Page 1 of 1

Kælibúnaður

Posted: 8. Jul 2012 03:22
by Proppe
Bara smá hint fyrir þá sem vantar kælibúnað. Ég fann Mars (Já, nammið) lógóaða, Derby frystikistu í veitingahúsaþrotabúi hjá umboðssölunni við Korputorg.
Hún kostaði lítinn 15000 kall og í hana kem ég gerjunarfötu og tveim 11,5 lítra carboys með góðu, og með smá troðningi, annari gerjunarfötu.
Þar sem veitingastaðir eru að fara á hausinn hægri vinstri, þá er þetta eitthvað til að hafa augun opin með. Oft má finna nothæfan búnað í smáauglýsingunum á freisting.is, jafnvel á brunasöluverði.

Ásamt hitastýringu frá Hrafnkeli þá er ég kominn með aðstöðu til að lagera bjór, og það í ágætis magni.

Re: Kælibúnaður

Posted: 8. Jul 2012 10:17
by sigurdur
Sniðugt.

Til hamingju með aðstöðuna. :-)

Re: Kælibúnaður

Posted: 8. Jul 2012 12:51
by hrafnkell
úff... ekki freista mín :)

Re: Kælibúnaður

Posted: 8. Jul 2012 14:13
by Proppe
Jú, víst :twisted: