Page 1 of 1

Fyrsti mánudagurinn í Júlí - mánaðarlegur fundur?

Posted: 4. Jul 2011 15:22
by sigurdur
Er ráðgert að halda fund í kvöld?

Re: Fyrsti mánudagurinn í Ágúst - mánaðarlegur fundur?

Posted: 4. Jul 2011 16:34
by hrafnkell
Ágúst? Rosalega eru sumrin fljót að líða :)

Re: Fyrsti mánudagurinn í Júlí - mánaðarlegur fundur?

Posted: 4. Jul 2011 18:05
by sigurdur
Takk fyrir ábendinguna ... ég breytti þessu í Júlí.

En já, sumrin eru víst fljót að líða þó ég kunni greinilega ekki almennilega á dagatal ;)

Re: Fyrsti mánudagurinn í Júlí - mánaðarlegur fundur?

Posted: 4. Jul 2011 19:41
by gunnarolis
Sökum ákaflega daprar mætingar á síðasta fund og almennt daprar mætingar á sumrum var ákveðið að auglýsa ekki fund í Júlí.
Mögulegt er að auglýsa fund og athuga með mætingu t.d næsta mánudag ef áhugi er fyrir.

Re: Fyrsti mánudagurinn í Júlí - mánaðarlegur fundur?

Posted: 4. Jul 2011 20:14
by Feðgar
Segið mér, hvað er gert og rætt á þessum fundum.

Re: Fyrsti mánudagurinn í Júlí - mánaðarlegur fundur?

Posted: 5. Jul 2011 00:13
by sigurdur
Það er yfirleitt drukkið bjór og rætt um bjórgerð, jafnvel einhverjar ákveðnar aðferðir við bjórgerð og ýmislegt annað.
Við prófum oft bjór hjá hvorum öðrum.