Page 1 of 2
HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 9. Aug 2009 20:01
by sigurdur
Ég er búinn að vera aðeins að skoða hvað fólk hefur verið að gera með suðupotta og slíkt úti í heimi, og hef séð nokkra sem að nota hitaelement til þess að hita upp vatn og virti.
Ég er að spá hvort að maður geti ekki útbúið heitavatnsketil, meskitunnu og suðupott úr plastfötum sem að eru jafnvel ofan í öðrum fötum með polyurethan frauðplasti á milli (soudafoam), sjá teikningu hér að neðan
Ég fann líka ágæta lýsingu um
plast ketil
Hvað finnst ykkur?
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 9. Aug 2009 23:15
by andrimar
Hér er gæji sem setur 2-3 hitaelement úr hraðsuðukötlum í síldartunnu.
Þetta hlýtur að vera hægt. Gæti samt verið smá vinna. Það er að finna tvö ílát á góðu verði sem eru í þessum stærðum og svo held ég það þyrfti slatta af frauði þarna á milli.
Fleiri pælingar einhverjir?
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 9. Aug 2009 23:32
by Hjalti
Er einhver ástæða afhverju þú villt hafa pottinn einangraðan með polyethylene frauði?
Er ekki nóg að hafa pottinn einfaldan? Bara til að einfalda smíðinn?
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 9. Aug 2009 23:55
by sigurdur
Tilgangurinn með frauðinu er þrefaldur, fyrst þá getur það þjónað sem hraðaaukning til hitunar á virti/vatni (eða í meskjun, miðað við að það sé álíka lok sem að yrði smíðað), það verður ekki eins mikið hitatap og þegar þú ert ekki með frauð (minna flatarmál til að kæla), svo er það bara svo flott að sjá öll áhöldin til bruggunar að þau líti eins eða mjög svipað út.
En það getur trúlega flýtt vel fyrir smíðun að hafa þetta einfalt. Það þyrfti bara að redda sér hitaelementum.
Andri Mar, þetta er mjög töff hjá kauðanum. Verst bara að maður veit ekki hvar hægt sé að finna þessar síldartunnur í dag .. notað hjá fiskverksmiðjum kanski?
Einnig voru flott hitaelementin úr hraðsuðukötlunum .. á einmitt einn svona sama módel sem að ég skoðaði fyrr í dag til þess að tæta.
Ef ég finn einhverja ódýra leið fyrir tunnur, þá er trúlega gaman að smíða 2 svona system, eitt einangrað og annað án .. bera svo saman muninn...
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 10. Aug 2009 00:51
by Eyvindur
En athugaðu að einangrunin virkar í báðar áttir. Það tekur lengri tíma að hita virtinn, en að sama skapi gæti tekið allt of langan tíma að kæla hann. Ég er með pott sem er með lágmarkseinangrun (loftrými á milli ál- og járnlags upp á 2-4 cm giska ég á), og tek eftir því að kælingin tekur töluvert lengri tíma en áður (tengist því reyndar líka að elementin eru svolitla stund að kólna). Ef þú ert með mjög mikla einangrun gæti verið óheppilega seinlegt að kæla virtinn niður að suðu lokinni, sýkingarhætta gæti aukist og það er óvíst að tímasparnaðurinn verði mikill þegar upp er staðið. Ekki það að mér finnist þetta neitt slæm hugmynd, en þú skalt hafa þetta í huga.
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 10. Aug 2009 09:01
by sigurdur
Auðvitað virkar einangrunargildið í báðar áttir, en það eru tvær leiðir færar til þess að bæta úr því (ég hafði nú ekki hugsað mér um að setja þetta í vatnsbað til að kæla

), immersion chiller (þá myndi hitaelementið vissulega hafa einhver neikvæð áhrif á tímann sem að tekur að kæla, en ekki endilega mjög mikil) og counterflow chiller.
Ég veit ekki hvort að ég muni nenna að útbúa counterflow chiller þannig að þegar kemur að því að ég muni smíða þetta, þannig að tilraunir verða gerðar með immersion chiller ef ég kem mér í það að finna allt efnið í að útbúa þetta...
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 10. Aug 2009 09:19
by Eyvindur
Ég var að tala um bara með notkun immersion chiller. Einangrunin mun hægja talsvert á kælingunni. Hversu mikið veit ég ekki, en hafðu þetta í huga.
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 10. Aug 2009 09:26
by Hjalti
Spurning um að "modda" svona gerjunartunnu eða síldartunnu og breyta henni í svona tæki... Spurning bara með kælinguna. Ég er í helvítis veseni að komast í kallt vatn í íbúðinni hjá mér. En ég myndi þurfa rúmlega 10 metra slöngu til að tengja vatn við Immersion Chiller þar sem að kranin minn í eldhúsinu hefur engan áhuga á svonalöguðum tengingum

Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 10. Aug 2009 10:35
by Eyvindur
Þú getur fengið hulsu til að smeygja yfir kranann, sem þú getur svo smellt garðslöngu á. Ég er með þannig í skúrnum hjá mér, á venjulegum eldhúskrana.
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 10. Aug 2009 10:54
by Hjalti
Ég er með svona sturtuhaus á krananum mínum í eldhúsinu sem er ekki auðfjarlægjanlegur.
Þannig að ég verð að draga þetta úr þvottahúsinu hjá mér.
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 10. Aug 2009 10:55
by sigurdur
Er ekki uppþvottavélatengi í skápnum undir vaskinum hjá þér?
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 10. Aug 2009 11:16
by sigurdur
Ég gerði nokkrar fyrirspurnir og leitir að síldartunnum og fann stað sem að er með nýjar tunnur á lítinn pening.
Það er Saltkaup í Hafnarfirði, og hálf síldartunna (60 lítra) er á 2677 með vsk.
Ég held að ég sé búinn að finna framtíðar ílátabirginn minn

Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 10. Aug 2009 12:19
by andrimar
Svakalega lýst mér vel á þetta, væri ómetanlegt ef við gætum farið að skrásetja svona byggingar og síðan sett saman í "Ódýrt brugghús án þess að panta að utan" pdf skjal?
Góð hugmynd?
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 10. Aug 2009 12:33
by Hjalti
Úrvals bara!

Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 10. Aug 2009 13:52
by Öli
Passa bara að síldartunnan sé ný. Annars geturuð bara drukkið bjórinn með rúgbrauði og síld

Held það sé ógerningur á ná lyktinni úr þeim eftir síldarmarineringu.
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 10. Aug 2009 14:58
by sigurdur
Í
þessum hlekk þá má sjá að þessi fékk gamlar síldartunnur og það var ekkert mál að þrífa þær.
En nýjar(býst ég a.m.k. við) síldartunnur kosta ekki neitt neitt eins og ég greindi frá áðan, birgirinn er innflytjandi á tunnum fyrir sjávarútveg.
sigurdur wrote:Ég gerði nokkrar fyrirspurnir og leitir að síldartunnum og fann stað sem að er með nýjar tunnur á lítinn pening.
Það er Saltkaup í Hafnarfirði, og hálf síldartunna (60 lítra) er á 2677 með vsk.
Ég held að ég sé búinn að finna framtíðar ílátabirginn minn

Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 11. Aug 2009 15:07
by Hjalti
sigurdur wrote:Er ekki uppþvottavélatengi í skápnum undir vaskinum hjá þér?
Nei, engin uppþvottavél eða tengi fyrir þanniglagað á heimilinu

Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 11. Aug 2009 15:10
by Hjalti
Spurning hvort saltkaup gefi okkur smá afslátt ef við kaupum nokkrar svona tunnur hjá þeim

Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 11. Aug 2009 16:17
by sigurdur
Það er alveg hugsandi að það geti gerst, en þetta eru nú ekki dýrar tunnur .. elementin eru dýrari því miður. (miðað við að maður ætli að hafa 2 tunnur með 2KW[1650 raunwött] elementum).
Sjá
þessa reiknitöflu.
Ef maður ætlaði að hafa 6 element, þá þýðir það 6*3þúsund = 18 þúsund fyrir element per system.
Tunnurnar eru hinsvegar 2600 * 2 = 5200 gróflega.
Svo rakst ég á suðureiknivél
hérna sem að er ansi sniðug ... ég er mikið að spá í tveggja brennara kerfi til að byrja með og útbúa ~20 lítra skammta þar til að maður á fyrir fleiri hitakönnum ...
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 11. Aug 2009 16:20
by Hjalti
Eru 3 element ekki alveg nóg fyrir þetta? Það gefa 6000W ef þú rífur þetta úr ódýrum hraðsuðukatli....
Þá ertu að sjóða 30L af vatni á hálftíma....
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 11. Aug 2009 16:29
by Eyvindur
Væri ekki líka bara hægt að finna ónýtar þvottavélar og rífa úr þeim elementin? Þau eru trúlega stærri um sig og þar af leiðandi "low density", og því minni hætta á að brenna virtinn. Og ég er nokkuð viss um að í Sorpu gætuð þið komist í ónýtar vélar og rifið elementin úr.
Bara hugmynd. Þetta var það sem ég ætlaði að gera, þegar ég var að íhuga að smíða svona.
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 11. Aug 2009 16:31
by sigurdur
3 element per tunnu ætti að vera nóg, en ætlaru að hita vatnið og virtinn í sama potti? (kanski hagstæðast að byrja þannig þó ...)
En þú mátt samt ekki reikna með 2000W í hitun .. meir að segja þá held ég að þú náir ekki svo miklu í rafmagnseyðslu, þó að það sé sagt að þetta sé 2000W.
Elementin í þessu eru með mikla þéttni (mörg wött per cm^2), og það gæti **kanski** valdið bruna. En þau eru gefin frá 1850W - 2250W, þó að það sé mjög mikil bjartsýni á ódýrt element.
Það er spurning með að leita að elementum fyrir svona heitavatnstanka (man ekki hvað þetta kallast í augnablikinu). Gæti verið ódýrari
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 11. Aug 2009 20:52
by Hjalti
Mér fynnst ekkert mál að hita vatnið fyrir meskinguna í sama keri og hafa bara eina millitunnu þar á milli. Allavega á meðan að ég er að byrja á þessu. Nenni ekki einhverju heljarinnar "riggi" bara í minna lagi og hreyfanlegt.
Jafnvel hægt að hita skolvatnið á hellu hliðiná.... sé ekki að þetta þurfi að vera alveg 2 risa einangraðar fötur eginlega

Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 11. Aug 2009 21:33
by sigurdur
Því miður þá tel ég að venjulegar heimilisþvottavélar séu almennt ekki með meiri orkutöku heldur en 2000W, þó er gott að ef maður finnur 3 slík að nota þau.
Ég verð að setja smá viðvörun í þráðinn, ef einhver hefur í hyggju að útbúa svona tæki, þá þarf að huga vel að rafmagninu sem að veitir allan þennan straum.
Ef við miðum við allra bestu aðstæður, og svona tæki tekur virkilega 2000W miðað við 230V, þá má ætla að straumtakan á einu svona stykki sé 8.7A [26.45 ohm mótstaða í elementinu] ef það nær fullri straumtöku (enn og aftur, ég efast um að það sé straumurinn sem að tækið tekur).
[grunnur í rafmagnsstærðfræði]
Ef húsið þitt er 220V (tvö útsláttaröryggi fyrir hverja grein, gamla kerfið ..) eins og mitt, þá fer tækið að taka 8.3A, og þar af leiðandi 1830W.
Ef húsið þitt er 240V (eitt útsláttaröryggi fyrir hverja grein, nýja kerfið ..) þá fer tækið að taka 9.1A og þar af leiðandi 2178 W.
Á þessum elementum stendur að þau séu fyrir 220-240 V, og taki 1850-2200W.
[/grunnur í rafmagnsstærðfræði]
Þetta miðast við að þú ætlir að nota eitt element. Ef þú ætlar að nota tvö element, þá getur þú tvöfaldað straumtökuna og útbúið öll öryggi samkvæmt því.
Öryggjastærðir:
Til eru 4 almennar stærðir á öryggjum í húsi hjá fólki, 10A, 15/16A, 20A og 25A (32A handa þeim sem að hafa stærri heimtaugar býst ég við).
Víraþykkt:
Það eru notaðar nokkrar þykktir af vírum þegar lagt er í heimahús, 1q, 1.5q og 2.5q. (q er mælieining yfir mm²)
1q er mjög lítið og gæti verið notað fyrir 10A lagnir í gömlum húsum, ekki treysta þessum.
1.5q er mjög algengt í dag fyrir 10A, minna algengt fyrir 16A lagnir í dag.
2.5q er mjög algengt í dag fyrir 16A lagnir í dag, stundum(?) notaðar í 20A lagnir.
Fjöldi elementa, straumtaka, öryggjakrafa og víraþykkt:
1 element = straumur er 8.3A-9.1A, þörf á 10A öryggi, 1.5q vír.
2 element = straumur er 16.6A-18.2A, þörf á (16A)20A öryggi, 2.5q vír að lágmarki.
3 element = straumur er 24.9A-27.3A, þörf á (25A)30A öryggi, 4q vír að lágmarki. Fáðu þér fagmann í verkið.
Enn og aftur þá ætla ég að nefna að það þessi 2000W element taka að öllum líkindum ekki 2000W eins og auglýst er.
Svo þarf auðvitað að nefna það að rafmagn getur drepið þig, vertu viss um hvað þú ert að gera.
Re: HDPE plastfötur sem suðupottar?
Posted: 11. Aug 2009 22:19
by sigurdur
Meiri útreikningar .....
Smá forsendur:
Ég áætla að eitt element í mínu húsi muni taka 1700W.
Ég áætla einnig að ég muni nota 2 element til þess að hita upp vatn/virt sem þýðir 3400W af rafmagnsnotkun.
Ég áætla að 95% af því breytist í hita (ég er bjartsýnismaður).
Kalda vatnið sem að kemur úr krananum hjá mér eru 7°c.
Samkvæmt
http://www.phpdoc.info/brew/boilcalc.html þá yrði ég 42 mínútur að hita upp vatn úr krana og upp í 71°c með þessu kerfi á fullum krafti. Svo tæki það 34 mínútur að ná virtinum úr 50°c og upp í 102°c.
Þegar það eru komnir 50 lítrar (og 90% efficient) í þetta þá tæki það 74 mínútur að ná úr 7°c í 72°c og 59 mínútur að ná úr 50°c í 102°c.
Ég held barasta að tvö element er nóg til að byrja með, en gott að bæta við þriðja ef maður ætlar að gera stærri skammta. (svo og nota auðvitað þriggja fasa rafmagn, 3x10A ef maður er með 3 fasa inn í hús)