Page 1 of 1
Að skapa KLÓN
Posted: 23. Nov 2011 21:41
by Feðgar
Sælir
Ég var að drakka Norðan Kalda um daginn og datt í hug að við þyrftum kannski að gera einhvað svipað, svona til að auka fjölbreyttnina af því sem við eigum.
Þetta er léttur og ljúfur bjór en samt í dekkri kanntinum, sérstaklega fyrir fólk sem annars drekkur bara thule og LITE að slíkt.
Svo ég fór að leita hérna á síðunni og eini þráðurinn sem ég fann um íslenskan klón var af Úlf eða slíkum American pale ale.
Því langar mig að biðla til mér vitrari manna um upplýsingar um það hvernig Norðan Kalda Klón gæti hugsanlega verið, korn, humla og ger val t.d.
Kv. Feðgar

Re: Að skapa KLÓN
Posted: 24. Nov 2011 15:15
by sigurdur
Ég man nú ekki hvernig Norðan kaldi bragðaðist, en hann er öl með þéttum humla og maltkeim.
Þú getur prófað að senda fyrirspurn um innihald og tímasetningar í bjórnum til bruggsmiðjunnar.
Re: Að skapa KLÓN
Posted: 24. Nov 2011 22:05
by Feðgar
Maður hefur séð á HBT og öðrum síðum að menn taka sig saman og leggjast yfir einhverjum klón og pæla og spekúlega.
Og svo leggur hver í sína tunnuna og í lokin bera menn saman bækur sínar.
Svona til að gera þetta að aðeins meiri social sporti.
Ég er ekkert að leggja til að menn geri það með Norðan Kalda, flestir hérna eru nú í meiri og flóknari bjórum en það, en samvinnan heillar.
Spjallið er búið að vera dauft undanfarið, langaði því enn meira til að fá einhverja í lið með okkur til að kljúfa þennan. Hver veit, það gæti orðið úr því hefð

Re: Að skapa KLÓN
Posted: 24. Nov 2011 22:58
by sigurdur
Já, þetta yrði áhugaverð tilraun.
Það væri áhugavert að athuga hvaða bjóra flestir vilja prófa að klóna, og prófa það svo.
En nota bene, að klóna bjór er ekki létt verk jafnvel þó að þú sért með uppskriftina. Ef þú trúir því ekki, þá mæli ég með að þú hlustir á "Can you brew it" þættina.
Re: Að skapa KLÓN
Posted: 24. Nov 2011 23:12
by Eyvindur
Ég held að í öllu falli sé nauðsynlegt að fara að gera fleiri hóptilraunir. Þessi er skemmtileg.
Iron Brewer væri líka skemmtileg.
Re: Að skapa KLÓN
Posted: 24. Nov 2011 23:48
by Feðgar
Jú ég geri mér grein fyrir því að það er ekki létt verk að klóna bjór svo vel sé.
Og Eyvindur þú ert alveg með þetta, sama hvaða bjór það yrði, hóptilraunir hljóta að vera skemmtilegar. Útkoman er jú alltaf BJÓR

Re: Að skapa KLÓN
Posted: 25. Nov 2011 10:35
by tolvunord
Það gæti verið gaman að taka þátt í einhverju svipuðu og Iron Brewer...

Re: Að skapa KLÓN
Posted: 25. Nov 2011 10:40
by hrafnkell
tolvunord wrote:Það gæti verið gaman að taka þátt í einhverju svipuðu og Iron Brewer...

Þetta er svipað hóplögninni sem við fórum í seinasta vetur. Væri gaman að mixa það aftur.
Re: Að skapa KLÓN
Posted: 25. Nov 2011 16:23
by Feðgar
tolvunord wrote:Það gæti verið gaman að taka þátt í einhverju svipuðu og Iron Brewer...

Á forsíðunni segir að það séu bara þrjú hráefni, en svo eru miklu flr í uppskriftunum sjálfum
