Page 1 of 2
					
				Wyeast blautger pöntun - 1500kr - SEINASTI SÉNS 10. ágúst!
				Posted: 17. Jul 2012 14:58
				by hrafnkell
				Sælir!
Ég er kominn með samning við wyeast á blautgeri og er að undirbúa fyrstu pöntun. Það er hægt að panta öll strains sem wyeast bjóða upp á.
Gerið er ferskt og tekið beint frá wyeast, þannig að "best fyrir" stimpillinn ætti að vera um 
5-6mán frá deginum sem gerið kemur í hús. Bakteríur eru auðvitað ekkert mál heldur.
Verð er 1500kr per pakka. Ef þú pantar 10 eða fleiri þá fer prísinn í 1200kr pakkinn.
Ef þú vilt panta ger, þá millifærirðu fyrir því á þennan reikning:
Reiknnigsnúmer 0372-13-112408
Kennitala 580906-0600
Svo væri gott að fá greiðslustaðfestingu úr heimabankanum á 
brew@brew.is og email á sama netfang um hvaða strains þú vilt fá.
Um að gera að panta núna fyrir bruggveturinn! Verðið per pakka er líka sérstaklega gott núna þar sem þetta er fyrsta tilraun við þetta 
 
Pro tip:
Berliner weisse og farmhouse ale blöndurnar eru aðeins fáanlegar á sumrin og þykja framúrskarandi frábærar.
Einnig sniðugt ef þú er með blæti fyrir belgískum eða hveitibjórum að taka blautger. Margir sverja einnig fyrir það að 1056 sé mikið meira clean en us05... Ýmislegt sem er hægt að prófa með blautgeri 
 http://www.wyeastlab.com/hb_products.cfm
http://www.wyeastlab.com/hb_products.cfm" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;
 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 17. Jul 2012 15:47
				by bjarkith
				Stórt like á þetta!
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 17. Jul 2012 19:06
				by bergrisi
				Flott framtak. 
Ætla að nota tækifærið og panta spennandi ger.
Er kannski eitthvað sem fræðingarnir mæla sérstaklega með?
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 17. Jul 2012 19:32
				by bjarkith
				Hvað langar þig að brugga?
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 17. Jul 2012 23:24
				by bergrisi
				Mig langar að brugga allt.  Var að spá hvort eitthvert ger nýtist í marga stíla.
Næstu skref verða eitthvað í áttina á brittish ale, brown ale, scottish ale og jafnvel eitthvað belgískt og þýskt.    
Ætla að reyna að fræðast eitthvað á morgun og legg svo inn pöntun.
Þetta er frábært framtak hjá þér Hrafnkell og vonandi eitthvað sem verður endurtekið með reglulegu millibili.
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 17. Jul 2012 23:33
				by Gvarimoto
				Já sama hér, hverju mæliru með fyrir Lager og IPA ? Ætla að vera með og taka svona 3-6 í heild
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 17. Jul 2012 23:40
				by Proppe
				Upp með slantanna fyrir gerbanka framtíðarinnar.
Vonandi að við fáum sem fjölbreytilegasta gerlaflóru í gang á klakanum.
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 18. Jul 2012 13:36
				by bjarkith
				Ger sem hentar í allt væri auðvitað WY1056 American ale eða Pacman(Ef þú færð það það er að segja) eða eitthvað í þá áttina, en ef þú villt belgískt ger þá þarftu að vera nákvæmari, því hver stíll er með sitt ger, ef þú villt eitthvað í áttina að trappist bjórunum þá er WY3787 Trappist High Gravity (Westmalle gerið minnir mig), Saison þá er það klárlega WY3724 Belgian Saison, svo ef þú er Duvel aðdáandi þá er WY1388 Belgian Strong Ale eflaust málið án þess að hafa prófað það sjálfur.
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 18. Jul 2012 13:42
				by bjarkith
				Fyrir lager get ég ekkert sagt þar sem ég hef ekki enn gerjað lager og hef því engan samanburð, en fyrir American IPA þá er WY1056 (eða notað US-05) American Ale klárlega málið og virkar einnig í enskan IPA en ef þú ætlar að brugga klassískan enskan IPA þá geturu prufað WY1318 London Ale III (hef ekki prufað það en getur eflaust notað S-04 í staðinn, ég hef gert það með góðum árangri)
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 18. Jul 2012 15:50
				by Idle
				Ekki gleyma Nottingham. Fyrir enska öl stíla er það ekki svo ósvipað og US-05. Fremur hlutlaust og gerjast vel. Hef notað það í bittera (ESB og slíka), mild og Stout með góðum árangri. 
 
Glæsilegt framtak, Hrafnkell! Mun áreiðanlega nýta mér þetta þegar hagurinn vænkast.
 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 18. Jul 2012 23:34
				by gugguson
				Gerandi verður að sjálfsögðu með  
 
 
Hvenær er deadline á að ákveða hvað maður ætlar að panta?
 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 19. Jul 2012 10:42
				by hrafnkell
				Deadline fer aðeins eftir þáttöku, en ég gef þessu amk viku í viðbót. Best að fá pantanir inn sem fyrst.
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 24. Jul 2012 11:03
				by hrafnkell
				Nokkrir búnir að panta... hvet alla til að senda inn pöntun sem fyrst 

 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 24. Jul 2012 16:28
				by Gvarimoto
				Ég pana næsta þrijudag, útborgun 

 reikna meðvað taka 4 krúsir
 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 24. Jul 2012 16:33
				by bjarkith
				Já, getur þetta beðið fram yfir mánaðarmót? Ef svo yrði væri ég til í að pannta.
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 24. Jul 2012 19:59
				by hrafnkell
				Ég leyfi þessu líklega að leka yfir mánaðarmótin 

 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 30. Jul 2012 13:23
				by hrafnkell
				Kominn slatti af pöntunum en mundi vilja sjá nokkrar í viðbót áður en ég ræðst í innkaupin 
 
Því fyrr því betra!
 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 31. Jul 2012 19:27
				by Gvarimoto
				Er að fara að panta frá þér eftir smá ! 

 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 2. Aug 2012 20:40
				by Gússi
				Er ennþá hægt að panta?
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 5. Aug 2012 10:53
				by hrafnkell
				Jebb. Enn hægt að panta.
Deadline er 10 ágúst.
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr
				Posted: 9. Aug 2012 10:09
				by hrafnkell
				Seinasti séns að panta ger á morgun. Pöntunin kemur svo í kringum 22 ágúst.
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr - SEINASTI SÉNS 10. ágús
				Posted: 10. Aug 2012 18:59
				by hrafnkell
				Pöntunin er farin út og því ekki hægt að bæta meiru við.
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr - SEINASTI SÉNS 10. ágús
				Posted: 13. Aug 2012 18:49
				by gunnarolis
				Síðasti séns að kaupa vestfirskan harðfisk á 300?
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr - SEINASTI SÉNS 10. ágús
				Posted: 21. Aug 2012 11:33
				by hrafnkell
				Gerið er lagt af stað hingað, kemur líklega á fimmtudaginn. Grrríðarleg spenna!
			 
			
					
				Re: Wyeast blautger pöntun - 1500kr - SEINASTI SÉNS 10. ágús
				Posted: 21. Aug 2012 18:30
				by Gvarimoto
				hrafnkell wrote:Gerið er lagt af stað hingað, kemur líklega á fimmtudaginn. Grrríðarleg spenna!
 