Page 1 of 1

Jólabjór fyrir aðfangadagskvöld

Posted: 24. Dec 2012 10:58
by bergrisi
Hver er aðfangadagsjólabjórinn hjá ykkur?

Hjá mér verður það Mikkeler jólabjórinn eftir að krakkarnir eru farnir að róast og gestir farnir. Þá ætla ég að setjast niður í rólegheitum með gæðabjór og bjórbók sem ég veit ég fæ. Ef lesturinn endist þá gæti verið einn Giljagaur líka.

Annars óska ég ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi bruggárs.

Re: Jólabjór fyrir aðfangadagskvöld

Posted: 24. Dec 2012 11:50
by hrafnkell
Ég er með nokkra sem ég get gripið í eftir skapi, en grunar að það verði hoppy lovin christmas eða hugsanlega einn gamall og góður latrappe quadrupel.

Re: Jólabjór fyrir aðfangadagskvöld

Posted: 24. Dec 2012 12:00
by viddi
Ég ætla að taka einn heimalagaðan quad sem lá á eik í hálft ár og var tappaður í september. Ef hann stendur ekki undir væntingum býst ég við að taka La Trappe Quad.

Re: Jólabjór fyrir aðfangadagskvöld

Posted: 24. Dec 2012 22:09
by Proppe
Ég er nú kominn af þurru heimili, en laumaði í mig einum doppelbock frá einstök yfir eftirréttinum.
Fyrst ég er kominn heim aftur er ég að hugsa um að fá mér fjórfaldan trappista og fylgja eftir með henni Catalínu vinkonu minni.

Re: Jólabjór fyrir aðfangadagskvöld

Posted: 25. Dec 2012 03:16
by hjaltibvalþórs
Þar sem ég fékk Duvel glas (og tvær flöskur með) í jólagjöf ákvað ég að vígja það.

Re: Jólabjór fyrir aðfangadagskvöld

Posted: 26. Dec 2012 18:20
by helgibelgi
Ég var svo heppinn að fá 9 ára gamla flösku af Chimay Blue http://www.ratebeer.com/beer/chimay-ble ... eserve/53/" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;

Hann var einstaklega ljúffengur og góður!

God jul och gott nytt år från Sverige :D

Re: Jólabjór fyrir aðfangadagskvöld

Posted: 27. Dec 2012 13:14
by halldor
helgibelgi wrote:Ég var svo heppinn að fá 9 ára gamla flösku af Chimay Blue http://www.ratebeer.com/beer/chimay-ble ... eserve/53/" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;

Hann var einstaklega ljúffengur og góður!

God jul och gott nytt år från Sverige :D
Djöfull öfunda ég þig af þessu :(
Ef þú nærð að redda annarri svona eða svipuðum árgangi þá er ég til í að skipta á aleigunni og honum.

Re: Jólabjór fyrir aðfangadagskvöld

Posted: 27. Dec 2012 19:22
by helgibelgi
halldor wrote:
helgibelgi wrote:Ég var svo heppinn að fá 9 ára gamla flösku af Chimay Blue http://www.ratebeer.com/beer/chimay-ble ... eserve/53/" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;

Hann var einstaklega ljúffengur og góður!

God jul och gott nytt år från Sverige :D
Djöfull öfunda ég þig af þessu :(
Ef þú nærð að redda annarri svona eða svipuðum árgangi þá er ég til í að skipta á aleigunni og honum.
Sá sem gaf mér þessa sagði að þetta hefði fengist í ríkinu hérna! Ég þarf að kíkja í ríkið áður en ég yfirgef staðinn, það er klárt!

Re: Jólabjór fyrir aðfangadagskvöld

Posted: 31. Dec 2012 16:43
by Feðgar
Okkar jólabjór var Robust Porter beint af kútnum.

Sjúklega góður :sing:

Annars var ég að taka til í barnum hjá mér núna fyrir jólin og fann það út að ég á til 52 tegundir af bjór (+HB) Svo það er af nógu af taka :D