Page 1 of 1
Sirka öl
Posted: 17. Mar 2013 10:57
by Bjössi
Henti í eina hræru í gær sem var svona sirka....var ekki með beersmith og nennti ekki að vikta humla
um 12kg af Pale
sirka 1kg Munic 1
tæp lúka af Magnum 60min
Lúka af Saas 40min
Lúka af Saas 20 min
Lúka af Saas 10 min
góð lúka Boadicea asamt einhverjum slatta af Saaz
úr kom rúmur 45ltr af virti og 1.068
Notaði tvö bréf S-4 og 1 bréf S-23
þessi verður forvitnilegur eftir um 2 mán
Re: Sirka öl
Posted: 17. Mar 2013 17:55
by Proppe
Það væri hræðilegt ef hann reynist svo góður.
Þú verður í bölvuðu klandri að kópera hann aftur...
Re: Sirka öl
Posted: 17. Mar 2013 21:27
by Bjössi
ef verður góður þá geri ég einfaldlega eitthvað svipað, og ölið verður líka gott, bara ekki eins

Re: Sirka öl
Posted: 17. Mar 2013 21:51
by Plammi
First að þetta er allt mælt í lúkum þá verður hann ekkert í vandræðum að endurgerann nema hann missi hendurnar...
Re: Sirka öl
Posted: 25. Mar 2013 15:04
by Bjössi
var að færa yfir í second. í gær, þessi virðist bara ætla verða fínasta öl, en mun þurrhumla sennilega með Boadicea
líklegt að ég endurtaki þennan, þá með sirka aðferð
Re: Sirka öl
Posted: 25. Mar 2013 20:20
by Idle
Sirka, slatti, ögn og lús,
slumma af geri og korni.
Mungát þessa mun ég fús,
mjatla á í mínu horni.
Eða eitthvað í þá áttina. Panta smakk ef þú átt leið í bæinn, væni!

Re: Sirka öl
Posted: 26. Mar 2013 21:19
by Bjössi
heheh...goður, en ef smakk þá verður að vera smakk hjá mér í njarðvík, er algörlega hættur að setja í flöskur