Page 1 of 1

Ílát til að kæla gerjun

Posted: 5. Jul 2012 23:37
by gosi
Vitið þið um gott og ódýrt ílát til að kæla niður bruggfötuna meðan á gerjun stendur?
Mig bráðvantar svoleiðis. Hitinn inni er aldrei fyrir neðan 24 c á meðan sumarið er.

Re: Ílát til að kæla gerjun

Posted: 6. Jul 2012 00:00
by sigurdur
Brugga bara Saison / Belgískt / Vín.

Eða fá gefins ísskáp (ég gerði það).

Fyrst þegar ég byrjaði, þá fyllti ég baðkar og notaði pepsi flösku til að toga tappann nægilega mikið úr baðkarinu til að hleypa vatni.

Annars getur þú keypt þér stórt ílát (stóra steypufötu) í verkfæralagerinum á nokkra þúsundkalla, svo bara hleypt vatni í það.

Re: Ílát til að kæla gerjun

Posted: 6. Jul 2012 00:15
by gosi
Eða fá gefins ísskáp (ég gerði það).
Stúdentaíbúð, kona og barn leyfa það ekki :lol:

Ég veit ekki hvort ég þori í saison. Hef ekki smakkað slíkan.
Hef gert mjöð með ágætis árangri, geri slíkt seinna.

Ég tel mig ekki fíla belgískan ennþá en það hlýtur að koma.

Re: Ílát til að kæla gerjun

Posted: 6. Jul 2012 00:27
by Proppe
Láttu fötuna standa í bala, settu svolítið vatn í og vefðu handklæði um fötuna.
Uppgufunin ætti að kæla fötuna og hárpípukrafturinn ætti að halda handklæðinu röku.

Re: Ílát til að kæla gerjun

Posted: 6. Jul 2012 00:33
by gosi
Það var áætlunin að gera svoleiðis en balan vantar. Var bara að spá hvar ég fengi hann ódýrast.

Re: Ílát til að kæla gerjun

Posted: 6. Jul 2012 00:41
by Proppe
Ég sá skikkanlega prísaða múrblöndunarbala í báhás.
Múrbúðin er líka oft með góð verð.

Re: Ílát til að kæla gerjun

Posted: 6. Jul 2012 00:53
by gosi
Frábært, ég mun tjekka á þessum stöðum.

Re: Ílát til að kæla gerjun

Posted: 6. Jul 2012 09:54
by hrafnkell
verkfæralagerinn er líka með ódýra múrbala. Bara velja einhverja af þessum búllum sem er næst þér. Svo færðu auðvitað allskonar drasl í rúmfatalagernum sem væri hægt að nota.

Re: Ílát til að kæla gerjun

Posted: 6. Jul 2012 12:52
by helgibelgi
Ég fann hentugan plastkassa inni í þvottahúsi um daginn :D hann hefur reddað mér með nokkrar gerjanir. Maður veit aldrei hvar maður finnur hluti sem nýtast í bruggið svo maður verður bara að hafa augun opin.

Á þessum nótum sá sé til dæmis nokkra flöskukassa í Heiðrúnu um daginn sem enginn virtist vilja. En þeir gefa þér þetta ef þú spyrð um þá :P

Re: Ílát til að kæla gerjun

Posted: 6. Jul 2012 13:17
by gosi
Jii, núna er ég kominn með fulla dagskrá. Kaupa bala og ná mér í flöskukassa.
Mig vantar einmitt þannig.