Page 1 of 1

Verðmat á búnaði?

Posted: 9. Jun 2012 18:39
by Idle
Uppfært: Ég get haldið í áhugamálið eftir allt, svo ekkert er til sölu af búnaðinum. Korn, ger og humlar mega þó fara til duglegri eigenda, þar sem ég hef takmarkaðan tíma til bjórgerðar. Leitt að láta allt þetta efni fara til spillis.

Hvað væruð þið reiðubúnir að borga fyrir eftirfarandi? Er í svolitlum erfiðleikum, og er að velta fyrir mér hvort það væri þess virði fyrir mig að selja græjurnar.

Um er að ræða:
  • 60 l. suðutunna með þremur 2200W elementum
  • 35 lítra meskiker (með barka)
  • 30 lítra tunna (hugmyndin var að nota hana til að hita meskivatnið í, en hún er enn í heilu lagi - góð gerjunarfata)
  • BarleyCrusher með 15 punda trekt
  • Nokkrar (5 eða 6 minnir mig) plast gerjunartunnur, 30 lítra, með tilheyrandi (gúmmí og loftlásar)
  • Solarproject SP20 dæla
  • Þrír 5 gallon kútar með tilheyrandi gúmmí og aukahlutum ("smurning", aukasett af O-hringjum)
  • 5 punda kolsýruhylki (mælt, fullt og vottað)
  • Tvöfaldur þrýstijafnari
  • Þrír Perlick SS 525 kranar
  • Um 2 kg. af ýmsum humlum
  • Slatti af ýmsum gertegundum (þurrger)
  • Heill 25kg. sekkur af Pale Ale, og nokkrir 5 kg. sekkir af ýmsum sér möltuðum (honey, biscuit o. fl) - allt óopnað
  • Flöskutré með skál og sprautustút. 7x9, tekur 63 flöskur.
Eflaust eitthvað fleira sem ég er að gleyma. Já, t. d. krydd, humlapokar, yfir 1.000 tappar og sitthvað annað.

Re: Verðmat á búnaði?

Posted: 9. Jun 2012 18:56
by Gvarimoto
Áttu krana á kútana líka ?

Gæti haft mikinn áhuga á kútasetupi


Edit, tók eftir þeim núna, sendi þér PM.

Re: Verðmat á búnaði?

Posted: 9. Jun 2012 19:00
by bergrisi
Viltu selja allt saman eða brjóta þetta niður? Væri til í hluta af þessu.

Re: Verðmat á búnaði?

Posted: 9. Jun 2012 19:10
by Idle
Ef ég sel (fer eftir hæsta boði), þá vil ég reyna að losna við sem mest í einu (þarf umtalsverða fjárhæð á einu bretti). En velkomið að gera tilboð. Fylgist með einkaskilaboðum. :)

Re: Verðmat á búnaði?

Posted: 9. Jun 2012 19:48
by Idle
Korn og annað sem ég er með á skrá hjá mér (hef ekki haldið nógu vel utan um humla og ger, en það er þó slatti af slíku).
  • Pale Ale 7 EBC, 25 kg
  • Melanoidin, 5 kg
  • Aroma 150 EBC, 5 kg
  • Cara-crystal 120 EBC, 5 kg
  • Cara-red 40 EBC, 5 kg
  • Special-B 350 EBC. 5 kg
  • Biscuit 50 EBC, 5 kg
  • Flaked rice, 1 kg
  • Lactose, 1 kg
Svo er þarna einnig loftdæla með steini.

Re: Verðmat á búnaði?

Posted: 9. Jun 2012 20:11
by Idle
Hráefnið má allt fara, þar sem ég er ekki að fara að brugga á næstunni.
Búnaðinn væri fínt að fá tilboð í, en lofa engu um sölu (unless you make me an offer that I can't refuse!). Skýrist líklega ekki fyrr en um mánaðamótin júní, júlí.

Re: Verðmat á búnaði?

Posted: 9. Jun 2012 21:18
by hrafnkell
Hugsa að kúta græjurnar séu allvega 70-80k virði, hugsanlega meira. Það eru margir að leita að svona, og þetta hefur hækkað slatta síðan þú keyptir þínar græjur.

Barley crusher 25-30k
solarproject 5-7k
gerjunarfötur 5-7k
meskikar 6-10k?

Veit ekki meira, en ætti að gefa þér einhverjar hugmyndir um verðlagningu allavega :)


Hvað er sérmaltið allt gamalt? Ég væri hugsanlega til í laktósann, prófa að gera milk stout :)

Re: Verðmat á búnaði?

Posted: 9. Jun 2012 22:24
by Idle
Hélt það líka... Tiltölulega auðvelt að blekkja mig í svona viðskiptum.
Þetta lætur nærri lagi. Sem betur fer geymi ég allar nótur og kvittanir í sambandi við bruggið, svo ég hef við eitthvað að styðjast.

Kornið er allt um 14 mánaða. Innsiglað í upprunalegum umbúðum og geymt í lokaðri kistu við um 10°C. Humlar og ger alltaf geymdir í frysti við -12°C. Eitthvað af humlunum hefur verið opnað, en ég hef alltaf reynt að lofttæma zip-lock pokana eins og hægt er.