Page 1 of 1

Gerjunarflöskur

Posted: 26. Jan 2012 21:51
by gugguson
Sælir herramenn.

Ég er með tvær 23L glerflöskur sem ég keypti í Ámunni til að gerja í. Þær eru frekar dýrar og ég er tvístígandi hvort ég eigi að kaupa fleiri þar. Er hægt að kaupa sambærilegt á Íslandi á lægra verði, og kannski í fleiri stærðum (primary/secondary)? Eru kannski flestir í plastfötunum?

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 26. Jan 2012 22:11
by bjarkith
Getur keypt þér vatnskút eins og er í þessum vatnsvélum í flestum fyrirtækjum og notað sem plast carboy, kostar einhvern 2000kr.

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 26. Jan 2012 22:18
by gosi
bjarkith wrote:Getur keypt þér vatnskút eins og er í þessum vatnsvélum í flestum fyrirtækjum og notað sem plast carboy, kostar einhvern 2000kr.
Veistu hvar maður fær þá?

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 26. Jan 2012 22:19
by bjarkith
Ææ man ekki hvað fyrirtækið heitir, eithvað Vatn minnir mig en það er úti á völlum í Hafnarfirði.

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 26. Jan 2012 22:25
by bjarkith
http://www.kerfiehf.is/item.php?item=396" onclick="window.open(this.href);return false;

Hérna t.d. ég hef talað við þessa gæja og þeir voru tilbúnir að selja kútana, selecta er líka með svona og ölgerðin en ég hef ekkert talað við þá.

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 26. Jan 2012 23:27
by sigurdur
Bara passa að það sé ekki endurvinnsluflokkur 7 fyrir plastið.

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 26. Jan 2012 23:45
by gugguson
Endurvinnsluflokkur 7??

Hvað eru þeir tilbúnir að selja kútana á? Er það sama verð og að kaupa með vatni? Fágun ætti kannski að taka saman hóppöntun á svona kútum og fá gríðarlegann magnafslátt?

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 27. Jan 2012 08:33
by viddi
Er ekkert vont að þrífa þessar flöskur þar sem þær eru svo ójafnar að innan? Er sjálfur að gerja í plastfötu eftir að ég braut glerið mitt sem hafði fengið að vinna fyrir laununum sínum einu sinni :x
Annars var Vínkjallarinn með fleiri stærðir í flöskum og mig minnir að verðið hafi líka verið skárra en hjá Ámunni á þessum stóru. Veit ekki hver staðan er í dag.

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 27. Jan 2012 09:56
by Squinchy
Ég nota þessar plast flöskur undir grunnmalt, mjög þægilegt að geyma kornið í þeim

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 27. Jan 2012 10:25
by hrafnkell
Það er forvitnilegt hvaða efni er í þessum flöskum, þær eru víst misgóðar fyrir gerjun, eftir því hvaða efni er í þeim.

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 27. Jan 2012 12:33
by bjarkith
Held þetta séu nákvæmlega sömu flöskur og eru seldar sem gerjunar carboy, bara búið að líma annan límmiða á þær flöskur sem eru seldar í brugg.

En annars þá kaupiru bara á þessar 1000-2000kr flösku með vatni, svo skilaru henni bara ekki og færð ekki skilagjaldið.

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 27. Jan 2012 14:33
by sigurdur
Það eru mjög mismunandi efni í flöskunum, og ef það er endurvinnslumerki 7 á þeim ( http://en.wikipedia.org/wiki/Plastic#Recycling" onclick="window.open(this.href);return false; ) þá ættir þú helst ekki að nota dunkinn.
Endurvinnsluflokkur 7 er svokallaður ruslflokkur sem þýðir allt annað plast en hin 6. Þú veist aldrei hvaða efni eru í því plasti.

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 27. Jan 2012 15:30
by bjarkith
Eftir smá google athugun sá ég að flestar svona vatnsflöskur eru úr #7 plasti, svo ég mæli me að hringja í fyrirtækin og spurja í hvaða flokki þeirra flöskur eru.

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 27. Jan 2012 16:02
by hrafnkell
Jamm það er vandamálið. Margar svona flöskur eru hinsvegar gerðar af sama fyrirtæki og better bottle, og því tilvalið að reyna að verða sér úti um þannig :)

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 16. Feb 2012 19:23
by gugguson
Hefur einhver farið í það að kanna þetta? Þyrfti flösku (19-20L) fyrir secondary svo ég geti farið að nota aftur primary flöskurnar mínar.

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 16. Feb 2012 20:10
by gunnarolis
Kaupa bara fleiri tunnur og sleppa þessu secondary dæmi. Ekki láta tunnuskort valda bruggfalli :skal:

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 16. Feb 2012 20:16
by gugguson
Já, það er kannski rétt. Hef reyndar einhverja fordóma gagnvart plasttunnum í gerjun ... hef ekki mikið fyrir mér í því.

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 16. Feb 2012 20:21
by gunnarolis
Það fer að nálgast 40 uppskriftir sem ég hef gert, og allar þeirra hef ég gert í plast tunnum. Þær virka vel og eru mikið mun ódýrari en glerið og auðveldara að þrífa þær.

Prófaðu að fá þér fötu og gáðu hvort þú nærð ekki að taka þær í sátt :fagun:

Re: Gerjunarflöskur

Posted: 16. Feb 2012 21:11
by gugguson
Challenge accepted!
gunnarolis wrote:Það fer að nálgast 40 uppskriftir sem ég hef gert, og allar þeirra hef ég gert í plast tunnum. Þær virka vel og eru mikið mun ódýrari en glerið og auðveldara að þrífa þær.

Prófaðu að fá þér fötu og gáðu hvort þú nærð ekki að taka þær í sátt :fagun: