Page 1 of 1
Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 11. Feb 2013 12:51
by halldor
Nú fer að styttast í bjórgerðarkeppni Fágunar 2013. Þetta árið verður úrslitakvöldið haldið
laugardaginn 13. apríl
Gert er ráð fyrir að skila þurfi innsendingum fyrir 11. apríl
Sérstakur fókus verður á allar gerðir IPA í ár og verður sérstakur IPA flokkur sem allir IPA lenda í.
Hér má sjá nánari útlistun á IPA flokkunum:
http://www.bjcp.org/2008styles/style14.php" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;
Flokkarnir eru:
1. IPA - allar týpur af IPA
2. 5,999% alc/vol og undir
3. 6% alc/vol og yfir
Eins og fyrri ár er ein frí innsending fyrir meðlimi, en 1500 kr. á hverja innsendingu eftir það.
Einnig er frítt inn á úrslitakvöldið fyrir meðlimi en kostar 1500 kr fyrir aðra
Allt útlit er fyrir að lokakvöldið verði haldið á KEX líkt og í fyrra og við gerum ráð fyrir að hafa nóg af fríum bjór fyrir alla (að því gefnu að brugghús landsins verði jafn gjafmild og í fyrra).
Nánari upplýsingar um þennan viðburð koma í nýjum þræði á allra næstu dögum. Endilega póstið spurningum, hugmyndum hér í þráðinn ef ykkur sýnist
f.h. stjórnar
Halldór
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 11. Feb 2013 14:58
by bergrisi
Frábært. Þetta er líka fríhelgi hjá mér svo ég mæti.
Vona að IPA bjórinn sem ég var að gera í gær komi vel út.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 15. Feb 2013 00:10
by halldor
Ég vil benda mönnum á að taka frá kippu af þeim bjórum sem þeir hyggjast senda í keppnina.
Að öllum líkindum þarf 6 x 330 ml flöskur að lágmarki.
Koma svo... brugga!
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 16. Feb 2013 13:21
by Oli
Vestfirðingarnir stefná á að mæta í ár.
En maður spyr sig hvort það sé ekki feykinóg að senda inn 4x330 ml flöskur, ætti að duga fyrir dóma og vel það?
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 17. Feb 2013 20:36
by gm-
Hmm, spurning um að reyna að senda inn IPAinn minn, hefur einhver reynt að senda heimabrugg í pósti til landsins?

Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 17. Feb 2013 21:19
by hjaltibvalþórs
gm- wrote:Hmm, spurning um að reyna að senda inn IPAinn minn, hefur einhver reynt að senda heimabrugg í pósti til landsins?

Ég veit amk. um marga sem reyna að koma öðrum ólöglegum vímugjöfum hingað til lands

.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 18. Feb 2013 00:17
by hrafnkell
Líklega ekkert stórmál að senda það hingað, en spurning hver vill borga áfengisgjöldin og svona. Fer líka eftir því hvaða tollara maður lendir á... Líklega ekki þess virði að reyna

Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 18. Feb 2013 00:31
by bergrisi
Ég veit amk. um marga sem reyna að koma öðrum ólöglegum vímugjöfum hingað til lands
Ég held að þú sért í slæmum félagsskap.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 18. Feb 2013 01:19
by hjaltibvalþórs
bergrisi wrote:Ég veit amk. um marga sem reyna að koma öðrum ólöglegum vímugjöfum hingað til lands
Ég held að þú sért í slæmum félagsskap.
Hmmm kannski ekki besta leiðin til að orða þetta hjá mér. Þekki þá vitanlega ekki persónulega

.
Annars var spurt um innflutning á heimabruggi í öðrum þræði og svar tollayfirvalda var: "Það er ekki heimilt að koma með heimalagað". Ég veit ekki hvort það nái yfir sendingar til annara samt.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 18. Feb 2013 20:19
by gunnarolis
Lendir IPA sjálfkrafa bara í IPA flokknum.
Segjum að maður bruggi 10% IIPA, á hann engan séns á að vinna í stóra flokknum?
Venjulegur 5-6% IPA á frekar lítinn séns í flokki ef hann er flokkaður með IIPA, eru þeir saman í flokki samt?
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 18. Feb 2013 22:54
by hrafnkell
Verða einhverjir flokkar fyrir utan IPA? Eða eru bara nokkrir IPA flokkar og málið dautt?
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 20. Feb 2013 22:10
by karlp
hrafnkell wrote:Verða einhverjir flokkar fyrir utan IPA? Eða eru bara nokkrir IPA flokkar og málið dautt?
dislike!
more info on what the other gravity breaks will be please!
can we please also see about just requiring 4x330ml?
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 22. Feb 2013 14:28
by hrafnkell
Nú eru um 1.5 mánuður í úrslitakvöldið og engar almennilegar upplýsingar komnar um flokkana... Hvað tefur? Ef flokkarnir verða eins í fyrra + IPA flokkur er ekki fínt að koma því á framfæri?
Það væri voða næs að fá svona á hreint með betri fyrirvara... Það er seinasti séns að fara að brugga eitthvað í keppnina núna á næstu dögum. Og stór flokkur er væntanlega out nema fyrir fólk sem á eitthvað fyrir.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 22. Feb 2013 15:21
by Oli
Sammála þeim tveimur hér á undan

Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 25. Feb 2013 17:59
by halldor
Flokkarnir eru...
1. IPA - allar týpur af IPA
2. 5,999% alc/vol og undir
3. 6% alc/vol og yfir
Svo vill stjórnin taka það fram að, fyrir utan bjór á bilinu 5,999% - 6,000%, munu þessir flokkar taka við ÖLLUM bjórum, þannig að það er óþarfi að hafa áhyggjur.
RDWHAHB
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 25. Feb 2013 18:11
by halldor
gunnarolis wrote:Lendir IPA sjálfkrafa bara í IPA flokknum.
Segjum að maður bruggi 10% IIPA, á hann engan séns á að vinna í stóra flokknum?
Venjulegur 5-6% IPA á frekar lítinn séns í flokki ef hann er flokkaður með IIPA, eru þeir saman í flokki samt?
Afsakaðu sein svör.
Já. IPA lendir sjálfkrafa í IPA flokknum sem grípur alla IPA.
10% IPA á ekki séns á að vinna stóra flokkinn, þar sem hann er í IPA flokki.... eeeeeeen hann á möguleika á að vera valinn bjór keppninnar (1st place overall)
Að sjálfsögðu myndum við vilja hafa 30 flokka en eins og gefur að skilja höfum við hvorki dómarafjölda, né fjölda innsendinga til að réttlæta það.
Vonandi svarar þetta öllu.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 25. Feb 2013 18:12
by halldor
hrafnkell wrote:Verða einhverjir flokkar fyrir utan IPA? Eða eru bara nokkrir IPA flokkar og málið dautt?
Afsakaðu sein svör.
1. IPA - allar týpur af IPA
2. 5,999% alc/vol og undir
3. 6% alc/vol og yfir
Yfir og út
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 25. Feb 2013 18:14
by halldor
karlp wrote:hrafnkell wrote:Verða einhverjir flokkar fyrir utan IPA? Eða eru bara nokkrir IPA flokkar og málið dautt?
dislike!
more info on what the other gravity breaks will be please!
can we please also see about just requiring 4x330ml?
Sorry for the delay...
See "gravity break" in above post.
Hopefully we can make due with 4x330ml bottles, but don't count on it. So please put aside 6x330ml bottles to be sure to have enough.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 25. Feb 2013 18:15
by halldor
hrafnkell wrote:Nú eru um 1.5 mánuður í úrslitakvöldið og engar almennilegar upplýsingar komnar um flokkana... Hvað tefur? Ef flokkarnir verða eins í fyrra + IPA flokkur er ekki fínt að koma því á framfæri?
Það væri voða næs að fá svona á hreint með betri fyrirvara... Það er seinasti séns að fara að brugga eitthvað í keppnina núna á næstu dögum. Og stór flokkur er væntanlega out nema fyrir fólk sem á eitthvað fyrir.
Eins og alltaf höfum við haft category-urnar þannig að þær grípi alla bjóra. Það verður engin breyting á þetta árið né heldur hefur það verið gefið í skyn.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 11. Mar 2013 22:36
by ulfar
Var að tappa eina bjórnum sem ég á. Nú hafa gerlarnir einn mánuð + 2 daga til þess að búa til kolsýru. Krossa fingur að hann bragðist vel.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Posted: 14. Mar 2013 11:03
by Oli
ulfar wrote:Var að tappa eina bjórnum sem ég á. Nú hafa gerlarnir einn mánuð + 2 daga til þess að búa til kolsýru. Krossa fingur að hann bragðist vel.
Ef það þarf að senda bjórana inn 3.apríl hlýtur að vera forkeppni helgina 6-7 apríl eða hvað?.
Gerlarnir þurfa því að vinna hraðar!
