Page 1 of 1
Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 17. Sep 2012 13:53
by halldor
Haugen Gruppen ætla að bjóða okkur í bjórkynningu / smökkun þann 20. September kl. 20:30.
Tilefnið er að nú í ár verður Löwenbräu Octoberfest í fyrsta sinn fáanlegur á Íslandi.
[edit vegna leiðréttingar frá Hauki]
Við höfum lengi ætlað að hafa viðburð þar sem við dæmum bjóra á formlegan hátt og gefum einkunn á þar til gerðu einkunnablaði. Einkunnablaðið verður það sama og dómarar nota við dómnefndarstörf sín þegar þeir dæma í Bjórgerðarkeppni Fágunar.
Haugen Gruppen eru með umboð fyrir:
Stella Artois,
Löwenbräu,
Beck‘s,
Leffe,
Franziskaner,
Hoegaarden,
Budweiser o.fl.
Mæting í
Skútuvog 1F, kl. 20:30, fimmtudaginn 20. september.
Áætlað er að kynningin taki 2 klst og eftir það er öllum frjálst að gera það sem þeim sýnist
Þáttaka verður takmörkuð við 20 manns og munu fullgildir meðlimir ganga fyrir ef skráning fer yfir þann fjölda.
Vinsamlega skráið ykkur í gegnum skráningaformið með því að smella
hér.
Ef þú vilt skrá þig í félagið, þá eru allar nauðsynlegar upplýsingar
hér.
Kveðja,
Stjórnin
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 17. Sep 2012 14:00
by halldor
Ég mæti og er að sjálfsögðu búinn að skrá mig

Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 17. Sep 2012 14:37
by Idle
Glæsilegt, þetta líst mér vel á! Skráður og kvitta.

Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 17. Sep 2012 14:52
by hrafnkell
Done deal, skráður.
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 17. Sep 2012 17:59
by bergrisi
Mikið hefði ég verið til í að kíkja á þetta. Kemst ómögulega. Vonandi verða fleiri svona stundir.
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 17. Sep 2012 19:27
by sinkleir
Þetta lýst mér rosalega vel á, en nú er ágætis spurning, er ég borgandi meðlimur? man ekki hvenær ég borgaði síðast, er einhver sem getur athugað það fyrir mig? Og sagt mér hvert ég sendi peninginn minn ef ég er ekki borgandi meðlimur núna?
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 17. Sep 2012 19:43
by karlp
woop woop! I'm in.
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 17. Sep 2012 21:20
by bjarkith
Geim(bara til að vera formlegur þá er ég óska eftir skráningu)
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 17. Sep 2012 21:20
by halldor
sinkleir wrote:Þetta lýst mér rosalega vel á, en nú er ágætis spurning, er ég borgandi meðlimur? man ekki hvenær ég borgaði síðast, er einhver sem getur athugað það fyrir mig? Og sagt mér hvert ég sendi peninginn minn ef ég er ekki borgandi meðlimur núna?
Þú ert ekki búinn að greiða fyrir félagsárið 2012/2013 (endurnýjast í maí ár hvert).
Í efsta "póstinu" er hlekkur á þráðinn sem inniheldur upplýsingar um það hvert á að borga og hvernig maður ber sig að.
PS. "Skráning í félagið" þráðurinn er líka sticky í flokknum Almenn umræða.
PPS.
Hér er líka hlekkur á hann

Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 18. Sep 2012 13:20
by haukur_heidar
s.s. Haugen telur að Hofbrauhaus Oktoberfestinn sem fékkst hér í fyrra sé ekki einn af ekta októberfest bjórunum ?
einmitt.....
en flott framtak engu að síður hjá birgja
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 18. Sep 2012 13:29
by halldor
haukur_heidar wrote:s.s. Haugen telur að Hofbrauhaus Oktoberfestinn sem fékkst hér í fyrra sé ekki einn af ekta októberfest bjórunum ?
einmitt.....
en flott framtak engu að síður hjá birgja
Haugen eru ekki að halda þessu fram heldur var það ég sjálfur sem vann heimavinnuna greinilega ekki nógu vel

Biðst afsökunar á þessari staðreyndarvillu og breyti þessu í þræðinum.
En á ekki að kíkja með Haukur?
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 18. Sep 2012 16:23
by halldor
Skráning gengur vel fyrir sig en við erum ennþá með nokkur laus sæti.
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 19. Sep 2012 09:28
by haukur_heidar
halldor wrote:haukur_heidar wrote:s.s. Haugen telur að Hofbrauhaus Oktoberfestinn sem fékkst hér í fyrra sé ekki einn af ekta októberfest bjórunum ?
einmitt.....
en flott framtak engu að síður hjá birgja
Haugen eru ekki að halda þessu fram heldur var það ég sjálfur sem vann heimavinnuna greinilega ekki nógu vel

Biðst afsökunar á þessari staðreyndarvillu og breyti þessu í þræðinum.
En á ekki að kíkja með Haukur?
fimmtudagar eru frekar mikið off mín megin
það kemur samt að því að ég stíg fram úr skugganum

Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 19. Sep 2012 13:10
by bjorninn
Skráður, í félagið og þetta hér.
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 20. Sep 2012 13:57
by elvar
Skrái mig í þetta. Er búinn að borga félagsgjöld.
kv Elvar
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 20. Sep 2012 14:35
by olafurpall
Sælir,
Fá þeir sem eru búnir að skrá sig einhverja staðfestingu á hverjir eru "inni" eða mætum við bara á staðinn?
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 20. Sep 2012 16:08
by Idle
Update! Ég kemst ekki í kvöld, svo sætið mitt er laust. Smakkið fyrir mig í leiðinni!

Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 20. Sep 2012 16:58
by olafurpall
Ég kippi þá einum áhugasömum með mér.
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 20. Sep 2012 18:42
by halldor
olafurpall wrote:Sælir,
Fá þeir sem eru búnir að skrá sig einhverja staðfestingu á hverjir eru "inni" eða mætum við bara á staðinn?
Allir sem hafa skráð sig eru inni.
Sjáumst á eftir. Hringið í 824 2453 ef þið komið að luktum dyrum.
Re: Bjórkynning – smökkun, fimmtudaginn 20. September
Posted: 21. Sep 2012 09:17
by olafurpall
Bestu þakkir fyrir frábært kvöld og sérlega höfðinglegar móttökur í gær. Sjaldan sem maður smakkar jafn margar tegundir samfellt sem gerir samanburðinn mun gagnlegri og skemmtilegri.
Bestu kveðjur,
Ólafur
