Page 1 of 1
Græjukaup
Posted: 2. Jul 2012 14:02
by dadjan
Ég er að fara að panta eitthvað af dóti frá HomeBrewStuff.com. Pælingin er að panta hluti sem munu auðvelda mér lífið í bjórgerðinni + smá annað. Mér datt í hug að fá smá komment áður en ég panta. Þetta er listinn sem ég er kominn með:
Wort chiller
Auto siphon
Bottle filling wand
Bottle sanitizer & rinser (vinator)
Flöskuskolari
Krani á kegerator
Er eitthvað þarna sem ykkur finnst vanta í að gera bjórgerðina þægilegri? Það sem ég á núna er í raun það sem er í
byrjendapakkanum frá brew.is.
Alltaf gaman að kaupa sér leikföng

Re: Græjukaup
Posted: 2. Jul 2012 14:15
by hrafnkell
Myndi taka 1/2" autosiphon frekar, og þá 1/2" bottling wand líka. Ég held að ég eigi bæði fyrir þig ef þú vilt. Svo þarftu helst dælu með plate chillernum.
Svo er rétt að benda á að þú færð flest af þessu í bæði vínkjallaranum og ámunni (allt nema keg unitið), ekki víst að það borgi sig að panta þetta að utan - sendingarkostnaður, tollur og vsk á eftir að taka þig í endaþarminn
Annars eru þetta allt græjur sem er afar þægilegt að hafa.
Re: Græjukaup
Posted: 2. Jul 2012 15:25
by dadjan
hrafnkell wrote:Myndi taka 1/2" autosiphon frekar, og þá 1/2" bottling wand líka. Ég held að ég eigi bæði fyrir þig ef þú vilt. Svo þarftu helst dælu með plate chillernum.
Svo er rétt að benda á að þú færð flest af þessu í bæði vínkjallaranum og ámunni (allt nema keg unitið), ekki víst að það borgi sig að panta þetta að utan - sendingarkostnaður, tollur og vsk á eftir að taka þig í endaþarminn
Annars eru þetta allt græjur sem er afar þægilegt að hafa.
Ok, ég fæ þá autosiphon og bottling wand næst þegar ég kaupi hráefni
Benni á svona plate chiller og við notuðum hann án dælu síðast með fínum árangri.
Ég hringdi í Vínkjallarann og Ámuna en hvorug búðin átti alla þessa hluti til og engin þeirra er með plate chiller og krana (sem eru aðal hlutirnir). Miðað við estimate á sendingarkostnaði frá homebrewstuff.com, 15% tolli (ég veit ekki hvort þetta sé rétt tala), 25,5% vsk og núverandi gengi á USD, þá er homebrewstuff.com alltaf sambærilegt eða ódýrara.
Re: Græjukaup
Posted: 2. Jul 2012 16:10
by sigurdur
Plate chiller færðu hjá lagnavöruverslunum (notað sem varmaskiptir til að hita neysluvatn með hitaveituvatninu og fá þá neysluhæft kranavatn).
Re: Græjukaup
Posted: 2. Jul 2012 16:35
by dadjan
sigurdur wrote:Plate chiller færðu hjá lagnavöruverslunum (notað sem varmaskiptir til að hita neysluvatn með hitaveituvatninu og fá þá neysluhæft kranavatn).
Ég hringdi á nokkra staði og þetta virðist vera talsvert dýrara á klakanum. Það er alltaf þægilegra að kaupa hluti heima en þegar þetta virðist vera hátt í tvöfalt dýrara þá er það svolítið mikið

Re: Græjukaup
Posted: 2. Jul 2012 16:42
by hrafnkell
Getur líka skoðað counterflow chiller - Getur smíðað hann frekar ódýrt með hráefni hérna. Það er mikið auðveldara að þrífa þá, en þeir taka auðvitað aðeins meira pláss. Ég nota svoleiðis og er hæstánægður með græjuna.