Page 1 of 1

dry hops

Posted: 12. Jul 2012 09:35
by aggi
Góðann daginn

ég er búinn að vera að koma mér upp búnaði fyrir all grain og er búinn að velta mér doldið mikið uppúr uppskriftum (vill að sá fyrsti ekta bjórinn verði góður) fann þessa hérna

http://www.beersmith.com/Recipes2/recipe_179.htm" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;

og þarna er talað um dry hops 3 days, eru þeir þá látnir liggja í 3 daga áður en maður setur gerið eða hvað ?? ég er búinn að rekast á nokkrar svona með dry hops í nokkra daga er bara að velta þessu fyrir mér :)

Re: dry hops

Posted: 12. Jul 2012 10:18
by helgibelgi
Þetta þýðir mjög líklega að þú setur humlana út í gerjunarfötuna 3 dögum áður en þú setur á flöskur/kút.

Re: dry hops

Posted: 12. Jul 2012 11:19
by bergrisi
Flott uppskrift og metnaðarfull byrjun. Ég held að ég prófi þessa uppskrift við tækifæri.

Hef ekki prufað að þurrhumla ennþá en myndi gera það eins og helgibelgi segir.

Re: dry hops

Posted: 12. Jul 2012 11:35
by hrafnkell
Þurrhumlar þegar aðal gerjun er búin, ca 7 dögum eftir að gerjun byrjar venjulega. Lætur það liggja í bjórnum í 5-7 daga áður en þú tappar á, helst ekki lengur.

Re: dry hops

Posted: 13. Jul 2012 00:12
by aggi
Takk fyrir ráðin já þetta er örugglega ekki jafn mikið mál og ég var búinn að búa til :) en ég stefni á að gera þennan um miðjan ágúst og svo einn jólabjór í leiðinni þá ætti hann að vera orðinn frekar góður um jólin :) búinn að geymast í 4 mánuði. ég verð þá kannski að gera 2 falda uppskift af þessum svo að jólabjórinn nái að geymast hehe