Page 1 of 1

Ryðfrítt stál

Posted: 5. Feb 2013 16:45
by Smári
Þið sem hafið smíðað ykkur suðupotta, hvar hafið þið fengið stál á sæmilegu verði?

Re: Ryðfrítt stál

Posted: 5. Feb 2013 17:19
by hrafnkell
Er hægt að fá stál á góðu verði? :) málmtækni og sindrason selja stál. Held að sindrason sé skömminni skárra en málmtækni.

Ég endaði á að kaupa bara pott (72 lítrar á 35þús) frekar en að smíða sjálfur. Ég hugsa að það hafi ekki verið langt frá því að borga sig. Klárlega ef maður telur vinnuna sína með.

Re: Ryðfrítt stál

Posted: 5. Feb 2013 19:23
by Smári
Ölgerðin mín væri fyrir löngu orðin gjaldþrota ef vinnan væri reiknuð með...

En ég er að hugsa um ca. 100 l. suðu og svo stórir pottar fást ekki víða og eru fjandanum dýrari.

Re: Ryðfrítt stál

Posted: 5. Feb 2013 19:26
by hrafnkell
Ég get reddað þér 100l potti á um 50þús. Þú hefur það amk á bakvið eyrað í efnisleitinni :)

Re: Ryðfrítt stál

Posted: 19. Feb 2013 13:07
by humlarinn
Ef að þið þurfið að kaupa eitthvað ryðfrítt hringið í okkur hjá GA Smíðajárn og biðjið þá um Kjartan Vídó og þið fáið góðan afslátt. Segið bara við mig að þið séuð að brugga og þá lækka ég verðið og gef ykkur góðan afslátt :-)

GA Smíðajárn: 5686844

Við erum með ryðfrían lager í Rauðhellu 2 í Hafnarfirði en aðalskrifstofan er í Skútuvogi 4 og getum við látið senda efnið þangað.

Re: Ryðfrítt stál

Posted: 19. Feb 2013 13:45
by hrafnkell
humlarinn wrote:Ef að þið þurfið að kaupa eitthvað ryðfrítt hringið í okkur hjá GA Smíðajárn og biðjið þá um Kjartan Vídó og þið fáið góðan afslátt. Segið bara við mig að þið séuð að brugga og þá lækka ég verðið og gef ykkur góðan afslátt :-)

GA Smíðajárn: 5686844

Við erum með ryðfrían lager í Rauðhellu 2 í Hafnarfirði en aðalskrifstofan er í Skútuvogi 4 og getum við látið senda efnið þangað.
Snillingur. Ég á klárlega eftir að angra þig einhvertíman á næstunni :)