Page 1 of 1
Víngerð
Posted: 16. Jul 2009 22:08
by GunnarD
Ég er nú algjör byrjandi í þessu sporti. En mér áskotnaðist svona þrúgusafi sem er að ég held nokkura ára gamall. Ég finn ekki neinn best fyrir dag og er að velta því fyrir mér hvort sé í lagi að nota þetta.
Með von um góð svör
Kveðja Gunnar
Re: Víngerð
Posted: 16. Jul 2009 22:49
by Andri
Tjah, eina sem þú tapar á því að prufa er gerjunarílát(í einhvern tíma) og smá tími til að sjá hvort þetta gerjast...
#1 í hvernig umbúðum er safinn sjálfur...
#2 ef þetta er poki er hann tútnaður út
#3 er mikið loft í honum?
#4 Frá hvaða framleiðanda er þetta?
#5 Veistu hvar þetta var keypt (líklegast í ámunni) kanski þú gætir farið með þetta til þeirra og spurt þá karla
#6 Er þetta rauðvín eða hvítvín eða eitthvað berjavín?
væri fínt að sjá mynd af umbúðunum eða bara ágæta lýsingu
Re: Víngerð
Posted: 17. Jul 2009 01:22
by Eyvindur
Gáðu bara. Tapar engu, nema smá geri.
Já, ekki nota gerið sem fylgir með (ef það er eitthvað). Farðu í Ámuna og kauptu eitthvað ódýrt vínger. Kýldu svo bara á þetta. Ekkert víst að það klikki.
Re: Víngerð
Posted: 17. Jul 2009 11:03
by GunnarD
1.Hann er í poka sem er ofan í kassa
2.Ekki mikið loft nánast ekkert
3.Ekkert loft
4. Keypt í ámunni
5. Þetta er rauðvín
6.
http://aman.is/index.php?page=shop.prod ... p&Itemid=1" onclick="window.open(this.href);return false;
Nákvæmlega eins og þessi
Verður maður bara ekki að prófa þetta.
Ég á 25 L glerkúta á ég ekki bara að nota þá?
Re: Víngerð
Posted: 17. Jul 2009 12:41
by Andri
Cabernet merlóóóóv, þetta hlýtur að vera í lagi

endilega prófaðu .. það stóð á síðunni "mælum með geymslu í 2-3 mánuði" tvö þrjú ár plús mínus...
Þetta er líka 7,5l skammtur sem vatnsblandast til að breyta þessu upp í 23 þannig að þetta hlýtur að vera mjög mikið af gerjanlegum sykrum...
þú verður að prófa þetta, það er ekkert vit í því að farga þessu... ég er reyndar að vinna í förgunardeild Fágunar þannig að þú getur skilað þessu til mín á næstu urðunarstöð, ekki trúa Eyvindi hann er bara svikari og ætlar sér að drekka þetta sjálfur eða jafnvel selja ungum börnum þetta.
Re: Víngerð
Posted: 17. Jul 2009 13:18
by Eyvindur
Fyrir hönd förgunardeildarinnar verð ég að mótmæla þessum dylgjum. Starfsmenn förgunardeildarinnar hafa hlotið áralanga þjálfun á sínu sviði og eru fagmenn fram í bragðlauka.
Re: Víngerð
Posted: 17. Jul 2009 14:38
by Öli
Þetta er óóónýtt... ég skal renna við hjá þér eftir vinnu og farga þessu fyrir þig
Í meiri allvöru ... líkurnar á því að þetta sé ónýtt eru afar litlar. En sammála með gerið, fáðu nýtt.
Re: Víngerð
Posted: 27. Jul 2009 23:07
by GunnarD
Jæja þá er þetta komið af stað og sýndi sykurflotsmælirinn 1080. Ég fór að settum ráðum og keypti nýtt ger og nú er bara að bíða og sjá.
Re: Víngerð
Posted: 27. Jul 2009 23:08
by Hjalti
Frábært!
Láttu okkur endilega fylgjast með því hvernig þetta gerjast

Re: Víngerð
Posted: 28. Jul 2009 19:43
by GunnarD
Jæja þá er þetta komið af stað og það bubblar svolitið í vatnslásnum.