Page 1 of 1
Jólabjórinn í ár
Posted: 19. Nov 2011 11:30
by arnarb
Mikið var gaman að sjá Fágunarmeðlimi í Fréttatímanum í gær að dæma jólabjóranna í ár. Þið voruð stórglæsilegir.
Ég fór í ríkið í gær og keypti nokkrar tegundir af jólabjór og var örtröð að komast að í bjórkælinum. Fólk virðist almennt taka mikið mark á þessum dómum, enda er um sérfræðinga að ræða á þessu sviði!
Í vinnunni hjá mér var mikið rætt um þetta líka og sjálfsagt á fleiri vinnustöðum. Þetta framtak er greinilega komið til að vera.
Þá er einnig gaman að sjá hversu hátt hlutfall er af íslenskum jólabjórum, en eingöngu eru 3 erlendir jólabjórar í greininni. Stekkjastaur var því miður uppseldir í Skútuvoginum en kemur eftir helgi skv. starfsfólkinu. Ég hvet alla áhugamenn að láta ekki þessa eðalbjóra fram hjá ykkur fara, enda kláruðust birgðirnar og fyrra og miðað við viðtökurnar í ríkinu í ár, má búast við að sama verði uppá teningnum í ár. Þeir líktu deginum í gær sem "þorláksmessustemningu" (
http://mbl.is/frettir/innlent/2011/11/1 ... inbudunum/).
skál

Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 19. Nov 2011 12:01
by sigurdur
Ég las þessa grein og þótti hún ágæt.
Hún paraðist svona ágætlega við mat fólks (meðaltal einkunnargjafar) á jólabjórskynningunni í Verkís í vikunni. Ekki alveg þó samt.
Leiðinlegast þótti mér þó að sjá í greininni að það var ekki metið Leppalúða jólabjór, sem er nýr á markaðinum.
Leppalúði er framleiddur í Belgíu fyrir innflutningsfyrirtæki hér á landi.
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 19. Nov 2011 14:25
by hrafnkell
Það var ákveðið að leppalúði yrði ekki með vegna þess að hann er heilsársbjór, framleiddur í belgíu, með íslenskum jólalímmiða.
Við smakkararnir gáfum honum hæstu einkunn af öllum jólabjórum, en fréttatímaköllunum fannst asnalegt að hafa hann með, sem ég var svosem sammála að einhverju leyti. Ég mæli með því að allir bjórnördar (og þá sérstaklega belgíubjórnördar) næli sér í leppalúða. Upplagið er lítið og hann er á mjög góðu verði. Hann á eftir að hverfa fljótt
Það var takmarkað pláss í blaðinu fyrir smökkunina þannig að það kom ekki nálægt því allt í blaðið sem við höfðum að segja um bjórana

Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 19. Nov 2011 15:04
by sigurdur
hrafnkell wrote:Það var takmarkað pláss í blaðinu fyrir smökkunina þannig að það kom ekki nálægt því allt í blaðið sem við höfðum að segja um bjórana

Það hefur verið reyndin í gegn um allar smakkanirnar, en það er ókosturinn við það að við gefum ekki blaðið út sjálfir

Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 19. Nov 2011 16:20
by halldor
hrafnkell wrote:
Við smakkararnir gáfum honum hæstu einkunn af öllum jólabjórum, en fréttatímaköllunum fannst asnalegt að hafa hann með, sem ég var svosem sammála að einhverju leyti. Ég mæli með því að allir bjórnördar (og þá sérstaklega belgíubjórnördar) næli sér í leppalúða. Upplagið er lítið og hann er á mjög góðu verði. Hann á eftir að hverfa fljótt
Ég braut meira að segja eina grunnreglu bjórdómarans og gaf Leppalúða 100 af 100 mögulegum. Þar sem hann var svo miklu miklu miklu betri en allir hinir jólabjórarnir. Hann er á mjög sanngjörnu verði og ég mæli með því að menn nái sér í 1-2 flöskur áður en orðið er um seinan.
Fleiri pælingar frá mér persónulega ef menn hafa áhuga á:
Albani er bestu kaupin miðað við gæði og verð... að mínu mati.
Jóla Tuborg er ekkert mjög spennandi og hefur aldrei verið.
Víking Jólabjór er ekkert jólalegur og fékk falleinkunn hjá flestum af þeim sökum.
Gæðingur Jólabjór fékk 80 af 100 eða yfir frá þremur af fjórum dómurum en einn (ónefndur) dómarinn dró hann all svakalega niður.
Ölvisholt Jólabjór var svipaður og tvö síðustu ár, en aðeins var búið að draga úr reyk og negul. Það fer ekki mikið fyrir kanil fyrr en hann volgnar örlítið.
Skál

Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 19. Nov 2011 17:19
by GRV
Er sammála með Leppalúða. Er að sötra hann núna og hann ber algerlega af!
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 21. Nov 2011 21:17
by ulfar
Vitið þið meir um hann. Hver framleiðir og hvað bjórinn heitir í ,,alvörunni"?
kv. Úlfar
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 21. Nov 2011 23:46
by bergrisi
Var að sjá Fréttatímann á netinu núna (er ekki borinn út í sveitinni). Mikið eruð þið flottir þarna. Sendi strax póst í vínbúðina og pantaði helstu jólabjóra og fæ þá á morgun.
Þið eruð flottastir.
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 22. Nov 2011 10:17
by hrafnkell
ulfar wrote:Vitið þið meir um hann. Hver framleiðir og hvað bjórinn heitir í ,,alvörunni"?
kv. Úlfar
Ég veit ekki, en ég set þig í málið. Býst við skýrslu í vikulok.
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 26. Nov 2011 12:59
by bergrisi
Er að drekka Leppalúða núna. Ætlaði að fá mér einn bjór áður en ég held áfram í jólaundirbúningi. Gott að hann er 750 ml. svo ég er ekki að fara gera neitt á næstunni.
Sé á miðanum að Létt og gott flytja hann inn.
http://www.logg.is" onclick="window.open(this.href);return false;.
En tek undir með hinum hér. Þetta er einstaklega ljúfur drykkur.
Ef maður vill brugga einn svona dökkan með hverju mælið þið?
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 26. Nov 2011 13:06
by Eyvindur
Ef þú vilt brugga Dubbel eða bara dökkan bjór yfir höfuð?
Ég hef að vísu aldrei bruggað Dubbel sjálfur, en held að aðalatriðið sé dökkt kandísíróp (keypt eða heimatilbúið - leiðbeiningar um slíkt er að finna á netinu) og gott, belgískt ger (T-58 væri eflaust gott, en kannski enn betra að finna eitthvað gott Trappist ger). Mér finnst ég reyndar líka finna bragð af mjög dökku kristalmalti af Leppalúða - CaraAroma eða eitthvað þvíumlíkt.
Ég mæli með því að allir sem hafa áhuga á belgískum bjórum lesi Brew Like a Monk. Þar er mikið um svona bjóra. Svo myndi ég bara finna sem flestar uppskriftir á netinu til að sjá hvað er gegnumgangandi í svona bjórum. Sjá miðgildin og frávikin í uppskriftunum. Mér finnst gott að byrja á
http://byo.com/stories/recipeindex.
Allavega, þetta er komið duglega off-topic. Njóttu!
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 26. Nov 2011 14:03
by bergrisi
Takk fyrir þetta. Fyrst ég var kominn á flug og konan ekki heima þá var ég að opna annan jólabjór og nú einn frá Kaliforníu.
http://www.anchorbrewing.com/beers/christmasale.htm" onclick="window.open(this.href);return false;.
Þessi er aðeins dekkri og því miður er ég einsktaklega lélegur að lýsa bjórum. Það er eitthvað einstaklega ljúft eftirbragð. Virkilega bragðmikill þó svo hann sé bara 5,5%.
Eftir þessa tvær smakkanir þá er ég hættur við að keyra í BYKO eftir jólaséríu.
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 26. Nov 2011 14:34
by sigurdur
Naunau .. jólabjórinn frá Anchor kominn út .... hann hefði án efa verið í top 3 hjá mér persónulega m.v. bjórinn í fyrra.
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 26. Nov 2011 15:29
by Feðgar
Hann (Anchor) er mjög góður, konan fílaði hann líka og fannst hann minna sig á einhvað sælgæti
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 26. Nov 2011 20:12
by kristfin
hvað var með þetta sápubragð sem dv strumparnir fundu af leppalúða. þeir voru jú að blindprófa þannig að það hlýtur að vera eitthvað að marka þá
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 26. Nov 2011 20:16
by sigurdur
Prófaðu bara bjórinn ... þegar ég og Eyvindur vorum að prófa þennan bjór, þá komu upp hugmyndir um tásvita og álíka.
Þetta er hinsvegar mjög mikið bakgrunnskeimur frekar en eitthvað yfirþyrmandi.
Restin er bara góður dubbel með banana / negul lykt og bragði ásamt dökkum þurrkuðum ávöxtum.
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 26. Nov 2011 20:19
by Eyvindur
Flúðasveppir. Það var bragðið sem sat fast í mér.
Re: Jólabjórinn í ár
Posted: 26. Nov 2011 20:36
by kristfin
ég á eftir að smakka hann. er bara í óbeinni drykkju hvað hann varðar amk