Page 1 of 1
Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 30. Dec 2012 21:03
by bergrisi
Mig langar að kanna hvort það séu fleiri en ég og Feðgarnir sem erum í bjórgerðinni hérna á Suðurnesjum.
Hefði gaman af því að heyra í fleirum og jafnvel hittast og geta svo saman sótt hina ýmsu viðburði sem Fágun stendur fyrir. Eins og fundi og heimsóknir í brugghús. Getum jafnvel hist sér og aðstoðað hvor aðra og leiðbeint nýliðum hér á svæðinu.
Sendið mér póst eða skrifið eitthvað á þennan þráð ef þið hafið áhuga.
Er að vonast til að við séum fleiri hérna og gætum hjálpast að við að efla félagið okkar.
Re: Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 1. Jan 2013 19:31
by Kjartan
Ég bý í Reykjavík en brugga í Keflavík í bílskúrnum hjá tengdó...
Re: Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 1. Jan 2013 19:59
by bergrisi
Gaman að heyra. Er búinn að heyra í nokkrum. Held að við séum 8-10 hérna.
Stefni á að bjóða suðurnesjabruggurum í heimsókn. Gætum haft það sama dag og þú bruggar næst hérna í Keflavík.
Re: Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 1. Jan 2013 21:45
by Kjartan
Við erum heilmikið í Keflavík hjá tengdó þannig að segðu bara dagsetningu og ég mæti.
Re: Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 1. Jan 2013 23:29
by Bjössi
8-10 manna hópur... flott mál
átti von á færri væru á Suðurnesjum
Re: Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 22. Jan 2013 14:38
by Feðgar
Ég veit um tvo í garðinum frekar en sandgerði.
Þarf endilega að fara að reka annan til þess að skrá sig hérna, hress strákur sem er að vinna með mér.
Hugmyndirnar sem við ræddum í Borg voru spennandi, verðum endilega að koma þeim í gegn og taka hittng hérna fyrir sunnan.
Ég veit að við feðgarnir værum alveg til bjóða heim næst þegar við bruggum. Það gæti alveg eins verið næstu helgi. Væri gaman að sýna hvað við erum að gera og fá punkta frá öðrum.
Re: Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 22. Jan 2013 17:00
by bergrisi
Líst vel á það. Ég brugga alltaf í miðri viku svo það væri sniðugt að hitta á bruggdag hjá ykkur. Ég ræði við þá sem ég veit um.
Re: Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 22. Jan 2013 18:23
by freyr_man69
ég bý i kef og væri til í svona hitting er búinn að langa að hitta aðra bruggara og maður gæti lært eithvað nýtt

Re: Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 4. Apr 2013 12:44
by bergrisi
Sælir Suðurnesja bruggarar. Framundan er árshátíð okkar í Fágun og hvernig væri að fjölmenna á staðinn?
Endilega sendið mér póst ef þið hafið áhuga á að mæta.
Re: Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 5. Apr 2013 11:30
by Steinarr
Jámm við erum víst nokkrir, hérna á suðurnesjunum

... ég bý í Njarðvík og brugga þar með félaga mínum... en jámm það er alveg kominn tími á að maður láti sjá sig
kv. Steinar
Re: Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 5. Apr 2013 11:36
by halldor
Endilega kíkið á keppniskvöldið allir Suðurnesjamenn

Þetta verður svakalegt.
Re: Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 7. Apr 2013 20:33
by Feðgar
Við feðgarnir mætum og konurnar með

Re: Suðurnesja hópur í Fágun.
Posted: 4. Jun 2014 15:03
by bergrisi
Eru einhverjir fleiri af Suðurnesjum sem eru búnir að bætast í Fágun? Við erum með hóp á Facebook og stefnum á hitting þegar hentar.