Page 1 of 1
stjáni
Posted: 6. Aug 2009 17:01
by kristfin
sælt veri fólkið.
ég heiti kristján og fer að nálgast fjórða tuginn á árum komanda.
í grunnskóla og menntaskóla var ég í allskonar víngerð, ekki bjór þó, þannig að ég hef prófað ýmislegt.
mitt áhugamál, innan bjórsins, eru goslitlir bjórar eins og london pride og aðrir sem þarf að pumpa í glasið, ekki sprauta! þessir bjórar gera manni það mögulegt að drekka meira án þess að það reyni um of á vömbina.
mig langar að fara í grain bjóra, þar sem í þessu eins og matargerð finnst mér skemmtilegra að vinna með grunnhráefni. ég hræðist ekkert tækjabúnaðinn, á eitthvað og get síðan smíðað úr ryðfríu það sem mig vantar.
er buinn að lesa yfir eitthvað á netinu, fann pdf útgafu af "how to brew" eftir john palmer og hef verið að glugga í
ég byrjaði nú aftur að pæla í þessu þegar ég sá þessa
stórsniðugu grein á instructables
i hvaða átt á ég að fara til að búa til góðan bitter?
get ég notað ölvisholtss hráefni í bitterinn?
a'einvher teikningu af svona kornmalara ef ég léti mér detta í huga að smíða svoleiðis?
Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 18:26
by Eyvindur
Heill og sæll og velkominn.
Það er ekkert mál að gera fyrirtaks bitter úr hráefnum frá Ölvisholti. Reyndar stendur það til hjá mér (veit ekki hvort hann verður alfarið úr ÖB hráefnum, en þykir það sennilegt). Ég skelli þá þeirri uppskrift hérna inn, eins og vaninn er.
Gúglaðu bara "build your own grain mill" og þá finnurðu örugglega góðar leiðbeiningar varðandi slíka smíði. Ég var einhvern tíma búinn að finna svoleiðis en er fyrir löngu búinn að týna því aftur. Virkaði of flókið fyrir föndurheftan mann eins og mig.
Vonandi nýturðu spjallsins hérna og hefur gagn og gaman af.
Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 19:32
by sigurdur
Að búa til kornmillu er ekkert mál ef þú hefur aðgang að rennibekk og átt eitthvað af gegnheilum málmi (þó þú getir notað stálrör) og er ég sjálfur búinn að vera að skoða þetta mikið upp á síðkastið.
Það er mjög einfalt að breyta pastavél í kornmillu, en það er auðvitað gott að geta 'hnúðað' rúllurnar (tígullaga hnúðun) til þess að ná gripi á korninu.
Ef þú hefur aðgang að rennibekk þá ertu nokkuð klár í slaginn.
homebrewtalk.com er mjög góð uppspretta fyrir diy verkefni og fullt af áhugaverðum diy kornmillum þar.
A.m.k., velkominn í hópinn.
Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 21:15
by Hjalti
Veistu um einhverjar sérstakar leiðbeiningar að því að breyta pastavél í kornmillu?
Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 21:28
by sigurdur
Búinn að vera að slefa yfir þessum leiðbeiningum ..
http://www.homebrewtalk.com/f11/using-p ... ain-75784/
Athugaðu að þetta eru 40 síðna spjallþráður.
Það virðist sem að það virki nokkuð vel að taka svona pastavél, stilla hana í þrengstu stillingu og láta borvél hakka á henni (nánari leiðbeiningar í spjallþræðinum) svo að keflin verði nægilega gróf til að geta gripið kornið, svo er bara að útbúa fæðihólf og haldara. No rocket science here.
Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 21:39
by Hjalti
Magnað... pastavélinn sem ég á hérna heima er samt eithvað sem kostaði einu sinni 15þ kall þannig að ég er ekki að fara að "modda" hana svona held ég

Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 21:40
by sigurdur
Notaru pastavélina þessa dagana í pastagerð?
Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 21:40
by Hjalti
Hef gert það öðru hvoru en ekki sérlega oft.... en ég tími samt ekki að skemma hana... hún er svo flott

Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 21:41
by sigurdur
getur keypt nýja á 10 þús

Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 21:50
by Hjalti
Hvar færðu pastavél á 10þ kall? Þetta er eithvað sem kostar í dag mikið meiri pening en það....
Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 21:53
by sigurdur
Pipar og salt í miðbæ reykjavíkur, 9900 staðgreitt. Handsnúin pastavél.

Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 21:58
by Andri
Ég er að pæla í að læra að sjóða, er búinn með rafvirkjann þannig að ég ætla að finna eitthvað annað skemtilegt til að læra.
Hvar myndirðu mæla með að læra þetta, ég hugsa að ég myndi bara vilja eitthvað svona suðukúrs og þarf líklega ekki neitt annað ... og ég kann að nota rennibekki.
En velkominn í hópinn, gaman að fá "gamla" bruggara inn.
Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 22:43
by kristfin
þú færð bara lánaðan transa eða hlífðargasvél og prófar þig áfram. ekkert mál að sjóða. kíktu á youtube.
fáðu samt einhvern til að skoða hja´þér áður en þú sýður vatns eða vökvaleiðslur. ég tók reyndar kúrs í þessu í fjölbraut fyrir mörgum árum af því mig vantaði einingar.
en ég hef aðgang að rennibekk og einhverjum afgöngum af járni. kannski að maður skoði þetta nánar.
ég er reyndar orðinn svo spenntur að leggja í að kannski fer bara svo að maður leggi í fyrstu umferð með maltextract.
en hlakka til að byrja aftur af krafti.
Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 22:54
by sigurdur
Andri, ef þú hefur klárað rafvirkjun, þá hlýturu að hafa þurft að klára smá suðu í grunndeildinni.
En ég mér skilst að það þurfi TIG suðu til þess að sjóða ryðfrítt, en það má vera að ég sé að rugla hlutum fram og til baka..
ódýrasta TIG suðuvélin sem að ég fann á íslandi var í kring um 40-50 þús, fullkomin fyrir lítil verkefni

Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 23:00
by kristfin
ef suðan á að vera falleg eða þegar maður er að sjóða þunnt þá þarf maður að tigga. en það eru til rústfríir pinnar líka, maður notar þá í jeppaferðunum eða þegar maður er með lélegat transa því þeir þurfa lága kveikispennu.
ég nota svona þegar ég er að sjóða saman mótórhjólin eða að föndra með járn svart og rústfrítt. þessi vél er hinsvegar jafnstraumsvél svo að ég get ekki soðið ál. það er næsta skref
get bæði tiggað og soðið með pinna. mér finnst svo gaman að sjóða með pinna að ég geri mikið af því. ég á reyndar líka hlífðargasvél, en ég lánaði hana. næ í hana fyrir veturinn. ég er líka með plasma skera sem ég nota við að skera út dót í málmi.
Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 23:30
by sigurdur
Ég held að þú sért búinn að redda þér framtíðarbruggi frá öllum sem þurfa að bæta við/breyta græjunum sínum ...
Re: stjáni
Posted: 6. Aug 2009 23:46
by Eyvindur
Nokkuð öruggt...
Re: stjáni
Posted: 8. Aug 2009 12:05
by Andri
Ég var bara settur í smá suðu þar, fór á smá kúrs í iðnskólanum hafnarfirði.. maður lærði nú ekki mikið þar.
Ég var settur í að búa til lítinn kubb sem var með 10cm hliðar..en rennibekks kennslan var mjög fín
Re: stjáni
Posted: 13. Aug 2009 23:57
by halldor
sigurdur wrote:Pipar og salt í miðbæ reykjavíkur, 9900 staðgreitt. Handsnúin pastavél.

Skemmtilegt hvernig svona kynningarþráður getur stökkbreyst á augabragði

Re: stjáni
Posted: 15. Aug 2009 10:22
by arnilong
halldor wrote:sigurdur wrote:Pipar og salt í miðbæ reykjavíkur, 9900 staðgreitt. Handsnúin pastavél.

Skemmtilegt hvernig svona kynningarþráður getur stökkbreyst á augabragði

Lol
