Page 1 of 1

Græjurnar úr Hólminum komnar með nýtt heimili

Posted: 12. Apr 2012 23:51
by Classic
Mjöður í Stykkishólmi verður Steðji í Borgarfirði:

http://skessuhorn.is/Default.asp?sid_id ... 26&meira=1

Alltaf gaman að nýjungum, ég vona að þetta geri meira fyrir mann en það sem kom úr tækjunum á gamla staðnum...

Re: Græjurnar úr Hólminum komnar með nýtt heimili

Posted: 13. Apr 2012 00:50
by bergrisi
Góðar fréttir. Vonandi gengur þeim sem allra best. Verður bara gaman að fá meira úrval af íslenskum bjórum.

Re: Græjurnar úr Hólminum komnar með nýtt heimili

Posted: 13. Apr 2012 10:47
by helgibelgi
Já þetta líkar mér! :skal:

Re: Græjurnar úr Hólminum komnar með nýtt heimili

Posted: 16. Apr 2012 23:02
by Feðgar
Hvernig fór þetta mál.

Við vorum einhverntíman að forvitnast um þessi tæki (bara til gamans) og þá var okkur tjáð að það væri ekki til neins þar sem allt væri fast í málaferlum og rugli.

Re: Græjurnar úr Hólminum komnar með nýtt heimili

Posted: 16. Apr 2012 23:04
by hrafnkell
Feðgar wrote:Hvernig fór þetta mál.

Við vorum einhverntíman að forvitnast um þessi tæki (bara til gamans) og þá var okkur tjáð að það væri ekki til neins þar sem allt væri fast í málaferlum og rugli.
Þau voru svo auglýst til sölu fyrir 1-2 mánuðum.

Re: Græjurnar úr Hólminum komnar með nýtt heimili

Posted: 17. Apr 2012 20:03
by Feðgar
Veit einhver hvert uppsett verð var?

Re: Græjurnar úr Hólminum komnar með nýtt heimili

Posted: 29. Apr 2012 17:09
by gunnarolis
Ég ætla að giska á svona 35-40 milljónir give or take.

Ég spurðist fyrir um tækin hjá byggðarstofnun þegar þau voru í sölufasa, og ég get fullyrt að það var enginn fagmaður spurður álits eða látinn gera verðmat á þessu. Það var meira að segja erfitt að fá lista yfir hvað væri inni í húsinu, ekki hægt að fá tæmandi lista, og menn fengu sendar ljósmyndir til þess að bjóða í tækin.

Einnig var uppgefið að verksmiðjan hefði ný kostað um 110 milljónir.

Sel það ekki dýrara en ég stal því.

Re: Græjurnar úr Hólminum komnar með nýtt heimili

Posted: 1. May 2012 10:40
by Feðgar
Ég heyrði 20 milljónir.

Líkt og þú þá sel ég það ekki dýrara en ég keypti það en ef svo var þá fékk einhver góðan díl