Page 1 of 1
Re: Vegna ruslpósts á spjallinu
Posted: 18. Aug 2012 03:25
by Benni
spurning; það er nú ekki í fyrsta skipti sem svona lagað sleppur í gegn, þarf ekki að breyta nýskráningarforminu eitthvað örlítið, gera það örlítið erfiðara fyrir sjálfvirkum vélum eins og þessari að skrá sig inn?
ps. til að fyrirbyggja leiðindi þá er ég fullur...
Re: Discount DVD- Breaking Bad Seasons 1-4 and Season 4
Posted: 18. Aug 2012 11:01
by sigurdur
Neinei .. það þarf að auðvelda skráningarforritinu ..
... annars þá eru til leiðir til að greina hvernig þessir bottar finna síðuna - t.d. að fjarlægja "Powered by phpBB" úr botninum á síðunni.
Re: Discount DVD- Breaking Bad Seasons 1-4 and Season 4
Posted: 20. Aug 2012 00:41
by Idle
Ef þetta væri svo einfalt... Erum með reCaptcha, en eins og margir eflaust vita er meira en ár síðan það var brotið upp, og þrátt fyrir "endurbætur" Google stoðar það lítið enn. Ef þið þekkið betri lausn, þá endilega deilið því hérna.
Ég var raunar að íhuga að virkja ritstýringu á skráningarbeiðnum, þ. e.a. s. að allar skráningar séu lesnar yfir af aðstandenum síðunnar, og hafnað eða samþykktar í kjölfarið. Skráningarbeiðnir eru svo fáar. Skiptir mig ekki máli hvort ég lesi yfir tvær notendaskráningar á viku og hafna eða synja, eða banni tvo notendur á viku.
Annars hefur þetta aldrei náð því stigi að geta talist raunverulegt vandamál hérna. Þó einn og einn sleppi í gegn og nái að henda inn einum eða tveimur póstum áður en hann er bannaður og póstunum eytt, þá hefur það engin áhrif á virkni eða læsileika spjallborðsins.

Re: Vegna ruslpósts á spjallinu
Posted: 20. Aug 2012 08:58
by hrafnkell
Það er hægt að setja inn custom spurningu í phpbb.. Ég er að hýsa nokkur spjöll fyrir hin og þessi félagasamtök og þar hefur dugað að setja inn spurningu sem spyr "Hvað er tveir plús tveir?" og fólk svarar 2 eða tveir. Svínvirkar

Re: Vegna ruslpósts á spjallinu
Posted: 20. Aug 2012 10:12
by Idle
hrafnkell wrote:Það er hægt að setja inn custom spurningu í phpbb.. Ég er að hýsa nokkur spjöll fyrir hin og þessi félagasamtök og þar hefur dugað að setja inn spurningu sem spyr "Hvað er tveir plús tveir?" og fólk svarar 2 eða tveir. Svínvirkar

Þannig var þetta lengi vel hér líka, en það dugði ekki til.
Spurning um að hafa skemmtilegri spurningu, t. d. "Hvað er SG 1.074 mörg Brix"?

Re: Vegna ruslpósts á spjallinu
Posted: 20. Aug 2012 10:17
by sigurdur
Idle wrote:hrafnkell wrote:Það er hægt að setja inn custom spurningu í phpbb.. Ég er að hýsa nokkur spjöll fyrir hin og þessi félagasamtök og þar hefur dugað að setja inn spurningu sem spyr "Hvað er tveir plús tveir?" og fólk svarar 2 eða tveir. Svínvirkar

Þannig var þetta lengi vel hér líka, en það dugði ekki til.
Spurning um að hafa skemmtilegri spurningu, t. d. "Hvað er SG 1.074 mörg Brix"?

... og þá ertu búinn að setja síu á alla nýliða

Re: Vegna ruslpósts á spjallinu
Posted: 20. Aug 2012 11:43
by Idle
Ég er búinn að stilla þetta þannig af að allar nýskráningar þurfa að vera staðfestar af vefstjóra.
Þegar þessi holskefla spammara hefur gengið yfir, breyti ég aftur yfir í tölvupóst staðfestingar.
