Page 1 of 1
Octane IPA
Posted: 25. Jun 2009 17:25
by sigurjon
Sælir. Þetta kemur dálítið seint, en...
Ég lagði í OIPA fimmtudaginn 11. júní kl. 09:34. Ég gleymdi reyndar að framkvæma flotvogarmælingu, en gizka á að staðan fyrir gerjun hafi verið 1066. (Hvaða eining er á þessari tölu annars?)
Eftir einn og hálfan sólarhring var nánast hætt að bobbla í vatnslásnum, en ég lét virtina vera áfram í tunnunni þar til á sjötta degi að ég færði hana í glerkút. Reyndar tók gerjunin við sér eftir það og nú, viku síðar, bobblar á hálfrar mínútu fresti í fullum vatnslási.
Ég ætla að hafa þetta í glerinu í viku í viðbót og athuga þá hvort komið sé að því að tappa á flöskur.
Þau mistök sem ég hef gert fyrir utan að gleyma flotvogarmælingunni eru m.a. að ég gleymdi að setja eikarspæninn í þangað til í gær og meðleigjandinn minn opnaði glugga í herberginu og loftið kólnaði talsvert í miðri gerjun. Ekki gott...
Meira síðar. Sjonni
Re: Octane IPA
Posted: 26. Jun 2009 00:52
by hallur
Nú, þetta verður þá ekki sælkerum bjóðandi... er þá ekki ágætt að taka upp þá reglu að gefa rónunum þetta bara ef eitthvað klikkar?
Re: Octane IPA
Posted: 26. Jun 2009 01:27
by Eyvindur
Þetta er ónýtt. Sendu þetta til mín í förgun.
Re: Octane IPA
Posted: 26. Jun 2009 12:37
by sigurjon
Hehe, það er tekið til greina...

Re: Octane IPA
Posted: 2. Jul 2009 01:35
by sigurjon
Nú í kvöld tókum við Hallur okkur til og settum téðan bjór á flöskur. Urðu úr heilar 55 og drukkum við eina saman og skiptum restinni í tvennt. Skv. flotvogarmælingu sýnir eðlismassahlutfallið 1014, sem er innan marka sem gefin eru upp af framleiðanda. Útreikningar sýna að hann ætti að vera um 6,97% áfengur. Nú er bara að bíða í nokkrar vikur þar til hægt verður að drekka...
Skál!

Re: Octane IPA
Posted: 2. Jul 2009 17:31
by Eyvindur
Ég smakka alltaf eftir fjóra daga... Orðin hefð.
Re: Octane IPA
Posted: 3. Jul 2009 01:23
by sigurjon
Já, kannske maður opni eina flösku þá og spái í spilin...

Re: Octane IPA
Posted: 8. Jul 2009 12:34
by sigurjon
Það vildi svo til að ég smakkaði líka eftir fjóra daga. Það kom mér á óvart hve mikið af kolsýru var komin í og ekki síður hve dökkur bjórinn var, þrátt fyrir að vera Pale Ale. Hann bragðaðist bara furðuvel, en ég bjóst við að þessi frumraun mín yrði ekki upp á marga fiska. Hjalti, Andri og Óli voru sammála því á mánudagsfundinum...

Re: Octane IPA
Posted: 8. Jul 2009 14:48
by Eyvindur
Athugaðu að hugtakið Pale Ale er gamalt, og frá þeim tíma þegar megnið af bjór sem var bruggaður var mjög dökkur eða jafnvel svartur. Þótt þetta sé kallað ljósöl er þetta ekki endilega ljóst samkvæmt okkar skynjun.
Svo var þetta líka extract, en sá bjór verður yfirleitt dekkri en sama uppskrift væri all grain. Sérstaklega LME, sem ég vænti þess að þið hafið fengið í pakkanum. Ekki síst ef þið hafið soðið hluta af vökvanum, en ekki allan, þá dökknar bjórinn oftast töluvert. Ein leið til að komast í kringum það er að bíða með að bæta ca. 2/3 af extractinu út í þar til mjög seint í suðunni, síðustu 10-15 mínúturnar eða svo.
Re: Octane IPA
Posted: 9. Jul 2009 02:53
by sigurjon
Takk fyrir þessar útskýringar Eyvindur. Hvaða áhrif hefur þessi ,,seinblöndun" á bragð og gæði?
Re: Octane IPA
Posted: 9. Jul 2009 08:08
by Eyvindur
Engin. Bara litinn.
Re: Octane IPA
Posted: 9. Jul 2009 15:26
by Andri
Ég var hrifinn af þessum get ég sagt, ég hefði samt fílað dash meira af humlum en hann var þrææælgóður
Re: Octane IPA
Posted: 9. Jul 2009 17:31
by sigurjon
Þökk fyrir það Andri. Hann verður svo bara betri með tímanum...

Re: Octane IPA
Posted: 14. Jul 2009 22:59
by Eyvindur
Reyndar eru skiptar skoðanir um hvort eigi að drekka IPA unga eða aldraða. Humlaanganin minnkar hratt, og humlabragðið minnkar sömuleiðis með tímanum. Fer auðvitað eftir því hvort þú ert að sækjast eftir humlageðveiki eða meira jafnvægi. En ef þú vilt humlageðveikina er hann bestur ungur. Ég er farinn að taka eftir því hvað humlarnir eru að minnka í IPAinum mínum, sem er nokkurra mánaða gamall.
Enn og aftur er þetta smekksatriði, en vertu meðvitaður um þetta. Ef þú vilt humlaangan og bragð sem allra mest er bjórinn líklega bestur fyrstu 3-4 mánuðina eða svo.
Re: Octane IPA
Posted: 15. Jul 2009 02:07
by sigurjon
Jamm. Takk fyrir þetta innlegg í umræðuna Eyvindur.
Ég veit ekki, ég held að ég sé enginn sérstakur humalmaður, þannig að líklega er bezt að láta þetta bíða aðeins...
Nú ertu búinn að rúgla mig endanlega í rímíní!

Re: Octane IPA
Posted: 15. Jul 2009 18:18
by hallur
Það verður að vera humlabragð... það er bjór.
Re: Octane IPA
Posted: 15. Jul 2009 22:34
by Eyvindur
Það er nú ekki alveg satt, Hallur. Hveitibjór er til dæmis nánast alveg laus við humlabragð, sem og margir belgískir bjórar, en ég myndi ekki flokka þá sem neinn annan drykk. Þetta er smekksatriði og fer algjörlega eftir því hverju er sóst eftir í hvert skipti. Ég er algjör humlahaus, en ég myndi ekki vilja fá súran, belgískan bjór með agalegri beiskju.
Re: Octane IPA
Posted: 16. Jul 2009 16:13
by hallur
Reyndar, herra yfirfargari. Það er reyndar misjanft hvaða bjór maður drekkur hvort humlabragðið þurfi að vera eður ei.
Re: Octane IPA
Posted: 18. Jul 2009 22:10
by sigurjon
Ég er búinn að smakka þennan og hann er vel drekkandi. Sterkur humlakeimur og dökkur á að líta. Alveg eðalöl!
Re: Octane IPA
Posted: 18. Jul 2009 22:29
by Hjalti
Tek undir þetta, algert eðal öl....