Page 1 of 1
Brugg kerfið mitt
Posted: 27. Dec 2011 23:27
by Squinchy
Sælir félagar
Jæja þá er ég loksins farinn út í það að setja hitahald í suðupottinn minn
Þarna er ég búinn að safna saman ýmsum hlutum
10M af 6q kapal
2* 32A tengla og kær
PID styringu og hitanema
40A SSR
25A öryggi
tengidós
nippill
5.5KW hitahald
Er búinn að setja upp 32A tengilinn og öryggið komið í aðaltöfluna
Eitt sem ég er að spá í er þessi "ró" sem ég ætla að nota á hitahaldið
Var að spá í að stytta þetta svo að aðeins róin væri eftir, er eitthvað sem mælir gegn því að saga þetta með járnsög ?
Hérna er svo kælingin sem ég er að spá í að nota fyrir SSR

Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 28. Dec 2011 00:26
by Maggi
Gaman að þessu.
Mætti ég spyrja hvað eftirfarandi kostaði og hvar það var keypt
10M af 6q kapal
2* 32A tengla og kær
Var að spá í að stytta þetta svo að aðeins róin væri eftir, er eitthvað sem mælir gegn því að saga þetta með járnsög ?
Ef þú ert góður að saga þá er ekkert að því

Mundu bara að oft sitja eftir litlar áfastar stálflísar sem þarf að pússa niður eða skafa. Annars er hægt að fá 1" ryðfríar rær hjá Metal í Hafnarfirði á ca 700 kall ef ég man rétt. Algjör óþarfi að eyðileggja minnkunina. Sé reyndar núna að þessi minnkun hjá þér er úr 316 stáli. Það er alls ekki auðvelt að saga svoleiðis með járnsög. Ég held þú myndir gefast upp frekar fljótt. Ég mæli með að kaupa bara nýja ró hjá Metal, Barka, Landvélum, ofl.
Svaka flott kæliplata. Hvar fékkstu hana?
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 28. Dec 2011 00:53
by Squinchy
Minnir að 32A tengillinn sé á ~1600.kr og klóin á ~1000.kr í húsasmiðjunni
kæliplatan er örgjörfa kæliplata frá zalman, hægt að fá svipaðar kæliplötur í flestum tölvuverslunum
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 30. Dec 2011 15:16
by Squinchy
Skipti hitanemanum út fyrir týpu sem er með hraðtengi við nemann, fór svo í íhluti í dag og keypti nokkur herpi ádrög og fléttaða skermingu til að fá smá auka vörn utanum vírinn, setti svo mini XLR tengi á hinn endann
Fór einnir í Metal og fékk þar aðra ró sem hentar betur fyrir hitahaldið, splæsti einnir í riðfríann 1/2" krana, noppil og hné til að nota sem gegnum tak, þá held ég að ég sé búinn að skipta öllu út fyrir riðfrítt í pottinum
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 30. Dec 2011 15:26
by hrafnkell
Þetta er flott
Mini xlr tengin eru ansi þægileg, mæli sterklega með þeim. Ertu búinn að redda þér kassa fyrir stýringuna?
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 30. Dec 2011 16:58
by Squinchy
Takk, nei ekki ennþá er enn að leita
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 30. Dec 2011 23:21
by Feðgar
Sælir, við höfum verið að pæla, hverjir eru kostir þess að nota SSR yfir hefðbundinn spólurofa?
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 31. Dec 2011 00:27
by Squinchy
Spólurofi mun brenna fastur mjög fljótt ef hann er látinn rjúfa og tengja 20+A með stuttu millibili eins og PID stýring gerir, ssr hefur engar snertur sem mynda neista og brennur þar af leiðandi ekki fastur
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 31. Dec 2011 09:24
by hrafnkell
Þegar maður er með pid stýringu þá er maður venjulega með hana á 2-5sek duty cycle. Miðað við 2sek duty cycle, þá er maður að kveikja og slökkva amk 5000 sinnum í einni bruggun. Spólurofar eru venjulega gefnir upp fyrir nokkra tug þúsunda cycles, á meðan ssr mikið fleiri (óendanlega), og er mikið fljótara að slökkva/kveikja.
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 31. Dec 2011 12:37
by Feðgar
Já þið meinið, takk fyrir það
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 6. Jan 2012 00:06
by Squinchy
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 9. Jan 2012 20:51
by Squinchy
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 9. Jan 2012 23:22
by Squinchy
Prufukeyrslan fór öll eftir óskum, frá 8°C upp í 98°C tók sirka 25 - 30 mínútur, SSR hitinn fór hæst upp í 22,9°C
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 9. Jan 2012 23:36
by sigurdur
Mjög flott.

Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 9. Jan 2012 23:45
by hrafnkell
Flott, og flottur frágangur á kassanum. Annað en víraflækjan í mínum!

Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 10. Jan 2012 21:38
by Maggi
Til hamingju með þetta.
Hvað hitaðir þú marga lítra af vatni?
Er það rétt skilið hjá mér að þú opnar og lokar (með snaranum) fyrir spennuna sem PID sendir frá sér inn á SSR? Þetta opnar þá fyrir straum inn á elementið og þessi uppsetning kallar ekki á spólurofa?
Re: Brugg kerfið mitt
Posted: 10. Jan 2012 22:21
by gunnarolis
Það er rétt. SSR kemur í staðinn fyrir spólurofann. SSR er snertilaus "spólurofi", þeas virkar eins og spólurofi nema án hreifanlegra hluta, þessvegna brennur hann ekki fastur og endist mun lengur en spólurofi.