Page 1 of 1
Amerískur IPA í átt að Úlf
Posted: 1. Aug 2011 20:49
by Örvar
Nú er Úlfur frá Borg í sérstöku uppáhaldi hjá okkur félögunum og okkur langar að búa til bjór sem er eitthvað í áttina að honum.
Erum nú ekkert að reyna að gera eitthvern klón af Úlfi en okkur langar að fá svipaðan humla karakter.
Maltið sem ég var að spá í er:
5,5kg Pilsner
500g Munich
300g Caramunich II
200g Carapils
OG ca. 1.060
Svo veit ég að í Úlfi eru columbus, cascade, simcoe og amarillo humlar en ég hef ekki glóru hvernig ég ætti að raða humlunum í suðuna svo mig langar að athuga hvort hér sé ekki einhver snillingurinn sem gæti komið með hugmynd að því
Allar ábendingar eru mjög vel þegnar

Re: Amerískur IPA í átt að Úlf
Posted: 1. Aug 2011 23:21
by bjarkith
Úlfur er India PALE ALE svo ég mæli með pale ale malti í stað pilsner maltsins annar mæli ég helst með slatta af amarillo í lokinn og þurrhumlunina, það virkaði vel í bjórnum mínu sem átti að vera í átt að úlfi.
Re: Amerískur IPA í átt að Úlf
Posted: 2. Aug 2011 12:16
by Örvar
Takk fyrir ábendinguna

Ég ætlaði að nota pilsner malt því það á að vera í úlfi en ég skipti því þá yfir í pale ale malt.
En ef einhver hefur hugmynd að góðri samsetningu á þessum humlum þá væri gaman að sjá það

Re: Amerískur IPA í átt að Úlf
Posted: 2. Aug 2011 13:20
by bjarkith
Humm já það er rétt hjá þér, það er notað pilsner malt í úlf samkvæmt bloggi bruggaranns, ég gerði bara ráð fyrir að hann notaði pale ale malt þar sem úlfur er india pale ale. Ekkert því til fyrirstöðu að nota þá pilsner maltið í staðinn.
Re: Amerískur IPA í átt að Úlf
Posted: 2. Aug 2011 21:43
by Örvar
Eftir smá grams á netinu rakst ég á þessa uppskrift:
http://www.homebrewtalk.com/f69/wounded-knee-ipa-77493/
Var að spá í að stela humlasamsetningunni úr henni. Uppskriftin væri þá eftirfarandi:
5,5kg Pilsner
500g Munich
300g Caramunich II
200g Carapils
15g Amarillo 60min
15g Simcoe 45min
15g Cascade 30min
15g Cascade 15min
15g Simcoe 10min
15g Amarillo 5min
15g Amarillo DryHop
15g Simcoe DryHop
OG ~ 1.060
IBU ~ 60
Color ~ 9 SRM
Hvernig lýst ykkur á þetta? Einhverjar hugmyndir að breytingum? Ætti ég að reyna að troða Columbus humlum einhverstaðar inní þetta?
Re: Amerískur IPA í átt að Úlf
Posted: 5. Aug 2011 19:18
by Örvar
Held ég leggji í þessa eins og hún er hér fyrir ofan. Bæti kannski í einhverjum humlum við flameout.
Ætti ég að bæta gipsi við í meskinguna þótt ég viti ekkert hvað ég sé að gera? Ég hef aldrei spáð neitt sérstaklega í vatnið en ég hef bæði heyrt að maður geti fengið of harkalega beiskju í ljósum og mikið humluðum bjórum ef maður notar ekki gips. Hef reyndar líka heyrt að það sé alveg öfugt, að maður auki beiskjuna með því að bæta við gipsi.
Hvað segið þið?
Re: Amerískur IPA í átt að Úlf
Posted: 5. Aug 2011 20:39
by helgibelgi
er gipsið til að lækka ph? eða bæta steinefnum?
Re: Amerískur IPA í átt að Úlf
Posted: 6. Aug 2011 17:37
by sigurdur
Gips er til að bæta við uppleystu kalki, hafa áhrif á klóríð á móti súlfat hlutfallið (sem hefur áhrif á greinanlega beiskju) og eiga við sýrustig meskingarinnar.
Re: Amerískur IPA í átt að Úlf
Posted: 6. Aug 2011 20:49
by Örvar
Gips lækkar semsagt sýrustig vatnsins en líklega væri betra að nota 5,2pH buffer ef maður veit ekki alveg hvað maður er að gera. Mætti maður búast við betri nýtni úr meskingunni ef maður notar gips eða eitthvað annað til að lækka sýrustig vatnsins?
Hvaða áhrif hefur gipsið á beiskju bjórsins?
Re: Amerískur IPA í átt að Úlf
Posted: 7. Aug 2011 13:21
by sigurdur
Er maður veit ekki alveg hvað maður er að gera, er best að breyta vatninu lítið sem ekkert.
Sýrustig hefur áhrif á meskingu, en það er erfitt að segja hvort að einhver gipsviðbót hefur áhrif til góðs á meskinýtingu.
Í ykkar tilfelli þá myndi ég ekki byrja að spá í áhrifum sýrustigi vatns á meskingu í fyrsta lagi fyrr en eftir að þið eruð búnir að skoða og laga allt annað í bruggferlinu hjá ykkur. En ef áhugi er fyrir því að skoða vatnið, þá er búið að búa til nokkra þræði á þessu spjallborði í kring um það.
Hér eru hlekkir á vatnspælingar
http://www.howtobrew.com/section3/chapter15.html" onclick="window.open(this.href);return false;
http://brewery.org/brewery/library/wchmprimer.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Svo er
http://braukaiser.com/" onclick="window.open(this.href);return false; en ég virðist vera í vandræðum með að tengjast inn á þá síðu.
Síðan hjá AJ DeLange er einnig mjög sniðug, en ég get ekki heldur tengst henni.
http://ajdel.wetnewf.org:81/" onclick="window.open(this.href);return false;
Ef það eru frekari spurningar um vatnsbreytingar, þá legg ég til að það verði stofnaður nýr þráður um það.
Re: Amerískur IPA í átt að Úlf
Posted: 7. Aug 2011 15:36
by Örvar
Takk fyrir svörin

Ég held ég geymi þessar gips pælingar bara þangað til ég hef lesið mér vel til um vatnsbætingar. Mun klárlega kíkja á þessa linka sem þú settir inn

Re: Amerískur IPA í átt að Úlf
Posted: 27. Nov 2012 18:24
by EG&BT
jæja vekjum þennan þráð...
Hvernig er það drengir, hvernig hefur ykkur gengið að gera copy-ur af þessum bjór (Úlfur).
Ég er mikið að pæla í að skella í einn svona sem minn næsta, (byrjaði á BeeCave, veður mín önnur bruggun).
Úlfurinn er bara í svo mikku uppáhaldi að ég á til með að prófa. Endilega póstið reynslu ykkar af þessum tilraunum það væri mjög vel þegið.