Page 1 of 1

Dautt ger, hvað er til ráða?

Posted: 26. Jul 2009 19:06
by nIceguy
Sælir, ég lagði í Imperial stout í dag en það virðist ekkert vera að gerast. Gerið (vökvager) hefur legið í upphaflegum umbúðum í ískáp í nokkra mánuði. Ég er að spá í hvað má virtin liggja lengi án gers? Ég meina ef ég panta nýtt ger í kvelli eru líkur til að þetta reddist?

Kv

Freyr

Re: Dautt ger, hvað er til ráða?

Posted: 26. Jul 2009 19:14
by Oli
Sæll, ef að virtirinn er lokaður í fötu/glerkút sem var vel sótthreinsuð er þetta í lagi í amk 1-2 daga. En slakaðu á, fáðu þér einn kaldann, ég er viss um að þetta verður farið í gang á morgun ;).
Lenti sjálfur í því með síðasta skammt að það var engin sýnileg gerjun í gangi fyrr en eftir amk sólarhring.

Re: Dautt ger, hvað er til ráða?

Posted: 26. Jul 2009 19:58
by Eyvindur
RDWHAHB

Örugglega allt í lagi með bjórinn. Maður á aldrei að byrja að örvænta fyrr en eftir þrjá daga í fyrsta lagi. Auk þess getur líka verið að fatan sé ekki alveg lokuð, en þá gæti gerjunin verið í gangi án þess að vatnslásinn bubbli. Ef allt annað bregst, kauptu meira ger.

En í framtíðinni ættirðu alltaf að gera starter fyrir fljótandi ger. Alveg sama hvernig ger það er, bæði til að koma því í gang og líka til að sjá hvort það er örugglega í lagi. Þá geturðu gert ráðstafanir áður en gerið er komið í virtinn, ef eitthvað er að því.

Re: Dautt ger, hvað er til ráða?

Posted: 27. Jul 2009 07:58
by nIceguy
Já ég verð víst að bíða smá, ég er vanur að gera starter en i gær þá bara gleymdi ég því. Spenningurinn var svo mikill að þegar suðan var farin í gang mundi ég eftir gerinu :). Gerfatan er vel lokuð og hún var vel sótthreinsuð þannig að ég vona það besta.