Page 1 of 1
Amerískur Stout
Posted: 11. Aug 2012 13:11
by AndriTK
Eftir langa pásu þá er kominn tími á að brugga aftur. Og það á nýjum græjum
Ákváðum að notast við uppskrift úr Brewing Classic Styles.
svona er uppskriftin:
6,8 kg American two-row malt
0,45 kg Black roasted barley 500°L
340 gr chocolate malt 420°L
340 gr crystal 40°L
40 gr. Horizon 13 % AA 60 min - Var ekki til svo í staðinn er Magnum
28 gr Centennial 9% AA 5 min (40 gr plus 40gr 0 mín)
2 pakkar US 05 ger
skv uppskrift ætti þetta að vera og 1072 fg 1017 - inu 73 abv 7.2
Erum ekki enn búnir alveg að læra á hitastýringuna en vonandi að þetta reddist
EDIT: þetta er annar af þeim sem ég tók á fundinn í gær. Ég sé að ég gleymdi að taka fram breytinguna á uppskriftinni - Horizon var ekki til þannig við notuðum magnum í beyskju og 5 mínútna humlarnir voru rúm 40gr í stað 28 og bættum svo við um 40 gr af centenniel í 0 mín
Re: Amerískur Stout
Posted: 11. Aug 2012 13:18
by hrafnkell
Hlýtur að reddast hjá ykkur

Re: Amerískur Stout
Posted: 12. Aug 2012 09:48
by AndriTK
þetta fór í smá klúður.. tengillinn frá stýringunni og í rafmagn byrjaði að hitna all svakalega og brann að lokum aðeins við .. þetta var þó áður en við byrjuðum að brugga. Á endanum ákváðum við að sleppa bara stýringunni og tengja elementið beint við rafmagn.
Þetta lítur allavega vel út núna. OG 1076 og komið á carboy.
Re: Amerískur Stout
Posted: 12. Aug 2012 13:00
by hrafnkell
AndriTK wrote:þetta fór í smá klúður.. tengillinn frá stýringunni og í rafmagn byrjaði að hitna all svakalega og brann að lokum aðeins við .. þetta var þó áður en við byrjuðum að brugga. Á endanum ákváðum við að sleppa bara stýringunni og tengja elementið beint við rafmagn.
Þetta lítur allavega vel út núna. OG 1076 og komið á carboy.
Furðulegt. Ég þarf að kíkja á ykkur og skoða þetta við tækifæri.
Var það tengillinn sem brann/hitnaði eða innstungan?
Re: Amerískur Stout
Posted: 12. Aug 2012 20:54
by AndriTK
já það væri alveg frábært.. Þurfum að fara ná þessu perfect
Það var semsagt klóin á stýringunni og framlengingarsnúran sem brunnu smá saman.
Re: Amerískur Stout
Posted: 12. Aug 2012 21:07
by hrafnkell
AndriTK wrote:já það væri alveg frábært.. Þurfum að fara ná þessu perfect
Það var semsagt klóin á stýringunni og framlengingarsnúran sem brunnu smá saman.
Ég gruna framlengingarsnúruna. Sumar framlenginarsnúrur eru bara 1.5q, sem getur verið of lítið fyrir 16A ef tenglarnir sjálfir eru litlir.
Klóin sem ég setti á er amk alveg innan spec (gefin upp fyrir 16A), nema ég hafi klúðrað tenginunni eitthvað á henni.
Heyrið í mér við tækifæri annars, ég ætti að geta kíkt á ykkur.
Re: Amerískur Stout
Posted: 12. Aug 2012 21:22
by AndriTK
já mögulega framlengingarsnúran.. En við notuðum hana þó á sjálft elementið án vandræða.. Get prófað að nota aðra framlengingarsnúru og séð hvað gerist.. Annars fæ ég þig í heimsókn

Re: Amerískur Stout
Posted: 1. Sep 2012 10:15
by AndriTK
þessum var tappað í gær.
bragðlega séð lofar hann góðu. Endaði kanski full hátt miðað við uppskrift eða 1025, en við endum þá með 6,69% stout. Vonandi bara að hann hafi verið búinn að fullgerjast, 3 vikur í gerjun en við ákváðum bara að tappa honum án þess að vera mæla dag eftir dag, veit kanski heimskulegt en sjáum til


Re: Amerískur Stout
Posted: 1. Sep 2012 14:59
by Gvarimoto
Held að stout þurfi lengri tíma í gerjun útaf alkahólsmagni, því hærra sem það er því lengri tíma tekur gerjunin (leiðréttið ef þetta er rangt)
Tókstu gravity reading með nokkra daga millibili ?
Re: Amerískur Stout
Posted: 10. Sep 2012 18:41
by AndriTK
nei reyndar ekki. Tókum bara sénsinn á að 3 vikur væri nóg.
Re: Amerískur Stout
Posted: 27. Sep 2012 20:21
by Feðgar
Jæja er ekki komið að því að smakka þennan
Re: Amerískur Stout
Posted: 29. Sep 2012 08:02
by AndriTK
jú heirðu þessi smakkast bara mjög vel finnst okkur. Í kvöld/dag verður svo smakkað í fyrsta sinn kaffi útgáfan af honum, en við fleyttum nokkrum lítrum yfir á expresso