Page 1 of 1
Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 31. Aug 2011 23:37
by gunnarolis
Fór í Kringluna í dag og sá þar mætta 4 nýja bjóra sem vert er að gefa gaum.
Þetta eru :
Mikkeller Gypsy Juice
Mikkeller Koppi
Mikkeller USAlive
Mikkeller Monks Elixir
og svo þessi hér (Hann er reyndar bara kominn inn á vinbud.is en hlýtur að fara að koma í hillur)
La Trappe Quad Barrel aged
Allt eru þetta bjórar sem eru að fá mjög góða dóma og vel þess virði að smakka, hugsanlega deila með öðrum ef verðið stingur menn í augu
Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 1. Sep 2011 00:01
by gunnarolis
Þetta átti að sjálfsögðu að fara í almenn umræða..
Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 1. Sep 2011 01:34
by sigurdur
Það voru fleiri spennandi bjórar sem ég sá, t.d. Fuller's Past Masters sem er snilld.
Þið þurfið að fara í stóru búðirnar og kíkja

Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 1. Sep 2011 09:37
by hrafnkell
Ég fór í ríkið í gær:
Ekki ódýr ferð en ég er pínu spenntur að smakka þetta gotterí. Isid'or trappist, er það það þessi sem þú varst að tala um Gunnar?
Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 1. Sep 2011 09:56
by Feðgar
Já maður þarf greinilega að fara að koma við í ríkinu fljótlega, og nokkuð ljóst að það er allt of langt síðan maður hefur "þurft" að fara í ríkið hehe
Ég smakkaði þennann Trappist Dubbel um daginn og verð að segja að ég varð fyrir smá vonbrigðum.
Sem 7% bjór þá átti ég von á einhverju svipuðu og Leffa Blonde en Leffe er mun betri að mínu mati.
Leffe Blonde er minni bjór en þessi en einhvernvegin bara betur ballansaður IMO
Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 1. Sep 2011 10:07
by gunnarolis
Þetta er náttúrulega dubbel, ekki blond. Erfitt að langa í banana og kaupa epli og búast við bananabragði.
Hrafnkell skv vinbud.is sé ég núna að Isid'or er líka að koma.
Þá eru þetta 2 bjórar nýjir frá La Trappe, annarsvegar Isid'or sem þú ert með sem er 125 ára afmælisbjór brugghússins og síðan ætti að koma 330ml korkuð flaska með Oak aged Quadruppel...en hann er ekki kominn í neina búð ennþá.
Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 1. Sep 2011 10:10
by anton
Ég er La Trappe fan. Núna iða ég í sætinu!
Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 1. Sep 2011 12:03
by Feðgar
gunnarolis wrote:Þetta er náttúrulega dubbel, ekki blond. Erfitt að langa í banana og kaupa epli og búast við bananabragði.
.
Já þú meinar, maður þarf að fara að pæla meira í þessum Belgísku bjórum, veit ekki neitt.
Er með Tripel og Quad í kæli, spurning hvort þeir hitti í mark hjá manni.
Live And Learn, Skál

Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 1. Sep 2011 13:17
by anton
Feðgar wrote:gunnarolis wrote:Þetta er náttúrulega dubbel, ekki blond. Erfitt að langa í banana og kaupa epli og búast við bananabragði.
.
Já þú meinar, maður þarf að fara að pæla meira í þessum Belgísku bjórum, veit ekki neitt.
Er með Tripel og Quad í kæli, spurning hvort þeir hitti í mark hjá manni.
Live And Learn, Skál

Tripel er ljós, en samt ekki
Quad er dökkur, en samt ekki
Passa að drekka þá alls ekki of kalda. Það skiptir miklu máli.
Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 1. Sep 2011 14:28
by halldor
anton wrote:Feðgar wrote:gunnarolis wrote:Þetta er náttúrulega dubbel, ekki blond. Erfitt að langa í banana og kaupa epli og búast við bananabragði.
.
Já þú meinar, maður þarf að fara að pæla meira í þessum Belgísku bjórum, veit ekki neitt.
Er með Tripel og Quad í kæli, spurning hvort þeir hitti í mark hjá manni.
Live And Learn, Skál

Tripel er ljós, en samt ekki
Quad er dökkur, en samt ekki
Passa að drekka þá alls ekki of kalda. Það skiptir miklu máli.
Tripelinn má nú samt alveg vera smá kaldur
Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 1. Sep 2011 15:05
by atax1c
La Trappe Bockbier er rosalega góður, var með hann eftir jólamatinn í fyrra.

Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 1. Sep 2011 15:23
by gunnarolis
La Trappe Bockbier er rosalega góður, var með hann
í jólamatinn í fyrra.

Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 2. Sep 2011 13:48
by anton
gunnarolis wrote:La Trappe Bockbier er rosalega góður, var með hann
í jólamatinn í fyrra.

Nú veit ég veit hvað mig langar í jólamatinn. Þetta einfaldar líka töluvert eldamenskuna!
Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 15. Sep 2011 19:31
by haukur_heidar
Coffee IPA fékk til skamms tíma í sumar á Kaffibarnum, ég er búinn að þamba hann eins og vatn. Frábær bjór
Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 26. Nov 2011 14:31
by AndriTK
Ætlaði bara að láta vita að Mikkeller Green Gold IPA á að koma í reynslusölu 1.desember, hinsvegar frétti ég af því að hann er kominn nú þegar í hillur í kringlunni

Hrikalega öflugur IPA
Ratebeer 99 :
http://www.ratebeer.com/beer/mikkeller- ... old/71097/" onclick="window.open(this.href);return false;
http://bjorbok.net/MikkellersGreenGold.htm" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 26. Nov 2011 19:17
by gunnarolis
Drakk hann á Vínbarnum í vikunni, mjög öflugur IPA. Simcoe í aðalhlutverki, beiskjan aggresíf.
Ég ætla samt að benda á að þetta með að bjórinn sé með 99 á ratebeer er svolítið villandi (ekki það að hann eigi það ekki skilið) mig langar bara að útskýra einkunnagjöfina á ratebeer.
Eins og staðan er þegar þetta er skrifað er Green Gold með 99 og 99 og 3.84 í meðaleinkunn.
Skorið í bláa rammanum segir til um hversu vel bjórinn stendur sig miðað við alla aðra bjóra á síðunni, hann er semsagt með hærri einkunn en 99% af hinum bjórunum sem eru á síðunni (á adjusted percentile basis).
Skorið í græna rammanum segir til um hversu vel bjórinn stendur sig miðað við aðra bjóra í hans flokki (IPA í þessu tilfelli), þannig að hann er betri en 99% af hinum IPA bjórunum á síðunni (aftur á adjusted percentile basis).
Meðan að þetta eru ágætis upplýsingar, þá finnst mér í raun að meðaleinkunn notenda á síðunni gefi hinsvegar betri hugmynd um bjórinn heldur en akkúrat þessar tölur, þó að auðvitað sé þetta best saman.
Meira um einkunnagjöf Ratebeer
hér.
[edit] Typo.
Re: Veisla í nýjum bjórum í Ríkinu
Posted: 26. Nov 2011 22:21
by AndriTK
takk fyrir þessar upplýsingar. Ég var einmitt frekar óviss hvað þessar tölur þíða. Ratebeer mun öflugara tól þegar maður actually veit hvað þessar tölur seigja

- Er einmitt með Green Gold í glasi núna, og elska hann. Í honum eru Simcoe, Cascade og Amarillo humlar