fyrirbyggja misskilning. ;)

Re: Münchner Helles

Posted: 30. Mar 2010 15:14
by BeerMeph
Misskilningur er gífurlega öflugt fyrirbæri! 8-)

En mig vantar samt ennnþá svarið við því hvernig er hitað á milli resta? er það soðna kornið sem sér um hitunina eða er heitara vatni bætt við?

Re: Münchner Helles

Posted: 30. Mar 2010 15:48
by Oli
já í einföldu máli þá tekurðu hluta af korninu (með smá vatni) úr meskingu og sýður það, bætir svo út meskingu aftur til að ná hitanum upp.

Re: Münchner Helles

Posted: 30. Mar 2010 17:24
by BeerMeph
Oli wrote:já í einföldu máli þá tekurðu hluta af korninu (með smá vatni) úr meskingu og sýður það, bætir svo út meskingu aftur til að ná hitanum upp.
Ah.. ok þá er það orðið skírt!