Page 1 of 1

Neyðarkall - Munich I og S-05

Posted: 25. Jul 2012 22:45
by viddi
Óþolandi þegar sjoppunni er lokað og maður ætlar að fara að brugga! ;)
Er einhver sem býr svo vel að eiga 560 gr af Munich I og 5 pakka af S-05 sem hann/hún getur selt mér?

Re: Neyðarkall - Munich I og S-05

Posted: 25. Jul 2012 23:00
by Idle
Ég á nóg til af geri, en ekkert af Munich I, því miður. Sendu mér bara PM ef þú vilt gerið frekar en ekki neitt. :)

Re: Neyðarkall - Munich I og S-05

Posted: 26. Jul 2012 12:18
by helgibelgi
ég á aðeins til blöndu af Munich og Pilsner malti sem Hrafnkell gaf mér á síðasta mánudagsfundi. Ef þú ert að nota bæði, þá gæti það sloppið :P

Re: Neyðarkall - Munich I og S-05

Posted: 26. Jul 2012 16:45
by gunnarolis
Hringdu í Formanninn, það er fimmtudagur og hann er sennilega að brugga í kvöld. Hann á þetta í sekkjavís.

Re: Neyðarkall - Munich I og S-05

Posted: 26. Jul 2012 17:50
by viddi
Þessir höfðingjar hér björguðu þessu auðvitað. Takk Idle (Siggi), Bergrisi (Rúnar) og Helgi(belgi). Þið eigið inni stóran greiða. Það er lýsandi fyrir þetta frábæra "samfélag" fágaðra einstaklinga að ég hafði satt best að segja litlar áhyggjur af því að þetta myndi ekki reddast.

Re: Neyðarkall - Munich I og S-05

Posted: 29. Jul 2012 20:39
by hrafnkell
Kominn heim! Biðst innilega forláts á fjarveru minni!

Re: Neyðarkall - Munich I og S-05

Posted: 31. Jul 2012 12:16
by sigurdur
hrafnkell wrote:Kominn heim! Biðst innilega forláts á fjarveru minni!
Þetta má ekki gerast aftur ..


.. djók ;)

Re: Neyðarkall - Munich I og S-05

Posted: 31. Jul 2012 14:54
by bergrisi
Þetta er góð ástæða til að koma sér upp góðum lager. Eiga alltaf varasjóð í 3-4 bjóra.
Næst verða gerð magninnkaup.