Page 1 of 1

Mjaðarlyng

Posted: 10. Apr 2012 14:25
by kalli
Ég var að sjá að það er hægt að fá Mjaðarlyng (Sweet Gale, Myrica Gale) í Gróðrastöðinni Mörk.
http://www.mork.is/morkweb/index.php?pa ... &Itemid=11" onclick="window.open(this.href);return false;

Þá er að ná sér í plöntu og prófa í einhverja lögnina á næstunni.

Re: Mjaðarlyng

Posted: 10. Apr 2012 22:52
by bjarkith
Á að demba sér í Gruit eða bara til að krydda með humlunum?

Re: Mjaðarlyng

Posted: 11. Apr 2012 10:17
by kalli
Það væri gaman að prófa hvorutveggja. En byrja með einhvern einfaldan bjór með beiskjuhumlum og sjóða mjaðarlyngið með í lokin. Einhversstaðar sá ég að það var sett dass í 30min og dass í 10min.

Re: Mjaðarlyng

Posted: 12. Apr 2012 10:26
by bjarkith
Þú verður þá að posta niðurstöðum, hef alltaf verið dálítið spenntur fyrir svona gruit pælingum, bara ekki enn þorað að leggja í það.